Almenningur hafi aðgang að upplýsingum um stjórnsýslu Alþingis

For­sætis­nefnd hefur lagt fram frum­varp þess efnis að almenn­ingur hafi aðgengi að upp­lýs­ingum um stjórn­sýslu Alþingis. Þar á meðal eru greiddir reikn­ingar úr bók­haldi skrif­stofu Alþingis og fund­ar­gerðir for­sætis­nefndar.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

For­sætis­nefnd hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um þing­sköp Alþingis. Frum­varpið snýr að því að veita almenn­ing aðgang að upp­lýs­ingum um stjórn­sýslu Alþingis. Þar á meðal er gert ráð fyrir að öllum verði unnt að skoða upp­lýs­ingar um greidda reikn­inga úr bók­haldi skrif­stofu Alþingis. Jafn­framt verði hægt að nálg­ast gögn um störf nefnda eða starfs­hópa sem for­seti eða for­sætis­nefnd hefur komið á fót til þess að kanna ein­stök mál eða til að vinna til­lögur um mál­efni.

Gild­is­svið upp­lýs­inga­laga var víkkað í ár

[links]For­sætis­nefnd undir for­ystu Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, vinnur nú að breyt­ingum á þing­sköpum vegna nýsam­þykktra breyt­inga á upp­lýs­inga­lögum, þar sem gild­is­svið lag­anna var útvíkkað og meðal ann­ars látið ná til stjórn­sýslu Alþingis.

Með stjórn­sýslu Alþingis er átt við þá starf­semi sem fram fer á vegum Alþingis, þar á meðal starf­semi sem for­seta Alþingis eða for­sætis­nefnd er falin. Und­an­skildar eru hins vegar upp­lýs­ingar og skjöl er varða þing­störf Alþingis. [adspot]

Hægt að nálgast reikninga frá skrifstofu Alþingis

Nú þegar er almenn­ing veittur aðgangur að upp­lýs­ingum um starf­semi Alþingis þegar kemur að með­ferð þing­mála, þar á meðal um lög­gjaf­ar­starf þings­ins, með­ferð fjár­stjórn­ar­valds og eft­ir­lits­störf þings­ins. Einnig hafa verið settar reglur um opna fundi fasta­nefnda þings­ins og upp­lýs­ingar um laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna hafa verið gerðar aðgengi­legar á vef þings­ins frá alþing­is­kosn­ingum árið 2007. 

Með þessu frum­varpi for­sætis­nefndar er lagt til að meg­in­reglan verði sú að aðgangur skuli vera veittur að gögnum um þá starf­semi Alþingis sem lýtur að stjórn­sýslu þess og er í grund­vall­ar­at­riðum ekki frá­brugðin því sem gildir um starf­semi opin­berra aðila sem heyra undir fram­kvæmd­ar­valdið.

Þar á meðal eru fund­ar­gerðir for­sætis­nefndar og ann­ara nefnda eða starfs­hópa sem hafa starfs­að­stöðu hjá skrif­stofu Alþingis. Tak­mark­anir kunna þó að vera á aðgangi að fund­ar­gerðum for­sætis­nefndar, einkum ef efni fund­ar­gerða varðar störf Alþingis eða um mál­efni starfs­manna.

Jafn­framt er lagt til að heim­ildin verði látin ná til gagna um störf nefnda eða starfs­hópa sem for­seti eða for­sætis­nefnd hefur komið á fót til þess að kanna ein­stök mál eða til að vinna til­lögur um mál­efni. Einnig er lagt til að gögn um úthlutun heið­urs­launa verði aðgengi­leg.

Ef frum­varpið nær fram að ganga verður jafn­framt hægt skoða upp­lýs­ingar um greidda reikn­inga úr bók­haldi skrif­stofu Alþingis með líkum hætti og nú er um greidda reikn­inga ráðu­neyta og stofn­ana úr bók­haldi rík­is­ins.

Nær ekki til starfa Alþingis sem fulltrúasamkomu

Upp­lýs­inga­skyldan nær aftur á móti ekki til starfa Alþingis sem full­trúa­sam­komu þjóð­kjör­inna full­trúa, það er hvorki til starfa þing­manna, þing­flokka né starfs­manna þeirra. Enn fremur verða ekki veittar upp­lýs­ingar um hvað fer á milli þess­ara aðila og skrif­stofu þings­ins.

Réttur til aðgangs að gögnum um stjórn­sýslu Alþingis tekur því meðal ann­ars ekki til gagna sem farið hafa á milli Alþingis og stjórn­valds við und­ir­bún­ing fjár­laga­til­lagna fyrir Alþingi. Né gagna um með­ferð for­sætis­nefndar Alþingis á siða­reglu­málum, en um aðgang að þeim fer sam­kvæmt ákvörðun for­sætis­nefndar hverju sinni.

Lesa má frum­varpið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingaréttur

Leiðari

Fanney Birna Jónsdóttir

Til hvers eru Píratar?

Stefna Pírata hefur verið gagn­rýnd frá upp­hafi, eða öllu heldur meint stefnu­leysi þeirra. Það er enda stundum erfitt að skil­greina flokk­inn hvort heldur sem er til hægri eða vinstri. Oft og tíðum virð­ast mál þing­manna þeirra jaðra við að vera hrein­ræktuð frjáls­hyggju­mál en ekki sjaldnar má í mál­flutn­ingi þeirra greina mjög sterk sós­íal­ísk gildi. Hún er líka rugl­ings­leg saga flokks­ins...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Brú­neggin eru víða

Umfjöllun Kast­ljóss um fyr­ir­tækið Brúnegg hefur eðli­lega vakið mikla athygli. Fyrir liggur að Brúnegg blekkti neyt­endur stór­kost­lega með því að nota merk­ingar á vörur sínar sem héldu því fram að eggja­fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins væri vist­væn, að hænur þess væru „frjálsar“ og að þær fái ást og umhyggju. „Atlætið skilar sér í hollri og góðri afurð,“ sagði á heima­síðu Brú­neggja áður en...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár