Saka stjórnarliða um að skauta framhjá skýrri ábyrgð fjármálaráðherra

Stjórn og stjórn­ar­and­staða á Alþingi eru ósam­mála um ábyrgð fjár­mála­ráð­herra vegna sölu Banka­sýsl­unnar í hlut í Íslands­banka. Minni­hlut­inn vill að Vinstri græn styðji þau í að koma á fót rann­sókn­ar­nefnd Alþingi vegna máls­ins.

Helga Vala og Halldóra voru fulltrúar stjórnarandstöðunnar í Sprengisandi.
Helga Vala og Halldóra voru full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar í Sprengisandi. Mynd: Bára Huld Beck

Sala Banka­sýslu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn hefur verið harð­lega gagn­grýnd síðan kaup­enda­listi var gerður opin­ber. Flestir virð­ast vera sam­mála um að eitt­hvað hafi farið úrskeiðis við söl­una, en stjórn og stjórn­ar­and­staða á Alþingi er hins vegar ósam­mála um hvar ábyrgðin liggur. Salan fór fram í gegnum lokað útboð og alls 209 aðilar fengu að kaupa hlut­inn með sam­tals 2,25 millj­arða króna afslætti. Listi yfir kaup­endur var birtur fyrr í vik­unni og kom þá meðal ann­ars í ljós að starfs­menn sölu­ráð­gjafa, aðilar sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og faðir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra voru á meðal kaup­enda.

Sala Íslands­banka var við­fangs­efni Sprengisands á Bylgj­unni í morgun, þangað sem mætt voru Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, Helga Vala Helga­dóttir, for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, Halldóra Mogensen, for­maður þing­flokks Pírata, og Teitur Björn Ein­ars­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra.

Umræðan í þætt­inum var líf­leg, en helst greinir stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðuliða á um ábyrgð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra sem og hvort skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að skoða málið.

[links]Bjarni Jónsson hafði áður komið þeirri skoðun sinni á fram­færi að for­stjóri og stjórn Banka­sýsl­unnar þurfi að víkja til þess að hægt verði að skapa traust að nýju. Helga Vala segir hins vegar afleitt hvernig stjórn­ar­liðar skauti algjör­lega fram­hjá skýrri ábyrgð ráð­herra í mál­inu. Ekkert sem ger­ist í ferl­inu ger­ist án aðkomu fjár­mála­ráð­herra og ef hann treysti vini sínum hjá Banka­sýsl­unni svo vel að hann hafi ekki farið almenni­lega yfir ferlið og gögnin áður en hann sam­þykkti þau sé það ekki síður alvar­legt og á skjön við ábyrgð ráð­herra.

Aðspurður hvort lög hefðu verið brotin í ferl­inu sagð­ist Teitur ekki vita það og að það gerði Helga Vala ekki heldur, það þyrfti ein­fald­lega að rann­saka. Teitur sagði ábyrgð ráð­herra skýra, en að ekki væri hægt að horfa fram­hjá því að Banka­sýslan hafi verið sett sér­stak­lega á fót til þess að tryggja „póli­tíska arms­lengd“ í sölu rík­is­eigna. Hins vegar hafi við­brögð Banka­sýsl­unnar ekki verið traust­vekj­andi með því að neita að birta lista yfir kaup­endur. Fjár­mála­ráð­herra hafi gert rétt með því að hundsa þau til­mæli. Eðlilegt væri að spyrja sig hvernig Banka­sýslan hafi staðið að söl­unni og tekið ein­staka ákvarð­anir í sölu­ferl­inu, sem hann sagði ráð­herra ekki hlut­ast til með. Það væri góð hug­mynd hjá ráð­herra að fela Rík­is­end­ur­skoðun að fara yfir máls­með­ferð­ina og þær alvar­legu ásak­anir sem bornar hafi verið á borð. Það úti­loki hins vegar ekki að hægt verði að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis í fram­hald­inu.

Gáleysi og raunveruleg ábyrgð

Halldóra tók undir með Helgu Völu og sagði mik­il­vægt að hafa í huga ábyrgð fjár­mála­ráð­herra. Væri hann lát­inn njóta vafans, að hann hafi ekki látið söl­una fara svona vilj­andi, væri samt um stór­kost­legt gáleysi um að ræða af hans hálfu. Hann hafi átt að tryggja að yfir­lýstu mark­miði um afslátt til að fá kaup­endur úr röðum stórra, öruggra lang­tíma­fjár­festa yrði náð með söl­unni. Leið­bein­ingar OECD um einka­væð­ingu rík­is­eigna, leið­bein­ingum sem ætlað sé að koma í veg fyrir spill­ingu, hafi verið huns­aðar. Fjár­mála­ráð­herra hljóti að bera höf­uð­á­byrgð í mál­inu.

Þó virt­ist engum ljóst hvort fjár­mála­ráð­herra hafi raun­veru­lega kvittað undir til­boð hvers kaup­anda fyrir sig. Helga Vala sagði það vera hans ábyrgð, enda komi hann að öllum þáttum frá A til Ö þó hann sitji ekki sjálfur við samn­inga­borðið. Teitur neit­aði hins vegar fyrir það að Bjarni hefði kvittað upp á til­boð föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar.

VG styðji vilja minnihlutans um skipun rannsóknarnefndar

Hitt málið sem deilt er um í tengslum við söl­una er hvort skipa eigi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis vegna máls­ins. Rík­is­stjórnin hefur þegar til­kynnt að Rík­is­end­ur­skoðun verði falið að rann­saka málið, en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir telja hana ekki hafa nægi­lega heim­ild. Helga Vala sagði vald­heim­ildir rann­sókn­ar­nefndar Alþingis og Rík­is­end­ur­skoð­unar gjör­ó­líkar þegar kæmi að því að kalla eftir gögnum og sækja fólk í skýrslu­töku.

Sam­fylk­ingin væri til í að senda málið til Rík­is­end­ur­skoð­unar, en á móti verði tryggt að minni­hlut­inn geti kallað til rann­sókn­ar­nefnd Alþingis. Meiri­hlut­inn geti fellt slíka til­lögu, það hafi gerst áður. Hvorki Teitur né Bjarni úti­lok­uðu að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis yrðu skipuð um málið, og sagði Bjarni raunar ekk­ert því til fyr­ir­stöðu. Helga Vala tók hann á orð­inu og hvatti Vinstri græna til þess að koma í „lið“ með stjórn­ar­and­stöð­unni og sam­þykkja að setja á stofn rann­sókn­ar­nefnd­ina, þá væri kom­inn fyrir því meiri­hluti. Halldóra tók undir með Helgu Völu og sagð­ist ekk­ert skilja í Vinstri grænum í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár