Sex mánuðir og 14 dagar talinn réttur tími fyrir þriðja skammtinn

Dönsk yfir­völd hafa tekið ákvörðun um að bjóða öllum bólu­settum lands­mönnum að fá þriðja skammt­inn þegar sex og hálfur mán­uður hefur liðið frá því að fólk fékk annan skammt­inn.

Danir munu bjóða öllum sem hafa verið bólusettir tvisvar að koma í þriðja skammtinn þegar sex og hálfur mánuður hefur liðið frá öðrum skammtinum.
Danir munu bjóða öllum sem hafa verið bólu­settir tvisvar að koma í þriðja skammt­inn þegar sex og hálfur mán­uður hefur liðið frá öðrum skammt­inum. Mynd: Pexels

Allir Danir munu fá boð um örv­un­ar­skammt, þriðja bólu­efna­skammt­inn gegn COVID-19, sex mán­uðum og 14 dögum eftir að þeir fengu sinn annan bólu­efna­skammt.

Frá þessu greindi heil­brigð­is­ráð­herr­ann Magnus Heunicke í dag, en fjallað er um málið á vef DR.

„Þetta þýðir að í næstu viku munum við senda mörg boð út – aðal­lega til fólks yfir 65 ára aldri og starfs­manna í heil­brigðis- og öldr­un­ar­geir­anum og fólks sem er með laskað ónæm­is­kerfi,“ er haft eftir ráð­herr­anum í frétt DR.

Danir hafa frá því í sept­em­ber verið að bólu­setja íbúa á hjúkr­un­ar­heim­ilum og aðra við­kvæma hópa í þriðja sinn. En nú er búið að taka ákvörðun um að bjóða öllum þriðja skammt­inn og það eftir nákvæm­lega sex mán­uði og fjórtán daga.

Af hverju sex mán­uðir og 14 dagar? spurði frétta­maður DR.

Ráð­herr­ann svar­aði því til að það mat hefði verið í höndum heil­brigð­is­yf­ir­valda. Í máli hans kom fram að í ljós hefði komið að sex mán­uðum eftir að fólk hefði fengið tvo skammta væru dæmi um að virkni efn­anna færi þverr­andi hjá þeim sem eldri eru og þeim sem hefðu laskað ónæm­is­við­bragð.

Útilokar ekki reglulegar bólusetningar

Spurður um hvort hann gæti úti­lokað að öll danska þjóðin yrði fram­vegis bólu­sett gagn­vart COVID-19 með hálfs árs milli­bili sagði ráð­herr­ann að það væri ekki það sem áætl­anir gerðu ráð fyrir. „En við erum við­búin því að allt geti gerst“.

[adspot]

Ekki hafa verið teknar ákvarð­anir um örv­un­ar­skammta fyrir allan almenn­ing hér á landi, en í ágúst­mán­uði var byrjað að bjóða upp á örv­un­ar­skammt með mRNA bólu­efni fyrir fólk yfir 70 ára aldri. Einnig voru þeir sem fengu bólu­efni Janssen boð­aðir í örv­un­ar­skammta.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ræddi við RÚV um örv­un­ar­skammta þann 20. sept­em­ber. Þá sagði hann að óljóst væri hvort þriðji skammt­ur­inn yrði gef­inn öllum almenn­ingi hér á landi.

„[Þ]að er ekki ljóst á þess­ari stundu og engin ákvörðun verið tekin um það. Því það getur verið að ónæmið minnki með tím­anum sem krefj­ist þess að það þurfi að gefa þriðja skammt­inn,“ sagði Þórólfur Guðnason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár