Leggur til miklar áherslubreytingar í utanríkismálum

Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna vill draga saman seglin völdum mála­flokkum utan­rík­is­stefn­unni.

Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.
Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í heim­sókn í Kænu­garði, höf­uð­borg Úkraínu. Mynd: EPA

Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hefur lagt til við banda­ríska þingið að ráð­gjafa­stöður í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um lofts­lags­mál og mál­efni Sýrlands verið lagðar niður.

Samtals eru það 36 stöður í utan­rík­is­þjón­ust­unni sem sér­hæfðu sig meðal ann­ars í mál­efnum lofts­lags, múslima og Sýrlands sem stofnað var til með lögum og ráð­herr­ann vill að lagðar verði af.

Frá þessu er greint á vef banda­ríska tíma­rits­ins Foreign Policy.

Tiller­son óskar eftir laga­breyt­ingum í bréfi sem hann sendi Bob Corker, for­manni utan­rík­is­mála­nefndar Öld­unga­deildar banda­ríska þings­ins. Í bréf­inu lýsir ráð­herr­ann áhyggjum sínum af því að nærri 70 sér­hæfðar stöður hafi verið lagðar niður á síð­ustu ára­tugum; Stöður sem snertu mál­efni frið­ar­um­leit­ana í Írlandi og stjórn­mála­tengsl við Búrma.

Tillögur Tiller­son þykja marka nokkuð miklar áherslu­breyt­ingar á utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna. „Ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að breyt­ing­ar­til­lög­urnar muni vera banda­rískum örygg­is­hags­munum til bóta og hjálpa til við að vega á móti áhrifum óvinum og sam­keppn­is­að­ilum Banda­ríkj­anna,“ skrifar Tiller­son í erindi sínu til Corker.

Þessar breyt­ingar eru í takt við það sem for­set­inn og ráða­menn í stjórn Donalds Trump hafa sagt. Til­lög­urnar end­ur­spegla breyttar áherslur rík­is­stjórnar sem vill draga saman seglin í utan­rík­is­málum Banda­ríkj­anna og flytja meira af almannafé til hers­ins.

Þær stöður sem stjórn­völd vilja að felldar verði niður eru ráð­gjafar um rétt­indi fatl­aðra, um frið­ar­um­leit­anir í Afríku og um lokun fang­els­is­ins í Guant­anamo Bay á Kúbu. Þá er lagt til að staða sér­staks sendi­full­trúa gagn­vart sam­fé­lögum múslima verði felld niður auk sendi­nefndar gagn­vart Islömsku sam­starfs­stofn­un­inni.

Þær stöður sem ekki er lagt til að lagðar verði niður eru til dæmis sendi­nefnd gagn­vart frið­ar­um­leit­unum milli Ísrael og Palest­ínu, full­trúi Banda­ríkj­anna um stefnu vegna Norður-Kóreu, full­trúi for­set­ans í upp­bygg­ingu hern­að­ar­banda­lags gegn Islamska rík­inu og staða sér­staks full­trúa vegna versl­unar og við­skipta.

Þá er ekki lagt til að stöður sendi­nefnda um trú­frelsi, rétt­indi LGBT-fólks, stríðs­glæpi, gyð­inga­hatur og banda­ríska fanga verði felldar niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár