Klaustursmálið „mjög ósanngjarnt“ fyrir Miðflokkinn

Ólafur Ísleifsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Sæmundsson fara af þingi í haust. Þorsteinn segir ástæðu þess að hann sé ekki á lista vera ákall eftir konum. Stofn­meðlimur flokksins segir Klausturs­málið enn hafa gríðarleg áhrif á flokkinn en þeir þingmenn sem þar sátu eru allir á framboðs­lista fyrir utan Ólaf.

Tveir af níu þing­mönnum Miðflokksins eru ekki á framboðs­listum flokksins til alþingis­kosninga í haust. Það eru þeir Ólafur Ísleifsson og Þorsteinn Sæmundsson. Gunnar Bragi Sveinsson fær heiðurs­sæti, en snýr ekki aftur á þing.

Ólafur er þannig eini þing­maðurinn sem var staddur á Klausturbar þann 20. nóvember 2018, sem ekki fær sæti á lista flokksins fyrir komandi kosningar þrátt fyrir að hafa sýnt því áhuga. Flokkurinn mælist nú með um 6 til 7 prósent fylgi í skoðana­könnunum, töluvert frá fylgi hans í síðustu kosningum sem var tæp 11 prósent og skilaði sjö þing­mönnum.

Hólmgeir Karlsson, einn stofn­meðlima flokksins, sem nú hefur sagt upp störfum fyrir flokkinn vegna óánægju með hlut kvenna þar, segir Klausturs­málið enn hafa „gríðarleg áhrif á flokkinn“ og að með því að stilla upp konum á listana sé flokkurinn að segja að þau viðhorf og gildi sem komu fram á Klausturbar endur­spegli ekki viðhorf flokksins.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár