Næstum sex af hverjum tíu vilja Katrínu áfram sem forsætisráðherra

Þrátt fyrir að Vinstri græn hafi tapað fylgi í síð­ustu kosn­ingum, og fengið 12,6 pró­sent atkvæða, vilja lang­flestir lands­menn Katrínu Jak­obs­dóttur áfram sem for­sæt­is­ráð­herra. Kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna vilja frekar að hún leiði en þeirra for­menn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls segj­ast 57,6 pró­sent svar­enda í nýrri könnun Maskínu að þeir vilji Katrínu Jak­obs­dóttur sem næsta for­sæt­is­ráð­herra. Sá flokks­for­maður sem kemur henni næst í vin­sældum er Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, en 9,8 pró­sent kjós­enda segja að þau vilji sjá hann setj­ast í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn. Einungis 7,6 pró­sent aðspurðra vilja sjá Bjarna Bene­dikts­son, for­mann stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, leiða næstu rík­is­stjórn.

Á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna er aug­ljós skortur á skýrum leið­toga hennar en sá fram­bjóð­andi úr þeirra röðum sem mælist með með mestan stuðn­ing í for­sæt­is­ráð­herra­emb­ættið er Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sem 6,3 pró­sent lands­manna vilja sjá gegna því.

Könnunin fór fram dag­anna 27. sept­em­ber til 7. októ­ber, eða eftir að kosn­ingar voru afstaðnar, og voru svar­endur alls 946 tals­ins.

Maskína hefur spurt reglu­lega um hvern fólk vill sjá sem næsta for­sæt­is­ráð­herra og stuðn­ingur við að Katrín gegni því emb­ætti áfram hefur aldrei mælst meiri í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Í könnun sem fram­kvæmd var í síð­asta mán­uði sögðu til að mynda 36 pró­sent að þeir vildu hana í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn.

Þeir sem styðja Bjarna, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem for­sæt­is­ráð­herra hafa hins vegar aldrei verið færri. Frá des­em­ber 2020 og fram í sept­em­ber 2021 sögð­ust á bil­inu 12,2 til 16,7 pró­sent vilja hann sem for­sæt­is­ráð­herra og var hann án und­an­tekn­inga næstur á eftir Katrínu í vin­sældum sam­kvæmt könn­unum Maskínu. Nú hefur Sigurður Ingi hins vegar tekið fram úr honum þrátt fyrir að færri sjái hann fyrir sér sem for­sæt­is­ráð­herra en gerðu það í sept­em­ber.

Sjálfstæðis- og Framsóknarfólk vill frekar Katrínu en eigin formenn

Það kemur lítið á óvart að næstum allir kjós­endur Vinstri grænna sem svör­uðu könn­un­inni vilji að Katrín verði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Meiri athygli vekur að kjós­endur hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja, sem reyna nú að semja um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf, vilja mun frekar sjá hana leiða næstu rík­is­stjórn en eigin flokks­for­menn.

Þannig segj­ast 69 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks, sem fékk 17,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, að þeir vilji Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra en 29 pró­sent vilja Sigurð Inga. Á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks er staðan sú að 58 pró­sent styðja Katrínu, for­mann flokks sem fékk 12,6 pró­sent atkvæða í nýaf­stöðnum kosn­ingum, sem næsta for­sæt­is­ráð­herra en 32 pró­sent nefndu Bjarna, for­mann flokks sem fékk 24,4 pró­sent atkvæða.

Katrín nýtur líka hylli hjá stjórn­ar­and­stöðu­flokkum. Alls segj­ast til að mynda 57 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar að þeir vilji hana sem for­sæt­is­ráð­herra en 29 pró­sent þeirra nefna sinn eigin for­mann, Loga Ein­ars­son. Þeir sem eru minnst hrifnir af Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra eru kjós­endur Mið­flokks­ins, sem beið afhroð í síð­ustu kosn­ingum, rétt náði inn á þing og hefur þegar misst þriðj­ung þing­flokks síns. Einungis 24 pró­sent þeirra vilja að Katrín verði for­sæt­is­ráð­herra en 63 pró­sent segja að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, eigi að setj­ast í þann stól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár