Topp 10 ógleymanleg atvik á EM

Þann 10. júní hefst Evr­ópu­meist­ara­mót karla í knatt­spyrnu í fimmt­ánda sinn. Í upp­hafi, árið 1960, var mótið smátt í sniðum og spilað á ein­ungis fjórum dögum. En það hefur vaxið í gegnum ára­tug­ina og nú eru 24 lið sem taka þátt. Íslend­ingar taka þátt á stór­móti í fyrsta skipti i sög­unni sem og fleiri þjóðir sem hingað til hafa ekki unnið mörg afrek á knatt­spyrnu­vell­inum. Mótið verður því vænt­an­lega sögu­legt. Hér eru 10 eft­ir­minni­leg­ustu atvikin á Evr­ópu­mót­inu til þessa.

10. Gazza

Enski miðju­mað­ur­inn Paul Gascoigne mátti þola ýmsi­legt á ferli sínum og oft var hann sinn versti óvinur. En stór­mótin tvö þar sem hann var inn­an­borðs, HM 1990 og EM 1996, eru þau einu þar sem Eng­lend­ingar hafa staðið undir vænt­ingum síðan þeir urðu heims­meist­arar árið 1966.....og Gazza var stærsta ástæðan fyrir því. Evr­óp­meist­ara­mótið 1996 var einmitt haldið í Englandi á 30 ára afmæli heims­meist­ara­tit­ils­ins. Eng­lend­ingar komust í und­an­úr­slit og minnstu mun­aði að hann tryggði þeim far­seð­il­inn í úrslita­leik­inn með svoköll­uðu gull­marki. Gascoigne spil­aði frá­bær­lega á öllu mót­inu og var val­inn í úrvalsliðið. Eft­ir­minni­leg­asta atvikið var markið sem hann skor­aði gegn Skotum í riðla­keppn­inni. Skotar höfðu mis­notað víta­spyrnu og Eng­lend­ingar sóttu hratt fram. Með einni snert­ingu vipp­aði Gascoigne bolt­anum yfir varn­ar­mann­inn Colin Hendry og í þeirri næstu afgreiddi hann mark­vörð­inn Andy Goram. Gazza spil­aði alltaf með hjart­anu fyrir England og við­ur­kenndi að hafa grátið eftir mótið.

9. Fimm vítaspyrnur í súginn

Fyrir Evr­ópu­meist­ara­mótið árið 2000 voru gest­gjaf­arnir Hol­lend­ingar taldir með allra sig­ur­strang­leg­ustu lið­unum. Liðið hafði kom­ist í und­an­úr­slit á heims­meist­ara­mót­inu tveimur árum áður og skart­aði stjörnum á borð við Dennis Bergkamp, Patrick Kluivert, Edgar Davids og Clarence Seedorf. Þeir unnu alla þrjá leik­ina í riðla­keppn­inni gegn Tékkum, Dönum og heims­meist­urum Frakka áður en þeir völt­uðu yfir Júgóslava í 8-liða úrslitum 6-1. Það kom því ekki á óvart að þeir hefðu mikla yfir­burði í leiknum í und­an­úr­slit­unum gegn Ítölum. En inn vildi bolt­inn ekki. Gianluca Zambrotta var rek­inn út af í fyrri hálf­leik og Frank De Boer steig á punkt­inn. Ítalski mark­mað­ur­inn Toldo varði þá spyrnu. Seinna fengu Hol­lend­ingar aftur víti en Kluivert skaut í stöng­ina. Í lok fram­leng­ingar var staðan ennþá 0-0. Í víta­spyrnu­keppn­inni brenndu Hol­lend­ingar svo af þremur spyrnum og þar af varði Toldo tvær.

8. Lukka Ronnie Whelan

Írski miðju­mað­ur­inn Ronnie Whelan er stuðn­ings­mönnum Liverpool að góðu kunnur enda spil­aði hann allan níunda ára­tug­inn og vel fram á þann tíunda með lið­inu. Hann spil­aði einnig með nokkuð sterku lands­liði Íra sem komst á þrjú stór­mót á aðeins sex árum. Árangur liðs­ins á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu 1988 er athygl­is­verður. Liðið komst ekki upp úr riðl­inum þrátt fyrir sigur gegn Englandi og jafn­tefli gegn sterku liði Sov­ét­manna. Í síð­ar­nefnda leiknum skor­aði Whelan eitt minn­is­stæð­asta mark keppn­innar frá upp­hafi. Mick McCarthy fleygði löngu inn­kasti rétt inn fyrir teig Sov­ét­manna þar sem Whelan stóð. Hann lét sig falla til hliðar og spyrnti knett­inum yfir mark­vörð­inn Rinat Dasayev. Whelan segir:

„Ég veit ekki af hverju ég var þarna. Þetta var ekki mín staða... Ég gæti haft mig að algjöru fífli en mér er alveg sama. Þetta er Evr­ópu­meist­ara­mótið og ef hann lendir inni þá verð ég svo­lítil hetja.“

7. Samsæri Skandinavíu

Evr­ópu­meist­ara­mótið árið 2004 situr eins og mara á þjóð­ar­sál Ítala. Fyrir loka­leik­inn í C riðli voru Danir og Svíar með 4 stig og Ítalir með 2. Ef Ítalir ynnu sinn leik kæmust þeir áfram svo lengi sem leikur Dana og Svía end­aði ekki í jafn­tefli, 2-2 eða hærra, sem er nú nokkuð óal­geng úrslit í knatt­spyrnu. En Ítalir van­treystu nor­rænu þjóð­unum og heimt­uðu meira eft­ir­lit með leiknum. UEFA bættu við tveimur auka mynda­vélum á leik­inn til að róa taugar Ítala en þjálf­arar nor­rænu lið­anna brugð­ust reiðir við og minntu á að liðin eru fornir fjendur á knatt­spyrnu­vell­inum. Ítalir rétt mörðu sinn leik, gegn Búlgörum, en þá rætt­ist þeirra versti draumur. Allt leit út fyrir sigur Dana með tveimur mörkum Jon Dahl Tom­as­sonar gegn einu víta­marki Svía. En á 89. mín­útu jafn­aði Mattias Jonson metin í 2-2. Allir sem sáu leik­inn vissu að þetta var ekk­ert sam­særi, ein­ungis til­viljun, en eftir jöfn­un­ar­markið sótti hvor­ugt liðið. Bæði sátt við að sjá Ítali fara heim.

6. Vítaspyrnukeppnin riður sér til rúms

Á fyrstu ára­tugum Evr­ópu­keppn­innar komust ein­ungis 4 lið í loka­mótið og lið þurftu ein­ungis að vinna tvo leiki til að verða Evr­ópu­meist­arar. Afrek Tékka á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu árið 1976 í Júgóslavíu verður þó ekki dregið í efa því að þeir sigr­uðu þá tvö bestu knatt­spyrnu­lið heims­ins, Hol­lend­inga og Vestur-Þjóð­verja. Tit­ill­inn hefur að miklu leyti verið eign­aður þjálf­ara liðs­ins, Vaclav Jezek, sem hafði þjálfað í Hollandi og náði að móta ein­staka liðs­heild innan tékk­neska lands­liðs­ins. Liðið var snautt af stór­stjörnum en tækni­legir hæfi­leikar þess og fjöl­hæfni leyndi sér ekki. Úrslita­leik­ur­inn gegn Vestur-Þjóð­verjum end­aði 2-2 eftir fram­leng­ingu og því þurfti að grípa til víta­spyrnu­keppni í fyrsta skipti á stór­móti. Uli Hoeness brenndi af fjórðu spyrnu Vestur-Þjóð­verja og því gat miðju­mað­ur­inn Antonin Panenka tryggt Tékkóslóvakíu tit­il­inn. Svell­kaldur vipp­aði hann bolt­anum í mitt markið og hafa slíkar spyrnur verið kenndar við hann æ síðan.

5. Tryllingur Portúgala

Árið 2000 var portú­galska lands­liðið komið í hóp þeirra bestu á ný eftir marga magra ára­tugi. Leikmenn á borð við Luis Figo, Rui Costa og Paulo Sousa, hin svo­kall­aða gullna kyn­slóð, voru á hápunkti fer­ils síns og það skil­aði sér á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í Hollandi og Belgíu. Portú­galar unnu alla leik­ina í riðla­keppn­inni, þar á meðal Eng­lend­inga og Þjóð­verja, og Tyrki í 8-liða úrslitum. Mikil spenna var því fyrir und­an­úr­slita­leiknum gegn heims­meist­urum Frakka. Nuno Gomes kom Portú­gölum yfir í fyrri hálf­leik en Thierry Henry jafn­aði í seinni. Leik­ur­inn var jafn og spenn­andi og Portú­galir ögn betri ef eitt­hvað var og leik­ur­inn var fram­lengdur. Undir lok fram­leng­ingar varði portú­galski bak­vörð­ur­inn Abel Xavier skot frá Sylvain Wiltord með hend­inni og Zinedine Zidane tryggði Frökkum sig­ur­inn með víta­spyrnu. Portú­gal­arnir brugð­ust væg­ast sagt illa við og veitt­ust að dóm­ur­unum. Þeir ýttu, klór­uðu og hræktu á þá sem olli því að nokkrir leik­menn liðs­ins fengu margra mán­aða leik­bann.

4. Vi er røøøøde....

Sagan af Evr­ópu­meist­aratitli Dana árið 1992 er flestum kunn. Danir komust inn á mótið ein­göngu vegna þess að Júgóslövum var vísað úr keppn­inni vegna stríðs­ins þar í landi. Fæstir bjugg­ust við miklu af þeim á mót­inu sem fram fór í Svíþjóð og mótið byrj­aði brösu­lega fyrir þá. Eftir fyrstu tvo leik­ina höfðu þeir unnið sér inn ein­ungis eitt stig og ekki enn skorað mark. Danir voru einnig án sinnar helstu stjörnu, Michael Laudrup, sem stóð í deilum við lands­liðs­þjálf­ar­ann. En Danir unnu óvæntan sigur á Frökkum í loka­leik riðla­keppn­innar og komust í und­an­úr­slitin. Danir knúðu fram víta­spyrnu­keppni gegn stjörnu­prýddum Evr­ópu­meist­urum Hol­lend­inga og þar varði Stóri Daninn, Peter Smeichel, víta­spyrnu frá Marco Van Basten á snilld­ar­legan hátt. Heims­meist­arar Þjóð­verja voru næstir á dag­skrá og pressan var stíf frá þeim í úrslita­leiknum. En þrumufleygur frá John Jensen og gott mark fyrir utan teig frá Kim Vilfort sjokker­aði heims­byggð­ina og tryggði Dönum tit­il­inn.

3. Undramark Van Basten

Tíma­bilið 1987/1988 var erfitt fyrir hol­lenska fram­herj­ann Marco Van Basten. Hann eyddi sínu fyrsta tíma­bili fyrir AC Milan að mestu leyti á sjúkra­list­anum vegna þrá­látra ökkla­meiðsla. Þess vegna hóf hann EM 1988 í Vestur-Þýska­landi sem vara­maður fyrir John Bosman. Hol­lend­ingar töp­uðu fyrsta leiknum gegn Sov­ét­mönnum og Van Basten fékk tæki­færi til að sanna sig gegn Englandi. Þar skor­aði hann þrennu. Van Basten skor­aði alls 5 mörk og var val­inn besti leik­maður móts­ins auk þess að tryggja Hol­lend­ingum sjálfan Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn. Mark hans í úrslita­leiknum þykir eitt það besta í sög­unni. Arnold Muhren gaf háa fyr­ir­gjöf frá vinstri kant­inum og Van Basten lagði bolt­ann í einni snert­ingu yfir sov­éska mark­vörð­inn Rinat Dasayev. Markið virð­ist vera eðl­is­fræði­lega bjagað. Sjálfur segir hann:

„OK, ég gæti stoppað og átt við alla varn­ar­menn­ina eða ég gæti farið auð­veldu leið­ina, tekið áhættu og skotið.“

2. Yfirburðir Platini

Enginn leik­maður hefur spilað jafn vel á Evr­ópu­móti og miðju­mað­ur­inn Michel Platini gerði árið 1984 í heima­landi sínu Frakk­landi. Miðju­spil Frakka á mót­inu var full­komið með Jean Tigana og Alain Giresse á könt­unum, Luis Fernandez baka til og Platini fyrir framan. Platini var útsjón­ar­samur leik­stjórn­andi og lunk­inn við að skapa sér færi. Hann tók frá­bærar auka­spyrnur og var stór­hættu­legur í teignum þar sem hann gat auð­veld­lega skorað með skall­anum. Mörk hans komu á færi­bandi á mót­inu. Hann skor­aði sig­ur­mark í opn­un­ar­leiknum gegn Dönum og svo tvær þrennur til við­bótar í riðla­keppn­inni, gegn Belgum og Júgóslövum. Í und­an­úr­slit­unum skor­aði hann dramat­ískt sig­ur­mark á lokamín­útu fram­leng­ingar gegn Portú­gölum. Hann kór­ón­aði svo frammi­stöð­una með marki í úrslita­leiknum gegn Spán­verjum. Hann skor­aði alls 9 mörk á mót­inu en eng­inn annar leik­maður í sög­unni hefur skorað fleiri en 5. Hann var vita­skuld val­inn maður móts­ins og tryggði þjóð sinni Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn.

1. Öskubuskuævintýri Grikkja

Evr­ópu­meist­ara­mótið árið 2004 var mót hinna minni þjóða. Lettar komust á mótið og komu öllum á óvart með jafn­tefli gegn Þjóð­verjum. Þjóð­verjar, Rússar, Spán­verjar og Ítalir duttu út í riðla­keppn­inni og Eng­lend­ingar og Frakkar í 8-liða úrslitum. Hol­lend­ingar voru því fjöl­menn­asta þjóðin í und­an­úr­slitum með ein­ungis 16 millj­ónir íbúa. Það voru þó Grikkir sem stálu sen­unni. Gríska lands­liðið hafði um ára­tuga skeið verið hálf­gerður brand­ari og stolt Grikkja meira verið bundið við félags­liðin Olymp­i­akos og Pan­athinai­kos. Fyrir EM 2004 var veð­banka­stuð­ull­inn á sigur Grikkja 150 á móti 1. Grikkir komu þó öllum á óvart með sigri gegn gest­gjöf­unum frá Portúgal í fyrsta leik en minnstu mun­aði að þeir kæmust ekki upp úr riðl­inum. Þjálf­ar­inn Otto Rehhagel, gam­all refur úr þýsku deild­inni, náði þó að þétta rað­irnar og Grikkir fengu ekki á sig fleiri mörk í keppn­inni. Þrír 1-0 sigrar í röð gegn Frökkum, Tékkum og Portú­gölum tryggði þeim þann ótrú­leg­asta titil sem unn­ist hefur á stór­móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár