Mikilvægt að bjóða upp á innanlandsflug frá Keflavík

Discover the World hefur dregið veru­lega saman áform sín um að fljúga beint milli London og Egils­staða. For­stjór­inn segir að inn­an­lands­flug frá Keflavík gæti verið mik­il­vægt í því að stuðla að dreif­ingu ferða­manna.

Búið er að fella niður mik­inn meiri­hluta flug­ferða milli London Gatwick og Egils­staða í sumar, vegna þess að eft­ir­spurnin var ekki jafn­mikil og búist var við. Greint er frá þessu í frétt á vefnum Túristi.is.

Ferða­skrif­stofan Discover the World til­kynnti í haust að boðið yrði upp á beint flug á milli London og Egils­staða í sumar. Til stóð að fljúga frá lokum maí og út sept­em­ber og fara tvær ferðir í viku, en nú hefur ferð­unum verið fækkað úr 35 í níu, og allar ferð­irnar verða í júlí og ágúst. Clive Stacey, for­stjóri og stofn­andi Discover the World, segir við Túrista að upp­haf­leg áætlun fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið of bjart­sýnt. „Eftir á að hyggja hefðum við átt að bjóða upp á styttri flug­á­ætlun strax frá upp­hafi þar sem hug­myndin um beint flug til Egils­staða hefur ekki fengið eins mik­inn hljóm­grunn og við áttum von á,“ segir hann. Bretar sem ferð­ist til Íslands vilji fara Gullna hring­inn og heim­sækja Reykja­vík og Bláa lónið, og því falli flug til Egils­staða ekki nógu vel að plö­unm þeirra.

Í síð­ustu viku til­kynnti rík­is­stjórnin um veit­ingu 170 millj­óna króna til Flug­þró­un­ar­sjóðs á þessu ári, og að gert sé ráð fyrir því að sjóð­ur­inn hafi 300 millj­ónir króna til ráð­stöf­unar á hverju ári næstu árin. Mark­miðið með sjóðnum er að koma á reglu­legu milli­landa­flugi um aðra flug­velli en Kefla­vík­ur­flug­völl, og stuðla þannig að dreif­ingu ferða­manna. Stjórn sjóðs­ins verður skipuð sjö ein­stak­lingum og hún á að taka til starfa um miðjan apríl.

Stacey segir að íslenska ferða­þjón­ustan verði í heild sinni að fjár­festa í mark­aðs­setn­ingu á afskekkt­ari svæðum ef það á að takast að breyta for­gangs­röðun ferða­manna. Hann segir að stuðn­ing­ur­inn sem rík­is­stjórnin hefur boðað sé skref í rétta átt, en að mik­il­vægt sé að skil­yrði fyrir styrkjum séu sveigj­an­leg og lagi sig að mark­aðnum. „Eftir því sem flug­leið­unum milli Bret­lands og Kefla­vík­ur­flug­vallar fjölgar þeim mun erf­ið­ara verður að bjóða upp á beint flug út á lands­byggð­ina frá Bret­landi. Ég tel því að inn­an­lands­flug frá Keflavík til staða eins og Akur­eyrar, Ísa­fjarðar og Egils­staða gæti verið mik­il­vægt, sér­stak­lega utan háanna­tím­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár