Ný rannsókn bendir til að örvunarskammtur fyrir Janssen-þega sé óþarfur

Gögn úr nýrri klínískri rann­sókn sem hálf milljón suður-afrískra heil­brigð­is­starfs­manna tók þátt í benda til þess að bólu­efni Janssen veiti góða vörn gegn Delta-afbrigð­inu. Örv­un­ar­skammtar hafa nú þegar verið gefnir hér á landi.

Einn skammtur af bólu­efni Janssen veitir mikla vörn gagn­vart alvar­legum veik­indum og dauða af völdum Delta og Beta afbrigðum kór­ónu­veirunnar, gögn úr nýrri klínískri rann­sókn sem fram­kvæmd var í Suður-Afríku benda til þess. Hún er fyrsta stóra klíníska lyfja­rann­sóknin sem kannar virkni bólu­efnis Janssen gegn Delta-afbrigð­inu. Frá þessu er greint á vef New York Times en taka ber fram að gögn rann­sókn­ar­innar hafa ekki enn verið rit­rýnd og þau hafa enn ekki birst í vís­inda­ritum. Vest­an­hafs er talað um bólu­efni Janssen sem Johnson & Johnson.

Um það bil hálf milljón heil­brigð­is­starfs­manna í Suður-Afríku tók þátt í rann­sókn­inni, sem eru í miklum áhættu­hópi gagn­vart því að smit­ast af COVID-19. Einn skammtur af bólu­efn­inu er sagður veita 95 vörn gegn dauða af völdum Delta-afbrigð­is­ins og 71 pró­sent vörn gegn spít­ala­inn­lögnum. Virkni bólu­efn­is­ins gegn Beta-afbrigð­inu var aðeins lak­ari, en það afbrigði er talið eiga auð­veld­ara með að leika á ónæm­is­kerfið. Í þeim til­fellum þegar þátt­tak­endur í rann­sókn­inni smit­uð­ust þá fengu um 96 pró­sent þeirra væg ein­kenni. Hluti þeirra þátt­tak­enda í rann­sókn­inni sem smit­uð­ust af COVID-19 og glímdu við mjög alvar­leg veik­indi eða dóu af völdum veirunnar var innan við 0,05 pró­sent.

„Að okkar mati er bólu­efnið að gera það sem það var hannað til að gera, koma í veg fyrir að fólk legg­ist inn á spít­ala og að koma í veg fyrir að það fari í önd­un­ar­vél og lát­ist,“ segir lækn­ir­inn Linda-Gail Bekker í umfjöllun New York Times, en hún er meðal þeirra sem stýrir rann­sókn­inni. Hún segir nið­ur­stöð­urnar benda til þess að fólk sem hafi fengið einn skammt af bólu­efni Jansen þurfi ekki örv­un­ar­skammt.

Þessi rann­sókn ætti því að hljóma vel í eyrum þeirra millj­óna sem fengið hafa bólu­efni frá Janseen, sér­stak­lega í ljósi þess að fyrri rann­sóknir sem fram­kvæmdar voru á til­rauna­stofum bentu til þess að þau sem fengu bólu­efnið gætu verið ber­skjald­aðri gagn­vart Delta-afbrigð­inu en þau sem fengu önnur bólu­efni sem gefin eru í tveimur skömmtum.

Engar vísindarannsóknir birtar um örvun bólusetningar

Ísland er í hópi þeirra landa sem hafa ákveðið að gefa full­bólu­settum örv­un­ar­skammta, ásamt meðal ann­ars Ísrael, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Þýska­landi. Hér á landi hafa rúm­lega 53 þús­und fengið bólu­efni Janssen og nú þegar hefur fólki í þeim hópi verið gef­inn örv­un­ar­skammtur.

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans frá því í síð­ustu viku sagði Kamilla Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, að „engar vís­inda­rann­sóknir“ hefðu verið birtar um örvun Janssen-bólu­setn­ingar en rök fyrir ákvörð­un­inni kæmu fram í minn­is­blaði. Rökin eru þau að vörn eftir einn skammt af bólu­efni Janssen sé svipuð og vörn eftir einn skammt af öðrum bólu­efnum. „En Janssen er með mark­aðs­leyfi sem eins skammts bólu­efni og var því notað þannig.“ [links]

Kamilla benti á í svari sýnu að „mjög litlar upp­lýs­ingar“ liggi fyrir um virkni Janssen-bólu­efnis gegn delta-afbrigði veirunnar sem nú hefur náð yfir­hönd­inni hér eins og víðar. Hins vegar liggi fyrir upp­lýs­ingar „um ágæta virkni bólu­efnis Pfizer/BioNTech gegn þessu afbrigði“.

Þegar minn­is­blaðið var skrifað, þar sem mælt var með örvun Janssen bólu­setn­ingar höfðu um 40 pró­sent bólu­settra sem greinst höfðu með veiruna verið bólu­settir með Janssen. „Það ber þó að túlka með varúð,“ skrifar Kamilla. „Ald­urs­hópur sá sem nú er mest áber­andi hvað smit varðar, 18-49 ára, var að miklu leyti bólu­settur með Janssen, um 36%, en 21% af öllum bólu­settum fengu Janssen.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár