Alls ekki kvöð að sinna málaflokki hælisleitenda

Reykja­nes­bær er eitt þriggja sveit­ar­fé­laga sem er með þjón­ustu­sam­ing við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og segir for­maður vel­ferð­ar­ráðs bæj­ar­ins að allir þurfi að huga betur að sál­gæslu og þátt­töku þess­ara ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu.

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær Mynd: Wiki Commons

Reykja­nes­bær hefur boð­ist til að kynna reynslu sína af þón­ustu­samn­ingum við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fyrir öðrum sveit­ar­fé­lögum en þeir hafa gef­ist vel í bænum. Útlend­inga­stofnun hyggst ræða það við dóms­mála­ráðu­neytið hvernig best megi standa að slíkri kynn­ingu fyrir önnur sveit­ar­fé­lög en ekki er komin tíma­setn­ing á hana.

[links]Útlend­inga­stofnun sendi bréf um miðjan mars síð­ast­lið­inn til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu til að kanna áhuga þeirra á að gera samn­ing við stofn­un­ina um þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sam­bæri­lega við þá sem stofn­unin hefur nú þegar gert við Reykja­vík­ur­borg, Reykja­nesbæ og Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Í svari Útlend­inga­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ekk­ert þeirra sveit­ar­fé­laga sem svarað hefur erind­inu taldi sig að svo stöddu í stakk búið til að bæt­ast í hóp sveit­ar­fé­laga sem veita umsækj­endum um vernd þjón­ustu en mörg þeirra hafi þó lýst yfir jákvæðri afstöðu til verk­efn­is­ins.

Ólíkir einstaklingar með ólíkar þarfir

Halldóra Fríða Þor­valds­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar, segir í sam­tali við Kjarnann að mik­il­vægt sé að sveit­ar­fé­lög geri þessa þjón­ustu­samn­inga við Útlend­inga­stofnun. „Það er fyrst og fremst til að tryggja að hægt sé að mæta ein­stak­ling­unum í nærum­hverfi þeirra og það gerum við með því að hafa dreif­ing­una betri. Þetta eru ólíkir ein­stak­lingar með ólíkar þarfir.“

Hún telur að sveit­ar­fé­lögin verði að sjá ávinn­ing þess að gera slíka samn­inga en að hennar sögn er hann mik­ill bæði fyrir umsækj­end­urna sjálfa og sam­fé­lagið. „Þessir ein­stak­lingar hafa nefni­lega gefið okkur mikið.“

Mikill samfélagslegur ávinningur

Halldóra veltir því fyrir sér hvort heppi­legt sé að tugir, jafn­vel hund­ruð, manna séu í einu eða tveimur húsum, eins og raunin er í Reykja­nesbæ á vegum Útlend­inga­stofn­unar. „Með því að þjón­usta minni hópa þá eru meiri líkur á að þörfum ein­stak­ling­anna sé mætt.“ Hún bendir á að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem búa í þessum tveimur húsum séu ekki hluti af þjón­ustu­sam­ingi við Reykja­nesbæ og því geti þeir ekki leitað þjón­ustu til sveit­ar­fé­lags­ins.

„Við fengum full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til fundar við okkur og buðum fram krafta okkar til að móta skýr­ari stefnu. Okkur hefur gengið vel hér; við erum með margar fjöl­skyldur þar sem börnin ganga í skóla og leik­skóla og við reynum að sinna þess­ari þjón­ustu eins vel og við getum,“ segir Halldóra og bætir því við að þau sjái mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing að hafa hæl­is­leit­endur í bænum. „Við lærum líka af þeim og það mynd­ast vin­átta og sam­kennd. Við græðum öll á þessu,“ segir hún.

Samkvæmt Halldóru hefur dóms­mála­ráðu­neytið tekið vel í til­lögur þeirra og von­ast hún til að það muni leita til þeirra í náinni fram­tíð. „Við þurfum öll að huga betur að sál­gæslu og þátt­töku ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu. Það er alls ekki kvöð að sinna þessum mála­flokki eða upp­fylla þjón­ustu­samn­ing­inn,“ segir hún.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár