Seðlabankinn: „Sérlega bagalegt“ fyrirkomulag sem ýtir undir hagsveifluna

Seðla­bank­inn varar við „sveiflu­auk­andi reglu“ í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill setja tekju­aukn­ingu rík­is­sjóðs skorður.

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára setur tekju­öflun rík­is­sjóðs skorður með fyr­ir­komu­lagi sem er „sér­lega baga­legt“ og ýtir undir hag­sveiflur, að mati Seðla­bank­ans.

Í fjár­mála­á­ætl­un­inni er kveðið á um að tekjur rík­is­ins, það er skatt­tekjur og annað en vaxta­tekjur og óreglu­legir liðir, skuli ekki aukast umfram vöxt vergrar lands­fram­leiðslu á tíma­bil­inu 2017 til 2021. 

Í umsögn Seðla­banka Íslands til fjár­laga­nefndar Alþingis er full­yrt að þetta fyr­ir­komu­lag auki hag­sveiflur, fremur en að milda þær, sem er and­stætt til­gangi laga um opin­ber fjár­mál, en þau voru einmitt sett með það að mark­miði að draga úr hag­sveiflum og stuðla þannig að efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár