Andersson sögð vera orðin ákveðin í að leiða Svíþjóð inn í Atlantshafsbandalagið

Svenska Dag­bla­det segir frá því í dag Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra vilji að Svíar gangi í Atl­ants­hafs­banda­lagið í sumar. Sanna Marin for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands segir nokkrar vikur í að Finnar kynni ákvörðun sína um aðild að banda­lag­inu.

Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands í Stokkhólmi í morgun.
Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og Sanna Marin for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands í Stokk­hólmi í morgun. Mynd: EPA

Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins er sögð ákveðin í því að ganga frá aðild lands­ins að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu í sumar, sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum Svenska Dag­bla­det, sem segir frá þessu í dag.

Síðan inn­rás Rússa í Úkraínu hófst hefur And­ers­son ekki úti­lokað mögu­leik­ann á því að Svíþjóð gangi í banda­lagið, en á vett­vangi rík­is­stjórnar hennar stendur nú yfir grein­ing á stefnu lands­ins í öryggis- og varn­ar­málum, sem á að klár­ast fyrir lok maí.

Samkvæmt frétt Svenska Dag­bla­det, sem byggir á upp­lýs­ingum frá heim­ild­ar­mönnum innan Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, er það nú orðið mark­mið And­ers­son að Svíþjóð gangi í NATÓ á leið­toga­fundi banda­lags­ins sem fram fer í Madríd í lok júní.

Afton­bla­det greinir sömu­leiðis frá því að Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­ur­inn, sem sögu­lega hefur lagst gegn aðild að banda­lag­inu, hafi boðað til sér­staks fundar eftir rúman mánuð til þess að fjalla um vend­ingar í örygg­is­málum og þykir lík­legt að þar muni And­ers­son leita stuðn­ings flokks­fé­laga við inn­göngu Sví­þjóðar í banda­lagið.

Ákvörðun Finnlands um aðild innan nokkra vikna

Þessar fregnir ber­ast á sama degi og Sanna Marin for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands er í Stokk­hólmi til þess að funda með And­ers­son, en í Finn­landi rétt eins og í Svíþjóð hefur umræða um inn­göngu í Atl­ants­hafs­banda­lagið verið hávær síðan að Rússar létu til skarar skríða gegn Úkraínu í lok febr­ú­ar­mán­aðar.

Í báðum ríkjum hefur almenn­ings­á­litið til aðildar að Atl­ants­haf­banda­lag­inu snú­ist frá því að stríðið hófst, á þann veg að fleiri eru nú hlynntir aðild að NATÓ en mót­fallnir.

[adspot]

Á blaða­manna­fundi sem þær Marin og And­ers­son héldu sam­eig­in­lega í Stokk­hólmi í dag sagði Marin að ein­ungis nokkrar vikur væru í að finnska stjórnin myndi taka ákvörðun sína um aðild að NATÓ, en í dag veitir finnska rík­is­stjórnin þing­inu skýrslu um mat sitt á því hvernig öryggis- og varn­ar­málaum­hverfi Finn­lands, sem landamæra­ríkis Rúss­lands, hefur breyst í kjöl­far inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

Samkvæmt finnskum fjöl­miðlum er í skýrsl­unni ekki tekin afstaða til aðildar að NATÓ, með eða á móti, heldur á hún að nýt­ast sem umræðu­grund­völlur fyrir þingið. Kostir og gallar aðildar eru sagðir tíund­aðir í plagg­inu.

Muni eiga náið samtal um framhaldið

Samkvæmt frétt á vef sænska rík­is­sjón­varps­ins SVT sagði Marin við fjöl­miðla­menn á blaða­manna­fundi í morgun að það væri engin við­líka örygg­is­trygg­ing eins og aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, en sam­kvæmt fimmtu grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans skal telja vopn­aða árás á einn með­lim banda­lags­ins sem árás á þá alla.

Marin sagði enn­fremur að Finnar og Svíar myndu taka sjálf­stæðar ákvarð­anir um fram­haldið, en þó í nánu sam­tali.

„Við munum eiga náið sam­tal og eiga bein­skeyttar og heið­ar­legar sam­ræður. Það er mik­il­vægt að vita hvert við erum að stefna,“ hefur SVT eftir Marin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár