Stefán Vagn leiðir fyrir Framsókn í Norðvesturkjördæmi

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lokið við að velja á lista sinn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og eft­ir­maður Ásmundar Einars Daða­sonar í odd­vita­sætið liggur fyrir. Sitjandi þing­maður, sem sóttir eftir odd­vita­sæti, á litla sem enga mögu­leika á að halda sér á þingi.

Stefán Vagn Stefánsson
Stefán Vagn Stef­áns­son

Stefán Vagn Stef­áns­son, núver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun leiða lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Stefán Vagn er einnig yfir­lög­reglu­þjónn á Norð­ur­landi vestra og vara­for­maður byggð­ar­ráðs sveit­ar­fé­lags Skaga­fjarðar. Hann ákvað að sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu eftir að að Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, ákvað að færa sig um set og bjóða fram í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Valið var á lista Fram­sóknar í kjör­dæm­inu með póst­kosn­ingu og 1.157 tók þátt í henni. Athygli vekur að ​Halla Signý Krist­jáns­dóttir, sitj­andi þing­maður flokks­ins, féll um eitt sæti og lenti í því þriðja. Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, 24 ára for­maður Sambands Ungra Fram­sókn­ar­manna og núver­andi vara­þing­maður, náði öðru sæt­inu á list­anum. Halla Signý hafði gefið það út að hún vildi leiða í kjör­dæm­inu en nú lítur allt út fyrir að dagar hennar sem þing­maður séu taldir eftir kosn­ing­arnar í haust, að minnsta kosti að sinni

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk tvo þing­menn kjörna í kjör­dæm­inu í síð­ustu þing­kosn­ingum, 2017, og var næst stærsti flokk­ur­inn þar með 18,4 pró­sent atkvæða. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var stærri en hann fékk þó sama fjölda þing­manna.

Þau sem hlutu kosningu í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi voru:

  • Stefán Vagn Stef­áns­son hlaut 580 atkvæði í fyrsta sæti
  • Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir hlaut 439 atkvæði í fyrsta og annað sæti
  • Halla Signý Krist­jáns­dóttir hlaut 418 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti
  • Friðrik Már Sig­urðs­son hlaut 526 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti
  • Iða Marsibil Jóns­dóttir hlaut 563 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti

Ásmundur Einar til­kynnti um miðjan jan­úar að hann ætl­aði að færa sig til Reykja­víkur í kom­andi kosn­ingum. Við það til­efni sagði hann í stöðu­upp­færslu á Facebook: „Það kann að virð­ast sérstök ákvörðun að fara úr því́ sem næst öruggu þing­sæti í Norð­vest­ur­kjördæmi, þar sem Framsókn á ​sér langa og far­sæla sögu, í framm­boð þar sem flokk­ur­inn hefur glímt við ýmsar áskor­anir í und­anförnum kosn­ing­um. Að baki þess­ari ákvörðun liggur metn­aður til að ná fram stórum pólitískum breyt­ingum í íslensku samfélagi.“

Ásmundur Einar sagði enn fremur að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni ekki ná að verða leið­andi afl í stórum kerf­is­breyt­ingum sem hann telur að þurfi að eiga sér stað í íslensku sam­fé­lagi án þess að flokk­ur­inn nái að styrkja sig í þétt­býli og þá sér­stak­lega í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár