Eðlisbreyting á akstursgreiðslum til þingmanna eftir að þær voru gerðar opinberar

Greiðslur til þing­manna vegna akst­urs hafa dreg­ist veru­lega saman eftir að ákveðið var að birta þær á vef Alþingis. Í ár nema greiðslur vegna notk­unar eigin bif­reiðar 14 pró­sent af því sem þær námu árið 2017.

Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2019 fengu þing­menn lands­ins alls tæp­lega 2,4 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá Alþingi vegna akst­urs eigin bif­reiða. Ef end­ur­greiðslur verða sam­bæri­lega næstu fimm mán­uði árs­ins munu heild­ar­greiðslur vegna akst­urs eigin bif­reiða verða um 4,1 milljón króna á þessu ári.

Alls hafa þing­menn síðan til við­bótar leigt sér bíla­leigu­bíla fyrir 11,1 millj­ónir króna á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins og fengið um 1,8 milljón króna end­ur­greiddar vegna elds­neytis­kostn­aðar, greiðslna vegna notk­unar á jarð­göngum og töku leigu­bíla. Fram­reiknað má búast við því að heild­ar­kostn­aður þing­manna vegna akst­urs verði um 26,1 milljón króna.

Allt árið 2018 námu greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reiðum 8,4 millj­ónum króna og því ættu þær að óbreyttu að helm­ing­ast milli ára. Þá not­uðu þing­menn líka bíla­leigu­bíla fyrir alls 19,3 millj­ónir króna og fengu end­ur­greiðslur vegna elds­neytis, jarð­ganga og leigu­bíla upp á tæp­lega 3,2 millj­ónir króna. Sam­an­lagt var því kostn­að­ur­inn í fyrra 30,7 millj­ónir króna.

Þegar notk­unin er borin saman við árið 2017, þegar end­ur­greiðslur úr opin­berum sjóðum vegna notk­unar þing­manna á eigin bif­reiðum námu sam­tals 29,6 millj­ónum króna, þá hefur orðið eðl­is­breyt­ing. Væntar greiðslur í ár eru um 14 pró­sent af því sem var end­ur­greitt í vasa þing­manna vegna kostn­aðar sem varð til við notkun á eigin bif­reiðum á því ári. Þá námu með­al­greiðslur á mán­uði 2,4 milj­ónum króna, sem er sama upp­hæð og þing­menn hafa kraf­ist end­ur­greiðslu á frá byrjun árs og út júlí­mánuð 2019.

Þetta má sjá í tölum um greiðslur til þing­manna sem birtar eru á vef Alþingis.

Gegnsæi skilar sér

Þegar kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla, elds­neytis, jarð­ganga og leigu­bíla er tal­inn með var kostn­að­ur­inn vegna akst­urs þing­manna á árinu 2017 alls 42,7 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn hefur því dreg­ist saman, í krónum talið og án til­lits til verð­bólgu, um tæp­lega 40 pró­sent.

Vert að taka fram að árið 2017 var ansi sér­stakt. Þá voru ein­ungis 66 þing­fund­ar­dagar og 14 dagar teknir frá undir nefnd­ar­fundi. Ástæðan var vegna stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna eftir kosn­ing­arnar 2016, sem dróg­ust inn á árið 2017, stjórn­ar­slita í sept­em­ber 2017 og svo kosn­inga í októ­ber 2017, sem leiddu í kjöl­farið til nýrra stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna sem lauk ekki fyrr en 30. nóv­em­ber það ár. Til við­bótar fór þing­menn í jóla­frí, páska­frí og langt sum­ar­frí. Þeir unnu því ekki mikið á árinu 2017.

Því er ljóst að í kjöl­far mik­illar umfjöll­unar fjöl­miðla um akst­urs­kostnað Alþing­is­manna, sem var opin­ber­aður í fyrsta sinn í byrjun árs í fyrra, þá hefur end­ur­greiðslu­beiðnum þing­manna vegna notk­unar á eigin bílum fækkað veru­lega. Raunar hefur allur kostn­aður vegna akst­urs þing­manna dreg­ist umtals­vert saman.

Þetta má sjá í upp­lýs­ingum um laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna sem birtar eru á vef Alþing­is.

Almenningi neitað um upplýsingar árum saman

Fjöl­miðlar reyndu árum saman að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­sónu­leg­ar.

Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­ar, um akst­­ur­s­­kostn­að.

Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Reiði þegar greiðslur voru opinberaðar

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um þing­fara­kostnað, sem fjallar um bíla­leigu­bíla, gert skýr­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­menn séu að nota eigin bif­reið­ar. Breyt­ing­arnar náðu einkum til þing­manna sem falla undir svo­­kall­aðan heim­an­akst­­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­­lega um þing­­tím­ann. Það eru þing­­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­­ur­­nesjum, Vest­­ur­landi, Árnes­­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­­reið­um, sem kemur til end­­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda á skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl.

Ásmundur fékk hæstu greiðslurnar

Sá þing­maður sem þáð hafði hæstu greiðsl­urnar vegna akst­urs var Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Samkvæmt svari for­seta hafði hann keyrt alls 47.644 kíló­metra á árinu 2017 og fengið rúm­lega 4,6 millj­ónir króna end­ur­greitt vegna þessa. Frá 2013 og út árið 2017 námu end­ur­greiðslur til Ásmundar alls 23,5 millj­ónum króna vegna notk­unar hans á eigin bif­reið.

Í lok nóv­em­ber 2018 end­ur­greiddi Ásmundur skrif­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­ur­greiddar á árinu áður. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­fólki ÍNN.“

Frá því að akst­urs­málið var opin­berað í byrjun árs 2018 hafa orðið stakka­skipti á akst­urs­greiðslum til Ásmundar. Í fyrra fékk hann sam­tals end­ur­greiddar 684 þús­und krónur vegna notk­unar á eigin bif­reið auk þess sem kostn­aður vegna leigu á bíla­leigu­bílum var tæp­lega 1,2 millj­ónir króna. Þá nam elds­neytis­kostn­aður 639 þús­und krónum og akst­ur­kostn­aður Ásmundar því sam­tals rétt yfir 2,5 millj­ónum króna. Greiðslur til hans vegna akst­urs nán­ast helm­ing­uð­ust milli ára.

Hættur að nota eigin bifreið

Í ár hefur dregið enn meira úr end­ur­greiðslum til Ásmundar. Raunar hefur hann ekki fengið eina krónu end­ur­greidda vegna notk­unar á eigin bif­reið. Kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla og elds­neytis, sem hann hefur fengið greiddan úr opin­berum sjóðum, nemur sam­tals tæp­lega 1,4 millj­ónum króna vegna fyrstu sjö mán­aða árs­ins 2019. Haldi notkun Ásmundar áfram með sama hætti má ætla að árlegur akstur hans muni kosta skatt­greið­endur um 2,4 millj­ónir króna.

Hann er sem stendur í öðru sæti yfir þá þing­menn sem hafa fengið hæstu end­ur­greiðsl­urnar vegna akst­urs á árinu. Fyrir ofan hann er sam­flokks­maður hans Vil­hjálmur Árnason, en greiðslur vegna bíla­leigu­bíla og elds­neytis til hans fram til júlíloka 2019 námu sam­tals rúm­lega 1,5 milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár