Heimild verði til að skikka alla frá áhættulöndum í sóttvarnahús

Rík­is­stjórnin leggur til laga­breyt­ingu sem felur í sér að heim­ilt verði að skikka alla frá áhættu­svæðum í sótt­varn­ar­hús við kom­una til lands­ins og einnig að hægt verði að banna ferða­lög frá löndum þar sem far­ald­ur­inn geisar hvað mest.

„Við erum öll að von­ast til þess að end­ur­heimta venju­legt líf sem fyrst,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra við upp­haf blaða­manna­fundar rík­is­stjórn­ar­innar í Hörpu í dag. Hann sagði það mikil von­brigði að afar fámennur hópur geti valdið jafn­mik­illi röskun á sam­fé­lag­inu og raun ber vitni. „Við teljum því nauð­syn­legt að bregð­ast við.“

Við­brögðin, sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti, fel­ast m.a. í því að seinka inn­leið­ingu lita­kóð­un­ar­kerfis við landa­mærin um mánuð eða til 1. júní. Þá er stefnt að því að um 65 pró­sent full­orð­inna lands­manna verði komin með að minnsta kosti fyrri sprautu bólu­efnis. Á stuttri glæru­kynn­ingu sem Katrín hélt kom fram að öllum tak­mörk­unum inn­an­lands verður aflétt þegar búið verður að verja stærsta hluta full­orð­inna með að minnsta kosti fyrri skammti af bólu­efni. Ekki kom fram hvaða fjölda er þar miðað við.

[links]Katrín nefndi í erindi sínu að mjög erfitt væri að tryggja alfarið að veiran leki ekki yfir landa­mærin. Í raun hefðu aðgerðir á landa­mærum verið hertar frá því að þær voru fyrst settar í ágúst og þær væru skil­virkar og góðar. Katrín sagði eðli­legt, eftir það sem gerst hefur und­an­farna daga, að kallað sé eftir því að varnir séu treystar á landa­mærum. Á meðan við værum að ná ákveðnum mark­miðum í bólu­setn­ingum væri mik­il­vægt að herða tak­mark­anir á landa­mærum.

Við upp­sveiflu í far­aldr­inum nú verði brugð­ist með laga­frum­vörpum sem ann­ars vegar heim­ila sótt­varna­lækni tíma­bundið að skikka alla sem eru að koma frá löndum þar sem nýgengi smita er meira en þús­und á hverja 100 þús­und íbúa í sótt­varn­ar­hús. Engar und­an­þágur verði veittar frá því. Sömu­leiðis verði dvöl í sótt­varna­húsi meg­in­reglan fyrir þá sem eru að koma frá löndum þar sem nýgengið er 750-1000 á hverja 100 þús­und íbúa, en geti við­kom­andi sýnt fram á við­un­andi aðstæður til að dvelja á meðan á sótt­kví stendur, sé hægt að veita und­an­þágu frá dvöl í sótt­varna­húsi.

Þá mun dóms­mála­ráð­herra, sam­kvæmt frum­varpi, fá heim­ild til að banna ónauð­syn­legar ferðir hingað til lands frá löndum þar sem nýgengi smita er umfram 1000 á hverja 100 þús­und íbúa. Með þessu tvennu, skyldu­dvöl í sótt­varna­húsi ann­ars vegar og bann við ónauð­syn­legum ferðum hins vegar, von­ast Katrín til að betur sé hægt að ná utan um stöð­una heldur en ef ein­ungis væri not­ast við sótt­varna­hús.

Sagði Katrín að sam­hliða bólu­setn­ingum verði hægt að breyta fyr­ir­komu­lag­inu hægt og bít­andi með útgáfu viku­legs áhættu­mats. Inn­leið­ingu lita­kóð­un­ar­kerfis á landa­mær­unum, sem átti að vera grunn­ur­inn að ákveð­inni aflétt­ingu reglna á landa­mærum, verður hins vegar frestað um mánuð.

Áfram er fyr­ir­hugað að byggja á lita­kóð­un­ar­kerfi ESB en einnig að gefa út íslenskt, svæð­is­bundið áhættu­mat frá og með 7. maí. Óbreyttar reglur munu hins vegar gilda á landa­mær­unum, um öll lönd, til 1. júní en áfram munu þeir sem eru bólu­settir eða hafa fengið COVID sæta einni skimun.

Katrín sagði fulla sam­stöðu um aðgerð­irnar innan rík­is­stjórn­ar­innar og vænti þess að laga­frum­vörp­unum yrði dreift á Alþingi þegar í kvöld. Með þessu væri verið að stíga var­færin skref, „ann­ars vegar að herða á landa­mær­unum tíma­bundið á meðan við komumst fyrir vind í bólu­setn­ingum og hins vegar með raun­hæfa áætlun um það hvernig við getum stigið skref inn í eðli­legt sam­fé­lag“.

Hér má lesa til­kynn­ingu stjórn­valda um hinar hertu aðgerðir á landa­mærum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár