Skora á Þorstein um að víkja sem formaður kærunefndar útlendingamála

Félaga­sam­tök og ein­stak­lingar senda í dag frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem skorað er á nýskip­aðan for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála um að láta af störfum. Fyrri störf hans fyrir Útlend­inga­stofnun eru sögð leiða til þess að hann geti ekki notið trausts.

Þorsteinn Gunnarsson var skipaður í embætti formanns kærunefndar útlendingamála undir lok ágústmánaðar.
Þor­steinn Gunn­ars­son var skip­aður í emb­ætti for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála undir lok ágúst­mán­aðar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Þónokkur félaga­sam­tök og ein­stak­lingar hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem skorað er á Þorstein Gunn­ars­son, nýskip­aðan for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála, um að víkja úr emb­ætt­inu. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra skip­aði Þorstein í emb­ættið undir lok síð­asta mán­aðar og skorað er á hana um að birta öll gögn varð­andi skip­un­ar­ferlið.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem send er út í nafni Sam­tak­anna ‘78, No Borders, Solaris, Röskvu, Félags­ins Íslands-Palest­ína og Félags hern­að­ar­and­stæð­inga auk fleiri félaga og ein­stak­linga, segir að sú ákvörðun að skipa stað­gengil for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar sem for­mann kæru­nefnd­ar­innar, sem hafi umsjónar- og eft­ir­lits­hlut­verk gagn­vart þeirri sömu stofnun, sé til þess fallið að „draga veru­lega úr trú­verð­ug­leika og hlut­leysi nefnd­ar­innar“ gagn­vart Útlend­inga­stofnun.[links]

„Samkvæmt lögum er hlut­verk kæru­nefndar útlend­inga­mála að vera sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem á að úrskurða um mál sem kærð eru til hennar, en eðli máls­ins sam­kvæmt eru það fyrst og fremst úrskurðir frá ÚTL. Helsta hlut­verk Þor­steins í nýju starfi sem for­maður kæru­nefndar er því að rann­saka og úrskurða um mál stofn­unar sem hann hefur sjálfur stýrt um ára­bil, sem sam­ræm­ist varla hlut­verki hennar sem “sjálf­stæð” stjórn­sýslu­nefnd,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Segja Þorstein hafa rekið heiftúðuga harðlínustefnu

Í yfir­lýs­ing­unni er afgreiðsla ýmissa mála hjá Útlend­inga­stofnun á und­an­förnum miss­erum og aðkoma Þor­steins að þeim gagn­rýnd harð­lega. Segir meðal ann­ars að hinsegin fólk hafi und­an­farin miss­eri þurft að berj­ast mikið fyrir því að fá hinseg­in­leika sinn við­ur­kenndan af Útlend­inga­stofnun. Einnig er stefna Útlend­inga­stofn­unar í mál­efnum barna og þolenda mansals sögð hafa verið „heift­úðug“ og „harð­línu­stefna“.

[adspot]

Þá er vísað til þess að nýlega var þjón­ustu­svipt­ing Útlend­inga­stofn­unar á nærri tutt­ugu flótta­mönnum úrskurðuð ólög­leg af hálfu kæru­nefndar útlend­inga­mála, en Þor­steinn og fleiri tals­menn Útlend­inga­stofn­unar höfðu stigið fram í fjöl­miðlum og sagt gjörð­ina stand­ast lög.

„Með fram­ferði sínu gerði ÚTL menn­ina hús­næð­is­lausa og án fram­færslu í rúman mánuð, suma lengur en það, auk þess sem þeim var neitað um heil­brigð­is­þjón­ustu. Kæru­nefnd Útlend­inga­mála úrskurð­aði að ákvörðun ÚTL hafi verið ólög­mæt, en hvorki Þor­steinn né yfir­maður hans, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, geng­ust við ábyrgð á þessum ólög­legu aðgerðum né báð­ust afsök­unar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni í dag.

Umboðsmaður Alþingis hvattur til að ráðast í frumkvæðisathugun

Auk þess að skora á Þorstein um að segja af sér og dóms­mála­ráð­herra um að birta öll gögn um skip­un­ar­ferlið, skora þau sem standa að yfir­lýs­ing­unni skora á Umboðs­mann Alþingis um að ráð­ast í frum­kvæð­is­at­hugun á umræddri skipun með sér­staka áherslu á trausts­sjón­ar­mið.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að þegar litið sé til álita Umboðs­manns Alþingis og hæf­is­reglna stjórn­sýslu­laga megi sjá að trausts­sjón­ar­mið spili stóran þátt í mati á hæfi nefnd­ar­manna.

„Þau sjón­ar­mið ættu í raun að gera Þorstein van­hæfan þar sem það eitt og sér að hafa komið beint úr því starfi sem hann hefur sinnt öll þessi ár er alvar­legur ann­marki hvað varðar trausts­sjón­ar­mið,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þar segir að skipun Þor­steins í emb­ættið sé til þess fallin að „grafa undan grunn­stoðum lýð­ræð­is­legs rétt­ar­ríkis og rétt­ar­vit­und þegna þess“ auk þess sem búast megi við því að sá jað­ar­setti hópur sem flótta­fólk er muni halda áfram að finna fyrir „harðri stefnu Þor­steins“ sem verði „nær alls­ráð­andi í mála­flokknum“.

Þau sem standa að yfirlýsingunni eru eftirtalin:

Anna Lára Steindal, Elinóra Guð­munds­dóttir, Félag hern­að­ar­and­stæð­inga, Félagið Ísland Palest­ína, Hall­grímur Helgason rit­höf­undur, Ísold Ugga­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona, No Borders Iceland, Norðdahl lög­manns­stofa, Refugees in Iceland, Réttur barna á flótta, Röskva - sam­tök félags­hyggju­fólks við Háskóla Íslands, Samtökin ‘78, Solaris - hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar, Stelpur Rokka, Trans Ísland og Q - félag hinsegin stúd­enta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár