Bréf í Högum og N1 rjúka upp eftir yfirtökuna

Virði hluta­bréfa N1 og Haga hækk­uðu ört fyrir hádegi í dag eftir að kaup olíu­fyr­ir­tæk­is­ins á smá­sölu­fyr­ir­tæk­inu Festi voru heim­iluð af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í gær­kvöldi.

Hluta­bréfa­verð hefur hækkað um 11,5% í N1 og 6,6% í Högum það sem af er dags. Hækk­an­irnar eru fyrstu við­brögð mark­að­ar­ins eftir fréttir um sam­þykkt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á kaupum N1 á Festi í gær.

Kjarninn greindi frá kaup­unum í morgun, en búist er við að fram­legð olíu­fyr­ir­tæk­is­ins muni rúm­lega tvö­fald­ast við hann og nema um 7,5 millj­örðum í ár. Þar af er talið að 500-600 millj­ónir af þeirri upp­hæð verði vegna sam­legð­ar­á­hrifa. Festi er smá­sölu­fyr­ir­tæki sem rekur 29 versl­anir undir merkjum Krón­unnar, Kr, ELKO, Nóatúns og Kjarvals.

Yfir­takan er fyrsti sam­run­inn sem gengið hefur í gegn milli olíu­fé­lags og smá­sölu­fyr­ir­tækis eftir opnun Costco og H&M. Skelj­ungur hafði einnig lýst yfir áhuga á að kaupa fyr­ir­tækið Basko, en hætti við kaupin fyrir tveimur vikum síðan.

Hagar hafa einnig reynt að kaupa Olís, en kaupin bíða enn end­an­legs úrskurðar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Hagar hafa lagt fram til­lögur um sölu á þremur Bón­usversl­unum, tveimur bens­ín­stöðvum Olís auk einnar stöðvar ÓB til að koma sam­run­anum í gegn. Búist er við svörum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hvort til­lög­urnar séu nægar til að heim­ila sam­run­ann eða hvort hann verði dæmdur ógildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár