Kaffi gæti orðið undir vegna loftslagsbreytinga

Lofts­lags­breyt­ingar gætu haft það í för með sér að kaffi­n­eysla mann­fólks muni breyt­ast mikið.

Kaffi­plöntur eru þekktar fyrir að vera sér­stak­lega vand­látar þegar kemur að hita­breyt­ingum og rækt­ar­landi. Það veldur því að vin­sæl­ustu teg­undir kaffis í heim­inum eru rækt­aðar í vissri hæð yfir sjáv­ar­máli í hita­belt­islönd­unum.

Af þess­ari einu ástæðu gætu lofts­lags­breyt­ingar haft tölu­verð áhrif á það hvernig kaffi við munum neyta í fram­tíð­inni. Og ekki aðeins hvernig kaffi, heldur einnig hvort við munum neyta kaffis yfir höfuð því vin­sæl­ustu teg­und­irnar vilja auð­vitað sína eigin frjó­bera sem lifa illa við breyttar aðstæður.

[adspot]

Fjallað er um kaffi og lofts­lags­breyt­ingar á vefnum Ars Technica.com.

Tvær teg­undir kaffis hafa verið rækt­aðar til magnn­eyslu. Önnur er sú sem kölluð er „robusta“. Sú er harð­ger­ari og stenst hita­breyt­ingar og smit betur en hin svo hægt er að rækta hana víða. Vandinn við robusta er að afurðin þykir ekki sér­lega góð á bragðið, auk þess að koff­ín­magnið er svo mikið að það er mun lík­legra til að valda hjart­slátt­ar­trufl­unum.

„Arabica“ er hins vegar sú teg­und kaffis sem flestir þekkja af flóknu bragði. Arabica er hins vegar mjög vand­lát um rækt­un­ar­skil­yrði. Við mið­baug vex arabica aðeins í meira en 1.000 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og við sér­stök úrkomu­skil­yrði. Nær pól­unum vex arabica í um 500 til 1.000 metra hæð.

[links]Vís­inda­menn hafa þó búið til blend­inga af arabica- og robusta-ættum en það getur tekið um það bil fjögur ár fyrir kaffi­baunir að vaxa á slíkum plöntum, svo það er lang­tíma­verk­efni að hefja slíka ræktun.

SVo það er aug­ljóst fyrir svo við­kvæma ræktun að lofts­lags­breyt­ingar munu hafa áhrif á kaffi­fram­leiðslu. Á flestum þeim svæðum sem kaffi er ræktað munu lofts­lags­breyt­ingar ýta rækt­un­inni hærra yfir sjáv­ar­mál. Þeim mun ofar sem farið er því minna land­svæði er hægt að yrkja.

Hnatt­rænar grein­ingar á þess­ari stöðu hafa leitt í ljós að ræktun arabica-kaffis gæti minnkað um helm­ing um miðja þessa öld. Þá hefur verið tekið með í reikn­ing­inn að hægt verður að rækta meira fjær mið­baugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár