Hvað gerði þingmaðurinn áður?

Í sögu­legu sam­hengi er lík­leg­ast að þing­menn hafi verið stjórn­endur áður en þeir tóku sæti á Alþingi.

Þingmenn hafa oftast verið stjórnendur samkvæmt gagnagreiningu Bærings Steinþórssonar.
Þingmenn hafa oft­ast verið stjórn­endur sam­kvæmt gagna­grein­ingu Bærings Stein­þórs­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mestar líkur eru á því að þing­maður hafi haft stjórn­un­ar­starf að aðal­starfi áður en hann tók sæti á Alþingi, sam­kvæmt sjálf­virkri grein­ingu á fyrri störfum þing­manna.

Bæring Stein­þórs­son hefur skrifað for­rit sem tekur saman upp­lýs­ingar af vef Alþingis um fyrri störf þing­manna á Alþingi ár hvert. Með því að gefa sér ákveðnar for­sendur seg­ist hann geta áætlað hvað þing­menn höfðu að aðal­starfi áður en þeir urðu þing­menn.

Gagna­safnið nær frá árinu 1875 til 2016.

Upp­lýs­ing­arnar sem stuðst er við eru skráðar í ævi­á­gripum þing­manna á vef Alþingis. Forrit Bærings sækir þessar upp­lýs­ingar, greinir þær eftir árum og telur svo hvaða störfum þing­menn höfðu gengt ár hvert.

„Þetta var stutt verk­efni, ein kvöld­stund,“ skrifar Bæring í tölvu­pósti til Kjarnans. „[Ég] byrj­aði á þessu eftir að hafa verið tagg­aður í þessum þræði, og mark­miðið er, eins og stendur í lýs­ing­unni á Github, að koma með ágiskun um aðal­starf þing­manns fyrir þing­mennsku. Fyrst og fremst til gam­ans gert.“

Bæring er ekki ókunn­ugur upp­lýs­ingum af vef Alþingis því áður hefur hann gert vef­inn Þingmenn.is þar sem sjá má fram­lag hvers þing­manns á síð­asta kjör­tíma­bili til þing­starf­anna.

Stjórnendur komu oftast fyrir

Við gagna­vinnsl­una þarf Bæring að gefa sér ýmsar for­sendur áður en hægt er að áætla hvert fyrra starf þing­manns hefur verið. „Það hvernig aðal­starf þing­manns er áætlað er að text­inn sem er les­inn frá alþingi.is er yfir­far­inn og leitað að ákvörðum lyk­il­orðum sem ég valdi úr gögn­unum þegar ég var að vinna úr þeim.“

Starfs­heiti eru flokkuð í stærri breytur í grein­ing­unni. Blaða­menn, frétta­menn, útgef­endur eða þátta­stjórn­endur flokk­ast þess vegna allir sem fjöl­miðla­menn í grein­ing­unni. Öll lyk­il­orðin sem leitað var að í ævi­á­gripum þing­manna má finna í sér­stakri skrá á Github-svæð­inu.

Flokk­arnir sem raðað er eftir eru tíu:

  • Opinber stjórn­sýsla
  • Lögmaður
  • Íþrótta­maður
  • Skrif­stofu­starf með sér­menntun
  • Kennari
  • Stjórn­mála­maður
  • Verka­maður
  • Fjöl­miðla­maður Stjórn­andi
  • Ekki vitað

Forritið virkar þannig að það byrjar að leita að þeim störfum sem falla undir hærra sett störf. „Þar sem starfs­fer­ill fer yfir­leitt rísandi með tím­anum er betra að byrja að athuga með „hærri“ enda spectrumsins og athuga fyrst með stjórn­mála­mann,“ skrifar Bæring. Hann vill taka fram að með því sé hann ekki að segja að störf stjórn­mála­manna séu merki­legri en störf verka­manna.

Sé tekið dæmi af lýs­ingu á fyrri störfum þing­manns af handa­hófi: Starfs­maður við kaup­fé­lagið Dagsbrún í Ólafsvík 1943-1947, kaup­fé­lags­stjóri 1947-1962. Skrif­stofu­stjóri Ólafs­vík­ur­hrepps 1962-1966, odd­viti og síðan sveit­ar­stjóri 1966-1978. Skipaður 26. maí 1983 félags­mála­ráð­herra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí.

Forritið skimar þennan texta og dregur álykt­anir. „Já, þarna sé ég orðið sveit­ar­stjóri / odd­viti og ætla því að áætla að þessi þing­maður hafi verið stjórn­mála­maður,“ skrifar Bæring.

Fjöldi þing­manna eftir fyrri störfum í upp­hafi hvers árs 1875 til 2016 má sjá á mynd­unum hér að neðan. Tíðnitöfl­urnar má svo finna á Github-svæði Bærings.

Kóðinn öllum opinn

Kóðinn er opinn öllum sem vilja skoða á Github-svæði Bærings. Hann segir að öllum sé frjálst að koma með ábend­ingar um hvað mætti betur fara.

„Að lokum langar mig líka að segja að ekk­ert af þessu, hvorki þetta verk­efni né þing­menn.is, væri hægt nema vegna fólks­ins sem vinnur að vef Alþingis. Mér finnst að það eigi alveg skilið credit fyrir sína vinnu. Gott dæmi um það hve auð­velt er að nálg­ast gögn frá þeim er þessi XML þjón­usta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár