Fjármálaráðherra vill selja Íslandspóst

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vill einka­væða Íslands­póst við fyrsta tæki­færi. Hann segir því ekk­ert til fyr­ir­stöðu þegar umbætur á lagaum­gjörð og nauð­syn­legar breyt­ingar á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins fari að skila árangri.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vill selja Íslands­póst til einka­að­ila við fyrsta tæki­færi. Hann segir að þegar umbætur á lagaum­gjörð og breyt­ingar á rekstri Íslands­póst fari að skila árangri þá sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að ríkið selji rekst­ur­inn. Þetta kemur fram í sam­tali Bjarna við Frétta­blaðið í dag.

Fjár­fest­ingar Íslandspósts of miklar

[links] Íslands­póstur greindi frá því á þriðju­dag­inn að viða­miklar skipu­lags­breyt­ingar væru framundan hjá fyr­ir­tæk­inu. Fram­kvæmda­stjórum fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið ­fækkað úr fimm í þrjá. Sam­hliða því hafa ýmsar skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar inn­an­ ­fyr­ir­tæk­is­ins en sam­kvæmt for­stjóra Íslands­pósts eru breyt­ing­arnar gerðar til draga úr rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tæk­is­ins og auka hag­ræð­ingu.

Á þriðju­dag­inn birti Rík­is­end­ur­skoðun jafn­framt stjórn­sýslu­út­tekt sína á Íslands­pósti en þar kom fram að fjár­hags­vandi Íslands­pósts stafi meðal ann­ars af því að dreif­ing pakka­send­inga frá útlöndum hefur reynst félag­inu kostn­að­ar­söm og sam­dráttur í bréf­send­ingum hefur ekki feng­ist að fullu bættur með hækkun á gjald­skrá. Auk þess voru heild­ar­fjár­fest­ingar félags­ins á árinu 2018 of miklar miðað við greiðslu­getu þess.

Í fyrra var rekstr­ar­af­komu Íslands­pósts nei­kvæð um 287 milj­ónir króna. Fjár­hags­vandi Íslands­pósts á árinu 2018 leiddi til þess að félagið stefndi í greiðslu­vanda þegar við­skipta­banki þess lok­aði fyrir frek­ari lán­veit­ing­ar. Í kjöl­farið fékk rík­is­sjóður heim­ild frá Alþingi í lok síð­asta árs til að veita fyr­ir­tæk­inu einn og hálfan millj­arð í neyð­ar­lán. [adspot]

Í skýrsl­unni er haft eftir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að það blasi við að ef Íslands­póstur hefði ekki farið í fjár­fest­ingar á sama tíma og met­fækkun varð í bréfa­send­ingum og aukn­ing á tapi í pakka­send­ingum þá hefði félagið lík­lega haft getu til að fá lán hjá við­skipta­banka til að leysa bráða­lausa­fjár­vanda­fé­lags­ins í fyrra.

Á að vera að keppa á samkeppnisgrundvelli

Bjarni seg­ist ekki ekki hafa náð að fara yfir skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sjálfur í sam­tali við Frétta­blaðið. Hann segir hins vegar að af opin­berri umfjöllun að dæma séu mál­efni Íslands­pósts í góðum far­vegi innan stjórn­ar­innar nú og margt af því sem til­tekið sé í skýrsl­unni til­heyri for­tíð­inni.

Bjarni segir jafn­framt að það sé hans vilji að einka­væð­ing Íslands­pósts eigi sér stað sem fyrst. Að hans mati hafa ekki verið aðstæður til þess und­an­farin miss­eri eða ár vegna þess hvernig rekst­ur­inn hafi gengið. Hann segir hins vegar að nú þegar umbætur á lagaum­gjörð um starf­semi Íslands­pósts hafi verið komið í betra form og þegar nauð­syn­legar breyt­ingar á rekstri fyr­ir­tæks­ins fari að skila árangri þá sé engin ástæða fyrir eign­ar­haldi rík­is­ins á fyr­ir­tæk­inu.

„Þá er ég sér­stak­lega að vísa til þess að við höfum öll tök á verð­lagn­ingu þjón­ust­unnar sem við viljum hafa, þess­ari grunn­póst­þjón­ustu í land­inu. Að öðru leyti getur hún bara farið fram á sam­keppn­is­grund­velli. Það er hluti af þeirri þjón­ustu sem ber sig ekki á sam­keppn­is­grund­velli og þá verður ríkið að gera þjón­ustu­samn­ing um það og í þeim þjón­ustu­samn­ingi getum við ákveðið þjón­ustu­stigið og verð­lagn­ingu. En að öðru leyti eigi þetta fyr­ir­tæki bara að vera að keppa á sam­keppn­is­grund­velli, “ segir Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár