Biðraðir og brjálað stuð á Secret Solstice 2016

Thom Yorke tróð um á Secret Solstice ásamt Radiohead.
Thom Yorke tróð um á Secret Solstice ásamt Radi­ohead.

Tón­list­ar­há­tíðin Secret Solstice var haldin um sein­ustu helgi í Laug­ar­dalnum eins og flestir vita. Þetta er í þriðja skiptið sem hátíðin er haldin og hún hefur vaxið umtals­vert í hvert skipti. Í þetta skipti var boðið upp á fjög­urra daga veislu með um 170 tón­list­ar­at­riðum á 7 sviðum. Þar komu fram bæði íslenskar og erlendar hljóm­sveitir, bæði bíl­skúrs­bönd og heims­þekktir tón­list­ar­menn. Fyrir margra hluta sakir var Secret Solstice 2016 ógleym­an­leg lífs­reynsla.

Fimmtudagur

Ekki mjög secret

Þegar mætt var á fyrsta kvöld hátíð­ar­innar var aug­ljóst að hún yrði tölu­vert fjöl­menn­ari og stærri en árið áður. Hátíð­ar­gestir voru um 15.000 tals­ins sem er fjölgun um ca. 40% frá árinu áður en þá var þetta þriggja daga hátíð en ekki fjög­urra. Vaxt­ar­verkirnir gerðu strax vart við sig á opn­un­ar­kvöld­inu þar sem mikil röð mynd­að­ist hjá fólki sem þurfti að skipta mið­unum sínum fyrir arm­bönd til að kom­ast inn á svæðið. Það var reyndar mögu­leiki að skipta fyrr í vik­unni en miðað við fjöld­ann í röð­inni höfðu greini­lega ekki margir áttað sig á því. Í þess­ari röð stóð maður í um klukku­tíma þar sem ein­ungis fjórir afgreiðslu­básar voru til staðar. Þar með missti maður af rapp­ar­anum Gísla Pálma sem gerði garð­inn frægan á hátíð­inni fyrir ári síðan með því að taka Jackass stjörn­una Bam Margera í karp­húsið. Góður rómur var gerður að frammi­stöðu hans á hátíð­inni en hvað um það. Maður mun fá ótal tæki­færi á að sjá hann í fram­tíð­inni.

Röðin langa hindr­aði mann ekki frá því að sjá „leynig­est­ina“. Leynd­inni miklu hafði reyndar verið aflétt nokkru fyrr ólíkt árinu áður þegar Busta Rhymes kom fram á tón­leikum sem verður helst minnst fyrir geð­vonsku rapp­ar­ans. Í þetta sinn voru leynig­est­irnir hinar geð­þekku Sister Sledge frá Fíla­delf­íu­borg sem hafa plægt diskóak­ur­inn í um það bil hálfa öld. Sledge syst­urnar voru upp­runa­lega fjórar (Debbie, Joni, Kim og Kathy) og á hátindi fer­ils­ins í kringum árið 1980. Nú eru aðeins Debbie og Joni eftir en með þeim mun yngri söng­kona, Tanya Ti-et. Sister Sledge voru í bana­stuði og áhorf­endur virt­ust taka þeim vel þrátt fyrir marg­falt kyn­slóða­bil. Sam­hæfðar dans­hreyf­ing­arnar voru augna­yndi og gaman að fá að heyra diskó­slag­ara á borð við He´s the Greatest Dancer og We Are Family. Syst­urnar komu manni meira að segja á óvart með því að spila ábreiðu af Chic lag­inu Good Times og splæsa því saman við Sug­ar­hill Gang smell­inn Rapper´s Delight sem er almennt talið fyrsta rapp­lag sög­unnar. Sem betur fer létu syst­urnar Tönyu um rappið, annað hefði orðið vand­ræða­legt. Hljóð­færa­leik­ar­arnir sem spil­uðu undir voru allir ein­stak­lega færir og þá sér­stak­lega bassa­leik­ar­inn. Allir fengu þeir að taka löng sóló þegar þeir voru kynntir til leiks. Heilt yfir voru þetta ákaf­lega nota­legir tón­leikar sem hlýj­uðu manni um hjarta­ræt­urnar. Franski tölvu­popp­ar­inn St Germain átti að fylgja í kjöl­farið en hann ein­fald­lega skróp­aði í flugið. Daníel Ágúst og félagar í GusGus hlupu í skarðið fyrir hann tón­leika­gestum til mik­illar ánægju.

Föstudagur

Kóngarnir í Höllinni

Það var búið að gefa það út að stærsta hljóm­sveit hátíð­ar­innar, hinir bresku Radi­ohead, myndi spila inn­an­húss í Jöt­unn­heimum (nýju Laug­ar­dals­höll­inni). Vegna stærðar húss­ins og örygg­is­krafna hljóm­sveit­ar­innar var því ljóst að ein­ungis um 11-12 þús­und manns myndu kom­ast á þá tón­leika, þ.e. um 80% hátíð­ar­gesta. Þegar maður mætti um sex­leytið var strax komin tölu­verð röð fyrir utan höll­ina og því ekk­ert annað í boði en að tryggja sér pláss. Þar með fuku áhuga­verðir tón­leikar með íslensku rapp­hljóm­sveit­inni Úlfi Úlfi og breska plötu­snúðnum Goldie, sem var tengda­sonur Íslands fyrir um 20 árum síðan. Áhuginn var aug­ljós­lega mik­ill á svæð­inu fyrir tón­leikum Radi­ohead og röðin lengd­ist og lengd­ist. Þegar fólki var hleypt inn á níunda tím­anum mátti sjá röð­ina hlykkj­ast um allt hátíð­ar­svæðið eins og Mið­garðsorm­inn. Ekki var nóg með það því að um tíma náði röðin út fyrir svæðið og inn á Reykja­braut. Aðstand­endur hátíð­ar­innar höfðu biðlað til fólks að mæta tím­an­lega en ekki urðu allir við því og mátti skynja umtals­verða reiði þeirra sem ekki komust inn eða misstu af bróð­ur­part­inum af tón­leik­unum.

Áður en Radi­ohead stigu á svið lék íslenska rokk­hljóm­sveitin Fufanu í Jöt­unn­heimum. Stans­laust bætt­ist í sal­inn og Fufanu liðar glaðir með það. Þetta hefur senni­lega verið þeirra stærsta stund á ferl­inum. Eftir því sem fólkið hrann­að­ist inn jókst hit­inn í salnum, sumir töldu hann jafn­vel óbæri­legan. Verð­launin fyrir röð­ina löngu og hit­ann voru þó frá­bærir tón­leikar hinnar 30 ára gömlu hljóm­sveitar. Einn gestur komst svo skemmti­lega að orði: “Þeir ein­fald­lega kunna þetta”. Radi­ohead voru klapp­aðir upp í tvígang og tón­leik­arnir stóðu yfir í um tvær og hálfa klukku­stund. Þetta var mikið sjón­ar­spil með flott­ari ljósa-og video sýn­ingu. Á frum­leik­ann hefur aldrei skort hjá band­inu sem gripu í ýmis hljóð­færi við ákveðin tæki­færi. Söngv­ar­inn Thom Yorke sýndi þarna að hann er einn af merki­leg­ustu tón­list­ar­mönnum sam­tím­ans. Fyrstu fimm lögin voru öll af nýj­ustu plötu sveit­ar­innar A Moon Shaped Pool. En svo fóru að heyr­ast kunn­ug­legir slag­arar eins og My Iron Lung og No Sur­prises frá tíunda ára­tugnum sem er óum­deil­an­lega þeirra mesta frama­tíma­bil. Meiri­hlut­inn af sett­inu var þó helg­aður nýrri lögum. Rús­ín­urnar voru þó í pyslu­end­anum. Í upp­klappi númer eitt mátti heyra meist­ara­verkið Paranoid Android og í upp­klappi númer tvö kom svo eft­ir­læti flestra, Creep.

Laugardagur

Rokk, rapp, rok og rigning

Hip-hop hefur verið áber­andi á Secret Solstice og þetta ár er engin und­an­tekn­ing. Á laug­ar­dags­kvöld­inu mátti glöggt heyra grósk­una í íslensku rappi. Þar komu m.a. fram Reykja­vík­ur­dætur, Emmsjé Gauti, Herra Hnetu­smjör og hinir gam­al­reyndu XXX Rottweiler Hundar. Stærsta númer kvölds­ins var þó þung­arokks­hljóm­sveitin Deftones frá Kali­forníu. Deftones eiga rætur sínar í hinni svoköll­uðu nu-metal hreyf­ingu á seinni hluta tíunda ára­tug­ar­ins. Þeir höfðu þó alltaf víð­ari skírskotun, töld­ust list­rænni og melódísk­ari en sam­ferða­menn þeirra í hreyf­ing­unni. Sú hlið hefur ein­ungis ágerst hjá hljóm­sveit­inni í seinni tíð og það hefur haldið henni á floti. Helsti styrkur hljóm­sveit­ar­innar hefur ávallt verið söngv­ar­inn og front­mað­ur­inn Chino Moreno. Hann er ekki ein­ungis meðal fremstu söngv­ara rokktón­list­ar­innar heldur kann hann vel þá list að halda uppi stemn­ingu á tón­leikum og vera í mik­illi nær­veru við áhorf­endur. Hann sýndi það glöggt á Secret Solstice. Moreno heill­aði fólk upp úr skónum og var hrein­lega allt í öllu á tón­leik­unum. Deftones spil­uðu góða blöndu af eldri og nýrri lögum en þó í köflum, 2-3 lög af hverri plötu í röð. Það gaf tón­leik­unum nokkuð sér­stakan keim, líkt og þetta væri ferða­lag í gegnum fer­il­inn hjá þeim. Upp­lifunin af tón­leik­unum var þó ekki galla­laus. Það var hrein­lega afleitt veður, mikil rign­ing og tölu­vert rok. Það orsak­aði senni­lega nokkra fækkun á tón­leik­unum þegar á leið. Einnig kvart­aði fólk yfir lélegu hljóði nálægt svið­inu, aftar var það mun betra. Þetta hafði þó engin áhrif á Chino Moreno sem var í ess­inu sínu. Hápunktur tón­leik­ana var þegar hann til­eink­aði hinu nýlátna popp­goði Prince lagið Prince.

Það var hálf­gerð synd að tón­leikar Deftones á Val­hallar-svið­inu hafi skar­ast að nokkru leyti við tón­leika rapp­dúós­ins M.O.P. frá Brooklyn sem fóru fram á öllu minna sviði sem nefnd­ist Gimli. Þar var smekk­fullt af fólki í bil­uðum ham. Meðlimir M.O.P., þeir Lil Fame og Billy Danze, skipt­ust á að skjalla lýð­inn og halda uppi miklu stuði. Aldrei var stoppað heldur skellti plötu­snúður þeirra á ýmsum vel þekktum smellum milli þeirra eigin laga. Það mátti heyra allt milli him­ins og jarðar eins og t.d. Three Little Birds með Bob Marley, Smells Like Teen Spirit með Nirvana og 99 Problems með Ice-T. M.O.P.-liðar voru ánægðir með við­tök­urnar og sögðu við áhorf­endur „Við erum hip-hop. Þið eruð hip-hop“. Svo var tón­leik­unum lokað með þeirra þekktasta lagi Ante Up og allt hrein­lega tryllt­ist. Þetta var senni­lega eitt best heppn­aða gigg hátíð­ar­innar.

Sunnudagur

Biðarinnar virði

Ýmislegt var á dag­skránni á sunnu­deg­inum en þegar maður mætti um 15:30 blöstu við manni þau tíð­indi að tón­leikar suður afrísku rapp­hljóm­sveit­ar­innar Die Antwoord myndu frest­ast vegna flug­tafa. Ekki bara það heldur neydd­ust aðstand­endur hátíð­ar­innar til að færa tón­leik­ana af Val­hallar-svið­inu inn á svið sem nefnd­ist Hel (gamla Laug­ar­dals­höllin). Hel hafði hingað til verið notuð undir næt­ur­tón­leika ýmissa plötu­snúða við góðan róm en ljóst var að hún myndi aldrei geta hýst þann fjölda sem vildi sjá Die Antwoord heldur ein­ungis á bil­inu 5-6 þús­und manns. Mikill fjöldi hátíð­ar­gesta höfðu lýst því yfir að þessir tón­leikar væru helsta eða jafn­vel eina ástæðan fyrir komu þeirra. Því var lítið annað að gera en að ná sér í vistir, góðu sæti í röð­inni og eyða batt­er­í­inu í sím­anum sínum. Fjöldi ann­arra athygl­is­verðra tón­leika voru í boði þennan dag, svo sem með krútt-sveit­unum Ama­badama og Mammút, írsku söng­kon­unni Róisín Murphy og íslensku ofur­grúpp­unni Of Monsters and Men. En allt slíkt yrði að víkja ef maður ætl­aði að vera öruggur um að sjá tón­leik­ana í Hel. Þetta orsak­aði mikla kergju hjá hátíð­ar­gestum sem höfðu margir ekki lyst á margra tíma bið­röð, sér­stak­lega ekki eftir að hafa staðið lengi í áður­nefndum röðum. Aðstand­endur Secret Solstice gátu hins vegar ekki fært tón­leik­ana, sem áttu að fara fram á Val­hall­ar­svið­inu, aftar vegna reglna um almanna­frið og eng­inn tími var til að byggja nýtt svið í Jöt­unn­heimum. Að koma Die Antwoord fyrir í Hel var því ill­skársti kost­ur­inn. Húsið var opnað 21:30 en ekki hleypt inn í sal­inn fyrr en klukku­tíma síðar. Þetta olli mik­illi örtröð, hita og pirr­ingi í and­dyr­inu og manni stóð hrein­lega ekki á sama í ljósi þess að það voru lítil börn á svæð­inu. Svo var opnað og fólk byrj­aði að streyma inn í sal­inn og stúk­una, hver fer­senti­meter var nýttur.

Tón­leik­arnir sjálfir, sem hófust loks klukkan 23:00, voru upp­lifun sem fáir munu gleyma. Síðan að tríóið var stofnað árið 2008 hefur frægð­ar­sól þeirra risið hratt og þá helst vegna frum­leika í mynd­banda­gerð og eft­ir­tekt­ar­verðrar frammi­stöðu á sviði. Mann­fjöld­inn í Hel gat varla hamið sig þegar þau stigu loks á svið, plötu­snúð­ur­inn Dj Hi-Tek, rapp­ar­inn Ninja og eft­ir­læti flestra Yolandi Visser með sína skræku rödd. Auk þeirra voru tveir dans­arar með í för. Salurinn hrein­lega gekk til undir teknóskotnu rapp­inu. Ninja átti í mestu basli með að halda sig inn á svið­inu og fleygði sér ítrekað út í mann­hafið. Yolandi gat varla hreyft sig án þess að lýð­ur­inn ærð­ist. Þar sem bandið er mjög ungt rúm­uð­ust allir helstu smell­irnir innan tón­leik­anna, s.s. Ugly Boy, Baby´s on Fire, Fatty Boom Boom og Pitbull Terrier. Hljóm­sveitin flutti hins vegar ein­ungis eitt lag í upp­klappi, lag­inu sem kom þeim á kortið Enter the Ninja. Fyrir utan frammi­stöðu þeirra sjálfra voru tón­leik­arnir heil­mikið sjón­ar­spil. Ljósa og video sýn­ing­arnar voru ein­stakar og bún­inga­skipti flytj­end­anna ör. Áhorf­endur voru í skýj­unum og margir full­yrtu að þetta væru bestu tón­leikar sem þeir hefðu nokkurn tím­ann séð. Eftir á að hyggja fylli­lega þess virði að bíða í sjö klukku­tíma í röð fyrir þar sem maður hlaut ekki var­an­legan skaða af. Þegar út var komið var röðin ennþá mjög löng og reiði tölu­verð í fólk­inu. Á einum tíma­punkti þurfti lög­regla að hafa afskipti af röð­inni.

Framtíð Secret Solstice

Secret Solstice 2016 gekk aug­ljós­lega ekki áfalla­laust fyrir sig og gagn­rýn­is­raddir hafa verið háværar. Fólk hefur kvartað undan skipu­lagi atriða, löngum bið­röðum, mik­illi kanna­bis­neyslu á svæð­inu, fram­komu við sjálf­boða­liða, litlu upp­lýs­inga­flæði og fleiru. Sumu er vissu­lega hægt að kenna aðstand­endum um en annað er hrein­lega óvið­ráð­an­legt. Hátíðin er ung og hefur senni­lega vaxið allt of hratt. Aðstand­end­urnir við­ur­kenna það sem miður fór, hafa beðist afsök­unar á því og segj­ast munu læra af reynsl­unni. Margir hafa þó lýst yfir von­brigðum sýnum og hyggj­ast ekki sækja hátíð­ina í fram­tíð­inni.

Það hefur þó verið ein­blínt um of á það sem miður fór á hátíð­inni og minna talað um það sem var gott, þ.e. tón­listin. Tón­leik­arnir voru flestir afbragð og sumir munu lifa með manni um ókomna tíð. Það eru for­rétt­indi að hafa svo stóra tón­leika­há­tíð á besta tíma í hjarta Reykja­víkur og á mjög við­ráð­an­legu verði. Fjöl­margir erlendir gestir sækja hátíð­ina og hún vekur eft­ir­tekt um allan heim. Umræðan hefur að mestu leyti snú­ist um þær erlendu stór­hljóm­sveitir sem hafa komið fram en ekki má gleyma þeim ótal íslensku hljóm­sveitum sem koma fram fyrir mik­inn fjölda og fá tæki­færi til að kynna sig fyrir umheim­inum. Það yrði mikil synd ef hátíðin myndi leggj­ast af en aðstand­endur mættu draga lær­dóm af hátíð­inni í ár og mögulga smækka hana fyrir næsta ár eða end­ur­skipu­leggja hana. Secret Solstice þarf ekki að vera Hró­arskelda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár