Samhljómur meðal ráðherra um aðgerðir vegna stöðu fjölmiðla

Það er sam­hljómur um það milli Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra að nauð­syn­legt sé að grípa til aðgerða vegna stöðu fjöl­miðla hér á landi. Þetta sagði Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í umræðu um rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla á Alþingi í dag.

Illugi sagð­ist sjálfur vera viss um að grípa verði til aðgerða til að bæta stöðu fjöl­miðla hér á landi.

Illugi sagð­ist hafa kynnt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í rík­is­stjórn og í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins þess efnis að á fót verði settur starfs­hópur með aðild allra flokka, og þeirra sem komi nýir inn eftir kosn­ingar, sem eigi að skila til­lögum að aðgerðum til að bæta stöðu fjöl­miðla eigi síðar en 15. febr­úar næst­kom­andi.

Það var Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem var máls­hefj­andi. Hann spurði Illuga meðal ann­ars um virð­is­auka­skatt á fjöl­miðla, og svar­aði Illugi því til að nú væri virð­is­auka­skattur á fjöl­miðla með því hæsta sem þekk­ist í Evrópu. Hann sagð­ist telja að lausnin á vanda fjöl­miðla væri að minnsta kosti að hluta til að finna í virð­is­auka­skatts­pró­sent­unni, en einnig þyrfti að taka fjöl­miðla­lögin til end­ur­skoð­unar. „Það þarf að upp­færa margt í reglu­verk­inu til að mæta tækninýj­ungum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár