Spyrja hvort framlögð fjármálaáætlun sé í samræmi við stjórnarsáttmála

ASÍ bendir á það í umsögn sinni við fjár­mála­á­ætlun að mjög tak­markað svig­rúm sé til auk­inna útgjalda næstu árin sem þó er fyr­ir­séð að muni aukast mikið. Vilja efla tekju­stofna rík­is­ins, meðal ann­ars með komu­gjaldi og hækkun fjár­magnstekju­skatts.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun fyrir árin 2023-2027 í mars.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra lagði fram fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023-2027 í mars. Mynd: Bára Huld Beck

Markmið um útgjalda­vöxt eins og þau birt­ast í fjár­mála­á­ætlun eru óraun­hæf og skapa ekki grund­völl fyrir þær umbætur sem boð­aðar eru í stjórn­ar­sátt­mála að mati Alþýðu­sam­bands Íslands.

Í umsögn sam­bands­ins við fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023-2027 er bent á að stefnt sé að því í fjár­mála­á­ætlun að stöðva hækkun skulda sem hlut­falls af lands­fram­leiðslu fyrir árs­lok 2026. „Það er í sam­ræmi við fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Til þess að ná því mark­miði þarf halli hins opin­bera að minnka ár frá ári. Samkvæmt fram­lagðri fjár­mála­á­ætlun fer halli hjá hinu opin­bera úr 183 millj­örðum í ár niður í 34 millj­arða árið 2027. Það er lækkun upp á 149 millj­arða.“

Af þeirri lækkun má rekja 40 millj­arða til afkomu­bæt­andi ráð­staf­ana á bæði tekju- og útgjalda­hlið rík­is­sjóðs. Því til við­bótar stendur til að skatt­leggja öku­tæki og umferð. „Að lokum er lækkun hall­ans náð með aðhalds­kröfu á öll ramma­sett útgjöld nema á heil­brigðis- og öldr­un­ar­stofn­anir, skóla, dóm­stóla, bóta­kerfi og sjúkra­trygg­ingar. Gert er ráð fyrir að í lok tíma­bils leiði aðgerðir til tæp­lega 12 millj­arða króna lækk­unar á útgjöldum.“

Úrbótatillögur í stjórnarsáttmála kalli á aukin útgjöld

Ramma­sett útgjöld munu hækka árlega um eitt pró­sent á föstu verð­lagi frá 2022 til 2027. Það segir ASÍ fela í sér mjög tak­markað svig­rúm til auk­inna útgjalda næstu árin en í umsögn­inni er vitnað beint í fjár­mála­á­ætlun þar sem fjallað er um þetta svig­rúm: „Hægfara raun­vöxtur felur í sér að lítið svig­rúm er til nýrra eða auk­inna útgjalda á tíma­bil­inu. Fjár­mögnun nýrra eða auk­inna verk­efna mun því að stórum hluta fara fram með for­gangs­röðun og bættri nýt­ingu fjár­muna innan gild­andi útgjald­ara­mma.“

Í umsögn­inni er þeirri spurn­ingu velt upp hvort fram­lögð áætlun sé í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála og vitnað er í umsögn fjár­mála­ráðs þar sem spurt er hvort „fram­lögð áætlun feli í sér nægi­legt svig­rúm til að standa við fyr­ir­heit stjórn­mál­anna eins og þau eru boðuð í stjórn­ar­sátt­mála.“ ASÍ bendir á að í stjórn­ar­sátt­mál­anum séu margar úrbóta­til­lögur sem kalli á aukin útgjöld. Fyrirséð sé að útgjöld auk­ist umfram áætluð útgjöld, meðal ann­ars vegna mót­væg­is­að­gerða vegna verð­bólgu, fjölg­unar flótta­manna og bygg­ingar þjóð­ar­leik­vangs.

Lækkun bankaskatts verði dregin til baka

Að mati ASÍ er mik­il­vægt að tekju­stofnar rík­is­ins verði styrktir á kom­andi árum. Bent er á það í umsögn­inni að stefnt sé að því að draga úr nei­kvæðri und­ir­liggj­andi afkomu hins opin­bera sem hefur verið nei­kvæð frá 2019. „Það er aðal­lega gert með mjög hóg­værum útgjalda­vexti. Á tekju­hlið eru einu boð­uðu breyt­ing­arnar skatt­lagn­ing öku­tækja og umferðar Það er til þess að koma til móts við lækkun skatt­tekna vegna lægri gjalda á raf­magns­bíla.“

Sam­bandið vill styrkja tekju­stofna rík­is­ins með ýmsum leiðum sem það segir geta bæði aukið aðhald í rík­is­fjár­málum sem og skapað svig­rúm til að ráð­ast í nauð­syn­legar vel­ferð­ar­umbætur og fjár­fest­ingu í innviðum. Hægt væri að færa skatt­lagn­ingu fjár­magns nær skatt­lagn­ingu launa­tekna sem og að koma í veg fyrir skatta­snið­göngu í formi tekju­til­flutn­ings sem „við­gengst í núver­andi kerfi og dregur úr skatt­tekjum um 3-8 millj­arða árlega,“ segir í umsögn­inni.

Þá telur ASÍ mik­il­vægt að mót­aður sé skýr rammi um auð­linda­gjöld sem byggja á þeirri rentu sem verður til við nýt­ingu auð­linda sem og að skatt­leggja starf­semi sem felur í sér nei­kvæð ytri áhrif. Dæmi um slíkt væri komu­gjald í ferða­þjón­ustu. Það gæti skila sjö til tíu millj­örðum árlega. Að auki telur ASÍ þörf á að lækkun banka­skatts verði dregin til baka. Skatt­ur­inn var lækk­aður árið 2020 úr 0,376 í 0,145 pró­sent á heild­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár