Tveir af hverjum þremur fýlum með plast í maga

Nærri tveir af hverjum þremur fýlum voru með plast í melt­ing­ar­vegi í vöktun Umhverf­is­stofn­unar. Þarf af voru 13 pró­sent fýla með magn af plasti yfir við­mið­un­ar­mörk OSPAR.

Fýll
Fýll Mynd: Jörg Hempel

Um 64 pró­sent fýla voru með plast í melt­ing­ar­vegi hér á landi. Þar af voru um 13 pró­sent fýl­anna með yfir 0,1 gramm af plasti í melt­ing­ar­vegi. Þetta magn plasts er yfir mörkum sem OSPAR stefnir að og felur í sér að innan við 10 pró­sent fýla hafi yfir 0,1 gramm af plasti í melt­ing­ar­vegi. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum vökt­unar Umhverf­is­stofn­unar.

Fýlar gleypa mikið af plasti

[links]Vöktun Umhverf­is­stofn­unar á fýlum er hluti af staðl­aðri vöktun á plast­mengun innan OSPAR sem er samn­ingur um verndun haf­rýmis Norð­austur-Atl­ants­hafs­ins og Ísland er aðili að.

Umhverf­is­stofnun rann­sak­aði fyrst plast í mögum fýla hér á landi í fyrra. Fýlar afla sér nær ein­göngu fæðu á sjó og þar sem þeir eiga erfitt með að kafa þá éta þér yfir­leitt það sem er næst yfir­boði sjávar, sem eru oft á tíðum plast sem lík­ist fæðu.

Í nið­ur­stöðum Umhverf­is­stofn­unar um vöktun á magni plasts í melt­ing­ar­vegi fýla árið 2019 kemur fram að að með­al­tali voru 3,7 plast­agnir í hverjum fýl. Með­al­þyngd plast­s­ins var 0,12 gramm á hvern fýl, sem er sam­bæri­legt við nið­ur­stöður árs­ins 2018.

Sam­an­borið við fýla á öðrum haf­svæðum við Norður-Atl­ants­haf virð­ist vera minna magn af plasti í fýlum hér við land, miðað við nið­ur­stöður rann­sókna árin 2018 og 2019. Um 13 pró­sent fýla voru þó með magn af plasti í melt­ing­ar­vegi yfir við­mið­un­ar­mörkum OSPAR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár