Samþykkt að greiða hluthöfum Arion banka tugi milljarða króna

Hlut­hafa­fundur í Arion banka var hald­inn í morgun. Þar var sam­þykkt heim­ild til að kaupa bréf af hlut­höfum og greiða þeim út arð. Eigið fé bank­ans minnkar um þrjú pró­sent við aðgerð­ina.

Samþykkt var á hlut­hafa­fundi í Arion banka í morgun að veita tíma­bundna heim­ild til að kaupa til baka hluta­bréf útgefin af bank­anum af núver­andi hlut­höfum hans. Hún heim­ilar að stjórn bank­ans geti keypt allt að 200 millj­ónir hluta í bank­anum á allt að 18,8 millj­arða króna. Um er að ræða allt að tíu pró­sent hlut í Arion banka.

Þá var einnig sam­þykkt að greiða út 25 millj­arða króna í arð­greiðslu til hlut­hafa, en end­ur­kaup á hluta­bréfum drag­ast frá þeirri greiðslu. Arð­greiðslan er skil­yrt því að Kaup­þing ehf., stærsti eig­andi Arion banka, muni ná að selja að minnsta kosti tvö pró­sent af eign sinni í bank­anum fyrir 15. apríl næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar. Þar segir enn fremur: „Arð­greiðsla og kaup á eigin bréfum sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi bank­ans er að fullu í sam­ræmi við lang­tíma­mark­miði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bank­ans. Að fram­kvæmd lok­inni lækkar eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans um ríf­lega 3 pró­sent en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bank­inn telur hæfi­legt.“

Lífeyrissjóðir ætla ekki að kaupa

Í dag rann út frestur íslenskra líf­eyr­is­sjóða til að svara til­boði Kaup­þings um að kaupa hlut í Arion banka áður en að bank­inn verður skráður á markað. Sjóð­irnir höfn­uðu því að kaupa hlut sem stendur. Við­mæl­endur Kjarnans segja hins vegar ekki úti­lokað að íslensk trygg­inga­fé­lög og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki kaupi hluti í Arion banka fyrir útboð. Kaupgeta þeirra er næg til þess að hægt verði að losa að minnsta kosti tvö pró­sent í bank­anum og þar með upp­fylla það skil­yrði sem er sett fyrir arð­greiðsl­unni.

Kaup­þing er stærsti eig­andi Arion banka með um 57 pró­sent hlut. Vog­un­­­­­ar­­­­­sjóð­irn­ir Taconic Capital, Och-Ziff CapitalManagement, Attestor Capital og fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­bank­inn Goldman Sachs eiga sam­an­lagt 29,59 pró­­­­­­sent hlut í bank­anum og íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut.

Verði greiddir út 25 millj­arðar króna, bæði vegna end­ur­kaupa og arð­greiðslu, má ætla að íslenska ríkið fá um 3,3 millj­arða króna í sinn hlut.

Geta fengið háar bón­us­greiðslur tak­ist að selja allar eignir

Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í tölu­vert langan tíma. Kaup­­þing ehf., eign­­ar­halds­­­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­­bús hins fallna banka, hélt á 87 pró­­sent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá upp­­­gjöri milli þeirra og rík­­is­ins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 pró­­sent hlut.

Í sam­komu­lag­inu við kröf­u­haf­anna stóð líka að íslenska ríkið ætti for­­kaups­rétt á hlutum í Arion banka ef bank­inn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 pró­­­sent eða minna af bók­­­færðu eigin fé. Söm­u­­leiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tæk­ist að selja hann fyrir árs­­lok 2018.

Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfs­­menn Kaup­­þings gætu fengið allt að 1,5 millj­­arða króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bón­us­greiðslur ættu að greið­­ast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 pró­­sent hlutur Kaup­­þings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.

Sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum frá Kaup­­þingi þá verða bón­us­greiðsl­­urnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apr­íl. Þau við­­skipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyr­ir­hugað hluta­fjár­­út­­­boð á eft­ir­stand­andi 57,4 pró­­sent hlut Kaup­­þings mun ekki gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár