Íslensk tónlist færð í nútímann með nýju útgáfufyrirtæki

Nýtt útgáfu­fyr­ir­tæki stefnir að 10 nýjum útgáfum á íslenskri tón­list á næsta ári.

Ólafur Arnalds í miklu stuði ásamt Janus Rasmussen sem saman mynda elektródúettinn Kiasmos.
Ólafur Arnalds í miklu stuði ásamt Janus Rasmus­sen sem saman mynda elektródúett­inn Kiasmos. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tón­list­ar­menn­irnir Ólafur Arnalds og Sölvi Blöndal fara fyrir hópi tón­list­ar­fólks og fjár­festa sem standa að stofnun nýs tón­list­ar­út­gáfu­fyr­ir­tækis. Með nýja útgáfu­fyr­ir­tæk­inu á að nútíma­væða íslenska tón­list­ar­út­gáfu með auk­inni staf­rænni útgáfu og auka aðgengi að eldra íslensku efni á ver­ald­ar­vefnum. Stefnt er á 10 nýjar útgáfur á næsta ári.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ólafur að nýja fyr­ir­tæk­inu, sem enn hefur ekki fengið nafn, verði stjórnað af tón­list­ar­mönnum og að að því komi aðeins fólk sem sé tón­list­ar­fólk eða hafi ástríðu fyrir tón­list. Bæði Ólafur og Sölvi sitja í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins en meðal ann­arra sem koma að stofnun þess eru Reynir Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri CCP, Sigurjón Sig­hvats­son kvik­mynda­gerð­ar­maður og fjár­fest­arnir Henrik Biering og Jón Diðrik Jónsson, sem er meiri­hluta­eig­andi í Senu.

Ólafur segir að umræða um stofnun nýs útgáfu­fyr­ir­tækis á Íslandi hafi staðið lengi en hjólin hafi ekki farið að snú­ast fyrr en í byrjun þessa árs. „Þetta er góð hug­mynd fyrir okkur sem stöndum að þessu og tón­list­ar­fólkið,“ segir Ólafur. Hug­myndin sé að nútíma­væða íslenska tón­list­ar­út­gáfu; færa hana enn frekar í staf­rænt form.

Tón­list­ar­streym­isveitur á borð við Spotify og iTu­nes hafa und­an­farin miss­eri rutt sér til rúms sem stærsti „selj­andi“ tón­listar í heim­inum. Tug þús­und Íslend­ingar eru með áskrift að Spotify, þar sem hægt er að sækja tón­list­ina lög­lega með því að greiða mán­að­ar­legt gjald. Ólafur segir að það sé engin ástæða fyrir því að íslenskir tón­list­ar­menn eigi ekki að fá borgað fyrir staf­ræna hlustun líka.

Ónefnda útgáfu­fyr­ir­tækið hefur, til þess að stuðla að mark­miði sínu, eign­ast allan tón­list­ar­rekstur Senu og um leið alla safn­skrá og eldri útgáfur fyr­ir­tæks­ins. Þar eru allt að sjö­tíu ára gamlar útgáfur sem Ólafur segir að gaman verði að dreifa lög­lega á vefnum.

„Mark­miðið er að taka catalogue-inn og gera hann meira áber­andi staf­ræna heim­inum og gera íslenska tón­list aðgengi­legri. Það hefur eng­inn farið í þessa her­ferð að búa til staf­rænt íslenskt tón­list­ar­um­hverfi,“ segir Ólafur. Með því að kom­ast yfir útgefið efni í eigu Senu segir Ólafur að hægt sé að reka útgáfu­fyr­ir­tækið á nútíma­legri hátt; Þeim hafi fund­ist að það þyrfti kannski að koma nýtt blóð í rekst­ur­inn til að nútíma­væða útgáf­una.

Þó mega íslenskir tón­list­ar­menn ekki gef­ast upp á geisla­disk­unum, og sér­stak­lega ekki vinyl­plöt­unum. Nýja útgáfu­fyr­ir­tækið ætlar einnig að gefa út efn­is­legar plötur, ef svo má að orði kom­ast. Ólafur bendir hins vegar á að mark­að­ur­inn fyrir slíka útgáfu sé að minnka og að hann muni minnka enn frekar. Útgáfa á vinyl hefur þó fengið nýja náð meðal tón­list­arunn­enda og hefur það auk­ist und­an­farin ár að lista­menn gefi tón­list sína út á vinyl. Ólafur segir einnig hugs­an­legt að nýja útgáfu­fyr­ir­tækið ráð­ist í end­ur­út­gáfu á eldra íslensku efni, jafn­vel því sem aldrei hefur komið út á vinyl.

Fyr­ir­tækið og hug­myndin verður kynnt fyrir tón­list­ar­fólki og blaða­mönnum á Húrra í dag klukkan 13.

Ólafur Arnalds hefur getið sér gott orð sem solo-lista­maður. Hann hefur gefið út þrjár breið­skífur síðan 2007 auk þess að hann hefur átt í sam­starfi við hina ýmsu lista­menn. Þekktasta sam­starfið er hugs­an­lega til­raunatekknóbandið Kiasmos sem Ólafur rekur með Janus Rasmus­sen.

Sölvi Blöndal er oft kenndur við Quarashi enda var hann einn stofn­enda hljóm­sveit­ar­innar árið 1996 og er enn for­sprakki sveit­ar­innar í end­ur­kom­unni sem hófst í ár. Ný plata er í smíðum hjá Quarashi og nú þegar eru þeir búnir að gefa út nýtt lag:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár