Dekkjasalarnir sem eru orðnir samnefnari fyrir framúrskarandi matargerðarlist

Hug­myndin að baki Michelin hand­bók­inni var í upp­hafi sú að koma Frökkum út á vegi lands­ins til þess að stuðla að auk­inni sölu á bílum en fyrst og fremst dekkjum. Nýlega fjölg­aði í hópi íslenskra veit­inga­staða sem geta státað af Michelin-stjörnu.

Fyrsta handbók þeirra Michelin bræðra kom út árið 1900.
Fyrsta hand­bók þeirra Michelin bræðra kom út árið 1900. Mynd: Michelin

Leynd­ar­málið á bak við góðan mat er oft og tíðum akkúrat það – leynd­ar­mál. Fólk stendur vörð um fjöl­skyldu­upp­skriftir sem gengið hafa í erfðir og veit­inga­staðir geta trekkt fólk að vegna þess að þar er á boðstólum dul­ar­fullir og ómót­stæði­legir réttir sem eru mar­ineraðir með „leynikrydd­blöndu eða bornir fram með „leyn­isósu“.

Það ríkir aftur á móti ekki aðeins leynd­ar­hyggja inni í eld­húsum bestu veit­inga­staða heims, heldur einnig við borðin sjálf. Óhætt er að full­yrða að þekkt­asti mæli­kvarði á gæði veit­inga­staða er Michelin hand­bókin. Í hand­bók­inni, sem nú má einnig nálg­ast á net­inu, má finna upp­lýs­ingar um bestu veit­inga­staði í heimi að mati þeirra sem sjá um að leggja mat á það. Einhver leynd ríkir yfir aðferða­fræði þessa sér­fræð­inga en á heima­síðu Michelin kemur þó fram að horft er til fimm þátta við matið. Þessir þættir eru gæði hrá­efna, bragð­gæði mat­ar­ins og gæði elda­mennsk­unnar, sér­kenni í mat­ar­gerð­ar­list kokks­ins, hvort mat­ur­inn stand­ist vænt­ingar með til­liti til verðs vænt­ingar og loks hvort gæðin séu ekki örugg­lega stöðug.

Michelin hand­bókin á sér ríka sögu en það er ekk­ert leynd­ar­mál að helsti til­gangur útgáf­unnar í upp­hafi var að stuðla að auk­inni dekkja­sölu – já, Michelin-stjörnur eru kenndar við Michelin dekkja­fram­leið­and­ann.

Vildu hvetja fólk til að ferðast á bíl

Saga dekkja­fram­leið­and­ans Michelin hófst árið 1889 í bænum Clermont-Ferrand sem stað­settur er svo til í miðju Frakk­lands. Að því er fram kemur í umfjöllun BBC hófu bræð­urnir Andre og Edouard Michelin það ár fram­leiðslu á útskipt­an­legum loft­fylltum dekkjum fyrir reið­hjól sem var mikil nýlunda á þessum tíma. Þeir færðu sig svo síðar yfir í fram­leiðslu á bíldekkjum en um það leyti er þeir stofn­uðu fyr­ir­tæki sitt var fjöldi bíla í Frakk­landi innan við þrjú þús­und.

Árið 1900 hófst svo útgáfa á Michelin hand­bók­inni og henni var dreift ókeypis til öku­manna í Frakk­landi. Í hand­bók­inni mátti finna með­mæli með veit­inga­stöðum og hót­elum og til­gang­ur­inn með útgáf­unni var ein­faldur: að ýta undir ferða­lög fólks og ekki síst lengri ferða­lög þar sem fólk færi akandi, myndi gista á hót­eli eða gisti­heim­ili og njóta góðs matar á leið­inni. Innan nokk­urra ára mátti svo finna í hand­bók­inni vega­kort, öku­mönnum til hægð­ar­auka.

Fyrsta stjarnan gefin árið 1926

Þegar á leið var meiri áhersla lögð á að mæla með veit­inga­stöðum sem leggja mikið upp úr því að bjóða upp á gæða­mat og árið 1926 fædd­ist Michelin-stjarnan. Í fyrstu var aðeins ein stjarna í boði handa þeim veit­inga­stöðum sem stóð­ust strangar kröfur mats­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Á fjórða ára­tugnum fjölg­aði stjörn­unum sem í boði eru í þrjár og enn er geta veit­inga­staðir sem rata í Michelin hand­bók­ina haft allt frá engri stjörnu og upp í þrjár.

Líkt og áður segir hvílir ákveðin leynd yfir því hvað býr að baki einni, tveimur eða þremur stjörnum í ein­kunna­gjöf mats­manna Michelin hand­bók­ar­innar. Þessu stig­veldi fylgdi þó skýr­ing í upp­hafi og, líkt og við má búast, var stjörnu­gjöfin á vissan hátt tengd við ferða­lög. Einnar stjörnu veit­inga­staðir voru sagðir bjóða upp á mjög góðan mat. Um tveggja stjörnu veit­inga­staði sagði aftur á móti í hand­bók­inni. „Frábær matur, þess virði að leggja leið á lykkju sína fyrir.“ Umsögn þriggja stjörnu veit­inga­staða var loks: „Fram­úr­skar­andi mat­ar­gerð­ar­list. Þess virði að gera sér sér­staka ferð til að heim­sækja.“

Fyrstu stjörnurnar utan Evrópu veittar árið 2006

Hand­bókin naut snemma vin­sælda, ekki síst vegna þess að mat­ar­gagn­rýnendur Michelin voru áreið­an­legir. Fólk gat því treyst með­mæl­unum í bók­inni. Hand­bæk­urnar hafa líka vafa­laust lokkað margan Frakkann út á veg­ina í leit að góðum mat og nota­legum gisti­stað. Enda er haft eftir Patrick Young, sér­fræð­ingi í 19. og 20. aldar sögu Frakk­lands í umfjöllun BBC að þeir Michelin bræður hafi verið á undan sinni sam­tíð og nán­ast séð fyrir þá aukn­ingu sem átti eftir að verða í ferða­mennsku á fyrri hluta 20. Aldar. Helsta nýbreytni þeirra sem birt­ist í Michelin hand­bók­inni er þessi áhersla á ferða­lög í bíl, ítar­legar leið­ar­lýs­ingar þeirra og svo ein­kunna­gjöfin fyrir gisti­hús og veit­inga­staði,“ sagði Young.

Mark­aðs­svæði Michelin hand­bókanna stækk­aði ört á 20. öld en þó ein­ungis innan Evrópu. Það var ekki fyrr en árið 2006 sem fyrstu Michelin-stjörn­u­rnar voru veittar banda­rískum veit­inga­stöðum, þá ein­ungis stöðum í New York.

Eins og gefur að skilja er það mik­ill heiður fyrir veit­inga­menn að hljóta eina eða fleiri af hinum eft­ir­sóttu stjörnum. Enda, líkt og áður segir, er Michelin-stjarnan ein­hver þekktasta við­ur­kenn­ing í veit­inga­geir­anum. Stjörnu­gjöfin getur haft gíf­ur­leg áhrif á eft­ir­sókn ein­stakra veit­inga­staða og hún er auk þess klapp á bak starfs­fólks­ins í eld­hús­inu og stað­fest­ing á því að þar sé unnið gott starf.

Mikill heiður en mikið álag

Michelin stjörnum getur engu að síður fylgt streita og álag. Um það getur franski kokk­ur­inn Sebastien Bras vitnað. Hann rataði í heims­frétt­irnar haustið 2017 þegar hann óskaði eftir því að vera sviptur þeim þremur stjörnum sem veit­inga­staður hans Le Suquet hafði haldið í 18 ár. Ástæðan var sú, sagði Bras að hann hefði ekki lengur áhuga á að elda undir því álagi sem fylgir þremur Michelin-stjörnum.

„Mat er lagt á stað­inn tvisvar eða þrisvar á ári og þú veist aldrei hvenær,“ sagið Bras. „Hver ein­asta mál­tíð sem er borin fram gæti verið sú sem er metin. Það þýðir að á hverjum degi gæti ein af þeim 500 mál­tíðum sem er send út úr eld­húsi mínu lent í því að vera dæmd.“

Svo fór að Bras fékk ósk sína upp­fyllta og hann veit­inga­stað­inn Le Suquet var hvergi að finna á blöðum frönsku Michelin hand­bók­ar­innar árið 2018. Í dag er veit­inga­stað­ur­inn með tvær stjörnur.

Fimm íslenskir veitingastaðir í Michelin handbókinni

Á Íslandi er fjöldi veit­inga­staða með Michelin-stjörnu nú kom­inn upp í tvo. Í upp­hafi vik­unnar hlaut veit­inga­stað­ur­inn Óx á Lauga­vegi stjörnu en þá var til­kynnt hvaða veit­inga­staðir hlytu stjörnur í Michelin hand­bók­inni sem gefin er út fyrir Norð­ur­löndin. Óx bætt­ist þar með í hóp Dill sem fékk Michelin-stjörnu í fyrsta sinn árið 2017. Veit­inga­stað­ur­inn Dill missti að vísu stjörn­una árið 2019 en end­ur­heimti hana árið 2020.

Í athöfn­inni sem haldin var í Stafangri í Noregi hlaut Dill aðra rós í hnappa­gat sitt, græna Michelin-stjörnu. Hún er veitt veit­inga­stöðum sem hafa lagt metnað sinn í sjálf­bæra mat­ar­gerð­ar­list og rataði fyrst inn í Michelin hand­bók­ina í fyrra. Strangt til tekið telja grænu stjörn­u­rnar ekki með sem „ekta“ Michelin-stjörnur og ekki er heldur gerð krafa um að veit­inga­staðir séu með eina eða fleiri „ekta“ stjörnur til þess að hljóta þá grænu. Fjöldi veit­inga­staða á Norð­ur­löndum með græna stjörnu er nú 38.

Samtals mælir Michelin hand­bókin með 255 veit­inga­stöðum á Norð­ur­löndum og er hlut­fall hand­hafa grænu stjörn­unnar á öðrum mark­aðs­svæðum hvergi eins hátt. Af veit­inga­stöð­unum 255 sem mælt er með í hand­bók­inni eru fjórir með þrjár Michelin-stjörnur, 14 staðir hafa tvær stjörnur og 56 eru með eina stjörnu. Þá hafa 32 veit­inga­staðir fengið Bib Gourmand við­ur­kenn­ingu en hún er veitt veit­inga­stöðum þar sem hægt er fá gæða­mat á hag­stæðu verði. Í hand­bók­inni má einnig finna á annað hund­rað veit­inga­staða sem Michelin mælir með, þó svo að þeir hafi ekki fengið eina eða fleiri af áður­nefndum við­ur­kenn­ingum. Í þeim hópi eru þrír veit­inga­staðir á Íslandi, Matur og drykkur og Sumac í Reykja­vík auk Moss sem er stað­settur við Bláa lónið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár