Leggja fram breytingartillögu við frumvarp forsætisráðherra

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur lagt fram breyt­inga­til­lögu við frum­varp um breyt­ingu á upp­lýs­inga­lögum. Nefndin leggur til að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sé skylt að birta úrskurð svo fljótt sem verða má en að jafn­aði innan 150 daga.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur lagt fram breytingartillögu við frumvarp forsætisráðherra um breytingu á upplýsingalögum. Nefndin leggur til að úrskurðarnefnd um upplýsingamál skuli birta úrskurð svo fljótt sem verða má en að jafnaði innan 150 daga frá móttöku hennar. Í frumvarpi forsætisráðherra er fellt brott skilyrði um að úrskurð skuli kveða upp svo fljótt sem verða má en í stað þess áskilið að úrskurð skuli kveða upp innan 150 daga frá því kæra berst nefndinni. Þriðja umræða um frumvarpið fór fram á Alþingi í dag.

Nefndinni yfirsást breytinguna í frumvarpinu

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, er framsögumaður málsins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið í morgun að nefndinni hefði yfirsést að í frumvarpi forsætisráðherra hafi orðin „svo fljótt sem varða má“ fallið brott úr lögunum og í stað þess 150 daga hámarkstími komið inn. Hann sagði að því hefði hann óskað eftir því við nefndina að setningin fari aftur inn áður en frumvarpið verði samþykkt.

Í þriðju umræðu um frumvarpið á Alþingi í dag mælti Jón Þór fyrir breytingartillögu nefndarinnar en í henni segir að „úrskurðarnefnd um upplýsingamál skal birta úrskurð þeim sem fór fram á aðgang að gögnum og þeim sem kæra beindist að svo fljótt sem verða má en að jafnaði innan 150 daga frá móttöku hennar.“ Hann tók fram að öllum í nefndinni sammælist um þetta.

Handhöfum löggjafar- og dómsvalds skylt að að fylgja sömu efnisreglum

Í grein­ar­gerð frum­varps for­sæt­is­ráð­herra segir að frum­varpið sé afrakstur nefndar sem ráð­herra skip­aði þann 16. mars 2018 um umbætur á lög­gjöf á sviði tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frelsis, sem var meðal ann­ars falið að fara yfir gild­andi upp­lýs­inga­lög í ljósi þró­unar á alþjóða­vett­vangi og fram­kvæmdar lag­anna og meta hvort þörf væri á laga­breyt­ingum.

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni er helsta breyt­ingin, sem lögð er fram í frum­varp­inu, að gild­is­svið upp­lýs­inga­laga verði víkkað út þannig að hand­höfum lög­gjafar- og dóms­valds verði að meg­in­stefnu skylt að fylgja sömu efn­is­reglum og hand­hafar fram­kvæmd­ar­valds við ákvarð­anir um rétt almenn­ings til aðgangs að gögnum í vörslum þeirra. Jafn­framt segir að mark­mið frum­varps­ins sé að kveða skýrar á um skyldu ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands til birt­ingar upp­lýs­inga úr mála­skrám sínum að eigin frum­kvæði.

Nýju starfi ráðgjafa um upplýsingamál komið á fót

Enn­fremur lagt til í frum­varp­inu að sér­stakur ráð­gjafi starfi fyrir hönd stjórn­valda með það mark­mið að auka veg upp­lýs­inga­réttar almenn­ings. Þá er lagt til að búið verði þannig um hnút­ana að æðstu hand­hafar rík­is­valds geti leitað ráð­legg­inga um túlkun á siða­reglum í trún­aði og skerpt á und­an­þágu varð­andi gögn er varða sam­skipti opin­berra aðila við sér­fræð­inga í tengslum við rétt­ará­grein­ing.

Þá segir í grein­ar­gerð­inni að í skýrslu starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu hafi komið fram að afgreiðslu­tími úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sé of langur til að hún gegni nægj­an­lega virku hlut­verki við að snúa við efn­is­lega röngum ákvörð­unum um upp­lýs­inga­rétt almenn­ing. Því hafi verið sett fram strang­ari tíma­mörk á afgreiðslu beiðna um aðgang að upp­lýs­ingum og við máls­með­ferð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál í frum­varp­inu. Í frum­varp­inu var því fellt brott skil­yrði um að úrskurð skuli kveða upp svo fljótt sem verða má en í stað þess áskilið að úrskurð skuli kveða upp innan 150 daga frá því kæra berst nefnd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár