BSRB telur engin rök vera fyrir einkavæðingu á póstþjónustu

BSRB mót­mælir harð­lega hug­myndum Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að einka­væða Íslands­póst ohf. í bréfi sem fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins hefur sent ráð­herr­anum.

Engin rök eru fyrir einka­væð­ingu á póst­þjón­ustu enda á hún að vera órjúf­an­legur hluti af almanna­þjón­ust­unni að mati BSRB. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá banda­lag­inu.

[links]Fram kom í fjöl­miðlum í morgun að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vildi selja Íslands­póst til einka­að­ila við fyrsta tæki­færi. Hann segir að þegar umbætur á lagaum­gjörð og breyt­ingar á rekstri Íslands­póst fari að skila árangri þá sé ekk­ert því til­ ­fyr­ir­stöð­u að ríkið selji rekst­ur­inn.

BSRB mót­mælir harð­lega þessum hug­myndum í bréfi sem fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins hefur sent ráð­herra. Í bréf­inu segir Magnús Már Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins, ljóst að einka­væð­ing þess muni hafa í för með verri þjón­ustu og aukin kostnað fyrir almenn­ing auk þess að hafa slæm áhrif á rétt­indi starfs­manna.

Hvetur stjórnvöld að hætta við öll áform um einkavæðingu

„Póst­þjón­usta er sam­fé­lags­þjón­usta rétt eins og heil­brigð­is­þjón­ustan, lög­gæsla, sam­göngur og fleira. Þar þarf fyrst og fremst að horfa til þess að almenn­ingi um allt land sé tryggð góð þjón­usta. Slíkt er ekki hægt nema almanna­þjón­ustan sé í höndum hins opin­bera sem skipu­leggi, stýri og fjár­magni hana með jafnan rétt almenn­ings að leið­ar­ljósi,“ segir meðal ann­ars í bréfi BSRB.

Þar er einnig rakið hvernig einka­væð­ing póst­þjón­ustu í Evrópu hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt með bættri þjón­ustu og minni kostn­aði. Þvert á móti hafi einka­væð­ingin víða haft í för með sér verri þjón­ustu, sér í lagi í dreif­býli, hækk­andi gjald­skrár og slæm áhrif á vinnu­skil­yrði og rétt­indi starfs­fólks.

BSRB hvetur til þess að stjórn­völd hætti við öll áform um frek­ari einka­væð­ingu sam­fé­lags­legra mik­il­vægra inn­viða í bréf­inu, sem sent var fjár­mála­ráð­herra í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

póstur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár