Embætti landlæknis varar við misnotkun lyfja

Vegna frétta und­an­farið um notkun ung­menna á ávana­bind­andi lyfjum hefur Embætti land­læknis tekið saman upp­lýs­ingar um alvar­leg áhrif og afleið­ingar mis­notk­unar.

Vegna frétta und­an­farið um notkun ung­menna á ávana­bind­andi lyfjum hefur Embætti land­læknis tekið saman upp­lýs­ingar um alvar­leg áhrif og afleið­ingar mis­notk­unar. Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Á vef­síðu Embættis land­læknis er greint frá því að ef of stór skammtur ávana­bind­andi lyfja er tek­inn geta afleið­ing­arnar verið bæði bráðar og óaft­ur­kræfar fyrir ein­stak­ling­inn.

Þá segir að bráð hætta stafi af ávana­bind­andi lyfjum. Þegar sterk verkja­lyf eru notuð getur orðið blóð­þrýst­ings­fall, svefn­höfgi og hætta á dái eða dauða vegna önd­un­ar­bæl­ingar. Dæmi um lyf eru Contalgin, Oxycontin, Fentanyl, Búp­renor­fín og Tramadól. Þetta eru hættu­leg­ustu lyfin, sam­kvæmt Emb­ætt­inu.

Slævandi eða róandi lyf eins og til að mynda benzódíazepín geta verið lífs­hættu­leg séu þau tekin með áfengi og öðrum lyfjum sem hafa bælandi áhrif á mið­tauga­kerfið. Dæmi um róandi lyf eru Alprazolam, Sobril, Stesolid, Imovane, Stilnoct og Díazepam.

Bráð ofskömmtun af örvandi lyfjum getur meðal ann­ars leitt til krampa, sem geta endað í dái, ofskynj­ana, óráðs, ofur­hita, hrað­takts og háþrýst­ings. Dæmi um örvandi lyf eru amfetamín, Ritalin Uno og Concerta.

Samkvæmt Emb­ætt­inu eykur notkun margra efna sam­tímis, til að mynda lyfja, áfengis og ólög­legra efna, mjög hættu vegna sam­verk­unar. Ein­stak­lingum sem sjaldan eða aldrei áður hafa notað við­kom­andi lyf er mun hætt­ara við alvar­legum auka­verk­unum.

Lyf sem eru flutt inn af ein­stak­lingum eða búin til á ólög­legan hátt eru mun hættu­legri þar sem þau geta inni­haldið ýmiss auka­efni. Dæmi um slíkt lyf er Xanax sem ekki er á mark­aði hér á landi. Xanax inni­heldur alprazolam og iðu­lega önnur efni sem bætt hefur verið við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár