Eigið fé Landsvirkjunar aukist um 34 milljarða á þremur árum

Sam­an­lagt eigið fé þriggja stærstu rík­is­fyr­ir­tækj­anna nemur nú um 700,7 millj­örðum króna.

Eigið fé Lands­virkj­unar nemur nú rúm­lega 270 millj­örðum króna, og hefur auk­ist um 34 millj­arða á þremur árum. Ekkert íslenskt fyr­ir­tæki er með meira eigið fé en Lands­virkjun, sé mið tekið af stöð­unni eins og hún var í lok árs í fyrra.

Eins og greint var frá í dag, þá hagn­að­ist fyr­ir­tækið um 13,6 millj­arða króna í fyrra.

Íslenska ríkið er eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Sé mið tekið af stöðu mála eins og hún var í lok árs í fyrra, þá nemur eigið fé þriggja stærstu rík­is­fyr­ir­tækj­anna - Lands­virkj­unar, Lands­bank­ans og Íslands­banka - sam­tals um 708,7 millj­örðum króna. Eigið lands­bank­ans var 247,7 millj­arðar og hjá Íslands­banka um 180 millj­arðar.

Skuldir Lands­virkj­unar hafa lækkað hratt und­an­farin ár og engin breyt­ing varð þar á í fyrra. Nettó lækk­uðu þær um 23,4 millj­arða króna á árinu og voru í árs­lok 204,7 millj­arðar króna, eða 1.691 milljón Banda­ríkja­dala. Mats­fyr­ir­tækið Moody's hækk­aði láns­hæf­is­ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins á árinu og S&P Global Rat­ings breytti horfum á sinni ein­kunn úr stöð­ugum í jákvæð­ar.

Í fyrra greiddi Lands­virkjun um 4,3 millj­arða króna í arð til eig­anda síns vegna frammi­stöðu árs­ins 2018. Stjórn félags­ins mun á kom­andi aðal­fundi gera til­lögu um arð­greiðslu til eig­enda. Í nán­­ustu fram­­tíð er áætlað að hægt verði að greiða 10 til 20 millj­­arða króna á ári úr Lands­virkjun í arð til eig­anda síns.

Til stendur að þessar arð­greiðslur myndi grunn fyrir Þjóð­­ar­­sjóð sem í á að vera um 500 millj­­arðar króna eftir tæpa tvo ára­tugi. Frum­varp um Þjóð­ar­sjóð er þó enn ósam­þykkt og er sem stendur í þing­legri með­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár