Karolina Fund: Hjaltalín – Ný plata á vínyl

Nýir tímar kalla á ný verk­efni. Hljóm­sveitin Hjalta­lín vinnur nú að sinni fjórðu breið­skífu.

Hjaltalín
Hjalta­lín Mynd: Aðsend mynd

Hljóm­sveitin Hjalta­lín vinnur nú hörðum höndum að því að leggja loka­hönd á fjórðu breið­skífu sína, sem hefur verið í vinnslu í meira en fimm ár. Auk þess heldur hún tón­leika í Eldborg, þann 7. sept­em­ber næst­kom­andi. Liður í þessu er fjár­mögnun á Karolina fund, en þar gefst fólki á að kaupa nýju plöt­una á vínyl og/eða staf­rænu formi, auk þess sem það er hægt að fá miða á tón­leik­ana og annað bita­stætt.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Verk­efnið á sér langan aðdrag­anda. Eftir að hafa gefið frá sér plöt­una Enter 4, þá hóf­umst við handa við að gera nýja plötu í byrjun árs 2014. Eftir fimm ár í fram­leiðslu er loka­sprett­ur­inn haf­inn. Okkur fannst upp­lagt að fara í sam­starf við Karolina fund af því til­efni.

Það hefur alltaf skipt mestu máli fyrir okkur að end­ur­taka okkur ekki og finna nýjar víddir í sam­starf­inu. Þetta verður því hægelduð, en von­andi á end­anum ljúf­feng mál­tíð. Listinn af lögum sem hafa verið unn­inn er langur, lík­lega á milli 30-40 lög ef allt er talið. Mörg þeirra hafa tekið mörgum kúvend­ingum og við höfum grín­ast með að gefa út ep plötur sem inni­halda 3-4 útgáfur af sama lag­inu. Við munum auð­vitað bara velja þau lög sem passa saman, alveg eins og kokkur setur ekki öll kryddin í sama rétt­inn. Platan hefur verið samin og unnin í Reykja­vík, Berlín, Búdapest, Lunda­reykja­dal, Amster­dam og örugg­lega fleiri stöðum sem við erum búin að gleyma. Ótal­margir hafa lagt hönd á plóg­inn og enn fleiri munu gera það á kom­andi vikum. Þema plöt­unnar er í raun­inni bara lífið sjálft með öllum þeim flækjum og smá­sigrum sem það bíður uppá.

Við erum bara geysi­lega ánægð og full til­hlökk­unar að 2019 sé árið þar sem allt erf­iði síð­ustu ára ber ávöxt, bæði hvað varðar lif­andi tón­list­ar­flutn­ing og útgáfu. Á tíma­bili fengum við starfs­laun lista­manna, sem við erum þakk­lát fyrir og hjálp­aði í ferl­inu. Fyrsta smá­skífan af plöt­unni, Bar­o­nesse, kom út í jan­úar, við góðar und­ir­tektir og við getum ekki beðið eftir því að fylgja því eftir með nýju efni. Það hafa vissu­lega skipst á skin og skúrir í ferl­inu, en þannig er lífið og loka­af­urðin verður þeim mun dýr­mæt­ari fyrir vikið. Á meðan þessi plata hefur verið í fram­leiðslu hafa með­limir hljóm­sveit­ar­innar eign­ast 4 börn sam­tals (og fleiri á leið­inni). Þetta hefur verið ógleym­an­legt ferða­lag, sem brátt tekur enda, en þá tekur við eitt­hvað nýtt.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár