Tugir tonna af örplasti úr þvottavélum í hafið

Losun örplasts í hafið frá þvotti heim­ili hér á landi er áætluð á bil­inu 8,2 til 32 tonn á ári. Talið er hins vegar að um van­mat sé að ræða og að magn örplasts sé mun meira þar sem gervi­efni í fatn­aði eykst með hverju ári.

Áætlað er að heild­ar­losun örplasts frá þvotti á Íslandi sé allt að 32 tonn á hverju ári. Líklegt þykir hins vegar að los­unin sé enn meiri þar sem notkun gervi­efna í fatn­aði eykst með hverju ári. Þetta magn af örplast skol­ast síðan beint út í haf þar sem á Íslandi er ekki gert ráð fyrir síun örplastagna í frá­rennsli. Þetta kemur fram í skýrslu um örplast í íslensku umhverfi.

Örplast frá þvotti ein af helstu uppsprettunum

Plast­rusl finnst hvar­vetna í haf­inu allt frá svokölluð plast­eyjum niður í örplastagnir sem mynd­ast ýmist við nið­ur­brot plasts í sjónum eða ber­ast þangað frá landi. Síðustu ár hafa vís­inda­menn verið að varpa ljósi á alvar­leika öragna og örplast meng­unar í hafi.

Í skýrslu sjáv­ar­líf­tækni­set­urs­ins BioPol sem unnin var fyrir umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið voru greindar upp­sprettur örplasts á Íslandi, lagt mat á stærð þeirra og eftir hvaða leiðum örplastið berst til sjávar.

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar kemur fram að langstærsta upp­spretta örplasts hér á landi eru hjól­barðar eða alls 75 pró­sent. Aðrar stórar upp­sprettur eru plast­agnir úr veg­merk­ingum, hús­máln­ingu og frá þvotti.

Notkun plasts í fatnaði eykst með hverju ári

Gervi­efni eru algeng í fatn­aði og er þá um að ræða þræði úr plast­efnum eins og til dæmis pólý­ester og akrýl. Við þvott fatn­aðar losnar þónokkuð magn þráða úr fatn­að­inum og á það bæði við um fatnað úr gervi­efnum og nátt­úru­legum efnum á borð við ull, silki og bóm­ull.

Plast­þræðir gervi­efna renna síðan með nið­ur­falli þvotta­véla til við­tak­ans, hvort sem það er rot­þró eða sjór­inn.

Í skýrsl­unni var losun örplasts­meng­unar frá fata­þvotti til sjávar á Íslandi áætluð með því að marg­falda íbúa með áætl­uðum fjölda þvotta á ári og áætl­aðri með­al­l­osun örplast­þráða við hvern þvott. Áætluð heild­ar­losun örplasts frá þvotti á Íslandi á ári er sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unni 8,2 til 32 tonn.

Settur er þó fram sá fyr­ir­vari í skýrsl­unni að töl­urnar sem not­aðar voru eru frá 2010 og þar sem fatn­aður úr nátt­úru­legum efnum er á und­an­haldi og notkun gervi­efna í fatn­aði eykst ár hvert sé lík­legt að um van­mat sé að ræða um magn örplasts frá þvotti.

Plastmengun í hafi snertir líka Íslendinga

Biopol hefur einnig fylgst með eðlis- og líf­fræði­legum þáttum sjávar við Skaga­strönd með reglu­legum mæl­ingum frá árinu 2012. Í sýnum sínum hafa þau fundið tölu­vert magn af örplasti.

Magn plasts í hverju sýni hefur verið mjög breyti­legt en starfs­maður Biopol telur að plastið sé mest­megnis beint frá heim­ilum, þar á meðal frá þvotta­vélum.

„Dæmi hver fyrir sig en okkur finn­ast þessar myndir frekar óhugn­an­legar og varpa ljósi á að plast­mengun í haf­inu er ekki endi­lega bara vanda­mál sem snerta aðrar þjóðir og fjar­læg haf­svæði,“ segir Halldór Gunnar Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Biopol í sam­tali við Fiski­fréttir í maí á síð­asta ári og vísar til mynd­ar­innar hér til hliðar.

Úrbóta þörf í hreinsi­stöðvum á Ísland­i

[links] Í skýrslu um losun örplasts með skólpi sem Matís vann í sam­starfi Sænsku umhverf­is­rann­sókn­ar­stofn­un­ina (IVL), Finnsku umhverf­is­stofn­un­ina (SYKE) og Aalto-há­skól­ann í Finn­landi kom fram að eina hreins­unin sem fram­kvæmd er á skólpi á Íslandi, meðal ann­ars í Kletta­garða­stöð­inni og skólp­hreinsi­stöð­inni í Hafn­ar­firði, sé gróf­sí­un.

Agnir sem eru minni en milli­metri og niður í hund­rað míkró­metra fara gegnum stöðv­arnar og út í umhverf­ið. Annað er upp á ten­ingnum í Sví­þjóð og Finn­landi þar sem 99 pró­sent öragna setj­ast í óhrein­indin sem skilj­ast frá frá­veitu­vatni eftir for­hreins­un.

Hrönn Jör­unds­dótt­ir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MAT­ÍS, vann að skýrsl­unni en hún sagði í sam­tali við Kjarnann í maí 2017 að Íslend­ingar verði að hugsa skólp­hreinsun upp á nýtt og fara að taka ábyrgð á þessum hlut­um. Ekki sé ein­ungis mik­il­vægt að huga að líf­rænni mengun heldur verði að skilja að plast­agnir og lyfja­leifar komi úr skólp­inu sem fer út í sjó og menga út frá sér. Plastið brotni ekki niður og því hverfi vanda­málið ekki þrátt fyrir að því sé dælt út í sjó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár