Segir Sigmund afhjúpaðan sem loddara og vænisjúkan lygara

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, seg­ist vona að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sjái sóma sinn í því að segja af sér áður en að þing­fundur hefst í dag. Það sé gríð­ar­leg ólga í sam­fé­lag­inu eftir að for­sæt­is­ráð­herra hafi verið „afhjúp­aður í Kast­ljósi í gær sem lodd­ari og lyg­ari með væn­is­sýki á háu stigi.“

Sig­mundur Davíð var aðal­um­fjöll­un­ar­efni sér­staks Kast­ljós­þáttar um aflands­fé­laga­eign íslenskra stjórn­mála­manna sem sýndur var í gær. Þar gekk hann meðal ann­ars út úr við­tali við sænska sjón­varps­mann sænska rík­is­sjón­varps­ins og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóra Reykja­vík Media, þegar hann var spurður út í aflands­fé­lagið Wintris. Fjórum dögum eftir að við­talið var tekið opin­ber­aði eig­in­kona Sig­mundar Davíð að hún ætti erlent félag í stöðu­upp­færslu á Facebook. Síðar kom í ljós að Wintris var einnig stór kröfu­hafi í bú allra föllnu bank­anna og að Sig­mundur Davíð var sjálfur eig­andi helm­ings­hlutar í félag­inu þegar þeir kröfum var lýst. Fjallar var um málið í tugum fjöl­miðla út um allan heim í gær. Þeirra á meðal voru BBC, DR, NRK,SVT, The Guardian, Aften­posten, Le Monde og þýska stór­blaðið Sueddeutsche Zeitung, sem leiddi umfjöll­un­ina alþjóð­lega.

Birgitta birti stöðu­upp­færslu í morgun þar sem hún segir ábyrgð Sig­mundar Davíðs vera mikla ef hann segi ekki af sér áður en þing­fundur hefst í dag, en hann mun hefj­ast klukkan 15. Þar á Sig­mundur Davíð að vera á meðal þeirra ráð­herra sem svara óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum. Birgitta segir: „Það er gríð­ar­leg ólga í sam­fé­lag­inu eftir að hann var afhjúp­aður í Kast­ljósi í gær sem lodd­ari og lyg­ari með væn­is­sýki á háu stigi. Að það væri afhjúpað fyrir heims­byggð alla með vand­aðri umfjöllun allra helstu fjöl­miðla heims setur allar kenn­ingar Sig­mundar og félaga hans í Fram­sókn­ar­flokknum um að loft­árásir fjöl­miðla hér heima í annað ljós og meint písla­vætti þeirra telst til háð­ungar um heim allan.

Lítið hefur heyrst frá þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir að umfjöll­unin fór í loftið í gær­kvöld og ekk­ert við­bragð hefur komið frá for­sæt­is­ráð­herra sjálfum. Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði við RÚV í gær­kvöld að engar nýjar upp­lýs­ingar hefðu komið fram í þætt­inum en að fram­setn­ing þeirra upp­lýs­inga sem þar voru settar fram hafi ekki látið málið líta vel út.

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir það sama og Sigurður Ingi við Morg­un­blaðið í dag. Ekkert hafi efn­is­lega komið margt nýtt fram í Kast­ljós­þætt­inum. Hann reikn­aði með að farið yfir málið á þing­flokks­fundi í dag.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd kemur saman í hádeg­inu í dag til að ræða hæfi for­sæt­is­ráð­herra og aflands­fé­lög almennt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár