Aðgangur almennings að upplýsingum aukinn

Alþingi sam­þykkti í gær tvö laga­frum­vörp sem auka tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna og upp­lýs­inga­rétt almenn­ings. Meðal ann­ars verður komið á fót ráð­gjafa til að leið­beina ein­stak­lingum og sam­tökum um fram­setn­ingu upp­lýs­inga­beiðna.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi hefur sam­þykkt tvö laga­frum­vörp um breyt­ingar á stjórn­sýslu- og upp­lýs­inga­lögum. Frum­vörpin eru hluti af aðgerðum stjórn­valda til að auka tján­ing­ar­frelsi og upp­lýs­inga­rétt almenn­ing. Með breyt­ing­unum eru upp­lýs­inga­lögin útvíkkuð og ná þau nú til hluta af starf­semi Alþingis og dóm­stóla. Auk þess er kveðið á í lög­unum um ráð­gjafi stjórn­valda sem hefur það hlut­verk að stuðla að bættri upp­lýs­inga­gjöf hins opin­bera og ber honum meðal ann­ars að leið­beina almenn­ing um fram­setn­ingu upp­lýs­inga­beiðna.

Flóknar reglur um þagnarskyldu takmörkuðu tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna

[links]Frum­vörpin eru afrakstur nefndar sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í mars 2018 um um umbætur á lög­gjöf á sviði tján­ing­ar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frels­is. Nefnd­inni var meðal ann­ars falið að fara yfir gild­andi upp­lýs­inga­lög í ljósi þró­unar á alþjóða­vett­vangi og fram­kvæmdar lag­anna og meta hvort þörf væri á laga­breyt­ing­um.

Með laga­breyt­ing­unni bæt­ist við kafli um tján­ing­ar­frelsi og þagn­ar­skyldu opin­berra starfs­manna í stjórn­sýslu­lögin. Kaflinn hefst á yfir­lýs­ingu um að opin­berir starfs­menn hafi frelsi til að tjá sig opin­ber­lega um atriði sem tengj­ast starfi þeirra svo fremi sem þagn­ar­skylda eða trún­aðar- og holl­ustu­skyldur standa því ekki í vegi. Með lög­unum er þó ekki verið að auka við þagn­ar­skyldu opin­berra starfs­manna heldur er þeim ætlað að skýra þær reglur sem um þagn­ar­skyldu gilda til þess að gera opin­berum starfs­mönnum betur kleift að nýta tján­ing­ar­frelsi sitt. [adspot]

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði þegar hún mælti fyrir frum­varp­inu að flóknar og óljósar þagn­ar­skyldu­reglur tak­mörk­uðu tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna og gætu valdið hættu á að við­kvæmar upp­lýs­ingar kæmust á almanna­vit­orð. Því væru skýrar reglur betri en óskýrar til að gæta beggja hags­muna.

Auk þess voru gerðar fleiri breyt­ingar á þagn­ar­skyldu­á­kvæðum 80 laga­bálka í því skyni að skýra og sam­ræma fram­kvæmd þagn­ar­skyldu í íslenskum rétti.

Ráðgjafi til að aðstoða almenning við að sækja upplýsingar

Á meðal þess sem breytt var í upp­lýs­inga­lög­unum er að nú ná þau yfir þá hluta starf­semi Alþingis og dóm­stóla sem eiga mest skylt við stjórn­sýslu og hert er á skyldu ráðu­neyta til að birta upp­lýs­ingar um mál sem þau hafa til með­ferðar. Enn fremur er nú í lög­unum kveðið á um frum­kvæð­is­skyldu ráðu­neyta í að birta upp­lýs­ingar um mál sem þau hafa til með­ferðar.

Jafn­framt hefur tími til að svara upp­lýs­inga­beiðnum verið styttur í lög­unum en ef beiðni um aðgang að gögnum hefur ekki verið afgreidd innan 30 virkra daga frá mót­töku hennar er beið­anda heim­ilt að vísa mál­inu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem úrskurðar um rétt hans til aðgangs. Þá er úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mál einnig gert skylt að birta úrskurð svo fljótt ­sem verða má en að jafn­aði innan 150 daga frá mót­töku henn­ar.

Með lög­unum er einnig komið á fót ráð­gjafa stjórn­valda um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings. Hann hefur það hlut­verk að stuðla að bættri upp­lýs­inga­gjöf hins opin­bera. Honum ber meðal ann­ars að leið­beina ein­stak­lingum, félaga­sam­tökum, fjöl­miðlum, lög­að­ilum og öðrum sem til hans leita um fram­setn­ingu beiðni um aðgang að gögnum, hvert henni skal beint og svo fram­vegis. Auk þess skal hann fylgj­ast með því hvernig opin­berir aðilar rækja skyldur sínar til að veita almenn­ingi aðgang að upp­lýs­ingum, hvort sem er sam­kvæmt beiðnum eða að eigin frum­kvæði.

Stefnt að því að Ísland verði í fremstu röð

Haft er eftir for­sæt­is­ráð­herra í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins að með frum­vörp­unum sé Ísland að taka skref í þá átt að skapa sér afger­andi laga­lega sér­stöðu á sviði tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frelsis.

„Ég er mjög ánægð með þennan áfanga til að auka gagn­sæi og upp­lýs­inga­frelsi. Með þessum frum­vörpum stígum við mik­il­vægt skref í átt að gagn­særri stjórn­sýslu þannig að Ísland verði í fremstu röð varð­andi reglur á þessu sviði. Breyt­ing­arnar fela í sér útvíkkun gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga til dæmis hvað varðar stjórn­sýslu, Alþingi og dóm­stóla en með lög­unum er líka lögð rík­ari kröfur á herðar stjórn­völdum til að tryggja betur aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum,“ segir Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár