Sáttaviðræðum ekki formlega lokið

For­sæt­is­ráðu­neytið telur að sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu og aðstand­endur þeirra sé ekki form­lega lokið.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur ekki fengið skila­grein frá nefnd sem skipuð var til að leiða fyrir hönd stjórn­valda sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar í fyrra. Ráðu­neytið lítur því hvorki svo á að sátta­við­ræðum sé form­lega lokið né hlut­verki sett rík­is­lög­manns. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Náði ekki samkomulagi við sáttanefndina

[links]Greint var frá því fyrr í dag að Guð­jón Skarp­héð­ins­son, einn þeirra sem sýkn­aður var í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, hafi ekki náð sam­komu­lagi við sátta­nefnd stjórn­valda varð­andi miska- og skaða­bæt­ur. Ragn­ar Að­al­steins­son, lög­maður Guðjóns, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag að fyrst ríkið virð­ist ekki vilja ná sáttum þá séu næstu skref að und­ir­búa mál­sókn.

Ragnar krafð­ist miska­bóta upp á rúman millj­arðs fyrir hönd skjól­stæð­ings síns en Ragnar segir að sátta­nefndin hafi verið að ræða tölur á bil­inu 120 til 150 millj­ónir króna. Hann tók það þó fram að ekk­ert form­legt til­boð hafi komið frá sátta­nefnd­inni. [adspot]

Í Frétta­blað­inu í dag var greint frá því að Andri Árna­son, settur rík­is­lög­maður í mál­inu, sé hins vegar ekki búin að taka form­lega afstöðu til kröfu Guð­jóns en þar sem ekki var gengið að henni við borð sátta­nefndar þá segir blaðið að ólík­legt sé að henni verði annað en hafn­að.

Breið sátt eða viðræður við hvern og einn

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að þar sem ráðu­neytið hafi ekki fengið skila­grein frá sátta­nefnd­inni þá líti ráðu­neytið svo á að sátta­við­ræðum sé ekki form­lega lokið né hlut­verki setts rík­is­lög­manns. Í til­kynn­ing­unni er tekið fram að nefnd­inni og rík­is­lög­manni var falið að ljúka mál­inu annað hvort á grund­velli breiðrar sáttar eða við­ræðna við hvern og einn sem sýkn­aðir voru eða aðstand­endur þeirra.

Ekki hefur komið fram hvort að nið­ur­staða sé komin í mál hinna máls­að­il­anna, Tryggva Rúnar Leifsson, Sævar Ciesielski, Albert Klan Skafta­son og Kristján Viðar Júl­í­us­son, sem einnig voru sýkn­aður í Hæsta­rétti síð­asta haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár