Landsvirkjun geri skýra grein fyrir forsendum stækkunar Sigöldustöðvar

Skipu­lags­stofnun vill að Lands­virkjun geri skýr­ari grein fyrir til­gangi og for­sendum fyr­ir­hug­aðrar stækk­unar Sig­öldu­virkj­unar. Stækk­unin myndi aðeins auka orku­fram­leiðslu lít­il­lega. Meira vatn þurfi til að meira raf­magn verði fram­leitt.

Umhverfismat stækkunar Sigöldustöðvar er hafið. Landsvirkjun áformar að stækka tvær virkjanir til viðbótar á svæðinu
Umhverf­is­mat stækk­unar Sig­öldu­stöðvar er hafið. Lands­virkjun áformar að stækka tvær virkj­anir til við­bótar á svæð­inu Mynd: Landsvirkjun

Skipu­lags­stofnun telur rétt að Lands­virkjun geri grein fyrir þeim for­sendum sem áform um stækkun Sig­öldu­virkj­unar byggja á, þ.e. spám um aukið rennsli og vænt­an­legri orku­fram­leiðslu að teknu til­liti til ólíkra sviðs­mynda um vænt­an­legt rennsli. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið hafa bent á að hönnun virkj­un­ar­innar á sínum tíma hafi verið hugsuð út frá auknu rennsli með nýrri miðlun á svæð­inu t.d. með bygg­ingu Kjalöldu­veitu. Stækkun stöðv­ar­innar auki ákaf­lega lítið raf­orku­fram­leiðslu hennar nema aukin miðlun komi til.

„Þó svo að Kjalöldu­veita sé hag­kvæm fram­kvæmd sem myndi auka rennsli til allra virkj­ana Lands­virkj­unar á Þjórs­ár­svæð­inu, þá er mögu­legt aukið rennsli frá Kjalöldu­veitu ekki for­senda fyrir stækkun virkj­ana á Þjórs­ár­svæð­inu og ekki er gert ráð fyrir því við mat á arð­semi verk­efn­anna,“ segir i svörum Lands­virkj­unar við þess­ari athuga­semd.

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­á­ætlun áfor­manna segir hins vegar að í næsta skrefi umhverf­is­mats fram­kvæmd­ar­innar, umhverf­is­mats­skýrslu, þurfi að gera skýr­ari grein fyrir til­gangi og for­sendum fyr­ir­hug­aðrar stækk­unar Sig­öldu­stöðvar sem og áætl­aðri orku­fram­leiðslu með hlið­sjón af fyr­ir­liggj­andi spám um aukið rennsli á vatna­sviði virkj­un­ar­innar.

[adspot]

Stofn­unin vill einnig að í umhverf­is­mats­skýrslu verði gerð grein fyrir mögu­legum sam­legð­ar­á­hrifum fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdar með öðrum áformum á virkj­ana­svæð­inu á vatns­rennsli og vatns­borð á áhrifa­svæði fram­kvæmd­anna. Leiði fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir til breyt­inga á vatns­rennsli og yfir­borði vatns sé enn­fremur þörf á að meta sam­legð­ar­á­hrif á líf­ríki. Að auki þarf að mati stofn­un­ar­innar að gera grein fyrir mögu­legri þýð­ingu þess að nýta vatns­afls­virkj­anir á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu til að bregð­ast við breyti­legri vinnslu vind­orku og hafa hlið­sjón af áhrifum þess við mat á sam­legð­ar­á­hrifum. Þá skuli Lands­virkjun í umhverf­is­mats­skýrslu gera nán­ari grein fyrir áhrifum stækk­unar á rekstur, rað­tengdar virkj­anir og orku­ör­yggi.

[links]Lands­virkjun áformar að stækka Sig­öldu­stöð um allt að 65 MW. Gert er ráð fyrir að bæta við fjórðu vél­inni í inn­taks­mann­virki virkj­un­ar­innar og bæta við fjórðu þrýsti­píp­unni. Sig­öldu­stöð myndi eftir stækkun geta skilað allt að 215 MW afli í stað 150 MW í dag en orku­vinnslu­geta stöðv­ar­innar yrði hins vegar sam­bæri­leg og hún er í dag nema til komi meira rennsli.

Samkvæmt mats­á­ætlun Lands­virkj­unar er til­gang­ur­inn með fyr­ir­hug­aðri stækkun Sig­öldu­stöðvar að auka sveigj­an­leika í orku­af­hend­ingu og gera fyr­ir­tæk­inu kleift að mæta afltoppum þegar eft­ir­spurn er í hámarki. Með því að nýta betur aukið rennsli sé Lands­virkjun að sinna hlut­verki sínu um að hámarka afrakstur af þeim orku­lindum sem fyr­ir­tæk­inu er trúað fyrir með sjálf­bæra nýt­ingu, verð­mæta­sköpun og hag­kvæmni að leið­ar­ljósi.

Hönnuð til stækkunar

Sig­öldu­stöð var að sögn Lands­virkj­unar hönnuð þannig í upp­hafi að mögu­legt væri að stækka hana með því að bæta við fjórðu túrbín­unni. Um sé að ræða hag­kvæman kost til aflaukn­ingar þar sem mann­virki sem nú þegar eru til staðar yrðu nýtt betur.

Stækkun Sig­öldu­stöðvar var í orku­nýt­ing­ar­flokki í drögum verk­efn­is­stjórnar 4. áfanga ramma­á­ætl­unar að flokkun virkj­un­ar­kosta. Auk stækk­unar Sig­öldu­stöðvar var þar einnig lagt til að stækkun Hraun­eyja­foss­stöðvar og stækkun Vatns­fells­stöðvar fari í orku­nýt­ing­ar­flokk. En á loka­dögum þings­ins í vor var sam­þykkt laga­breyt­ing sem felur í sér að stækk­anir virkj­ana þurfa ekki lengur að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið hafa bent á og gera það einnig í athuga­semdum sínum við mats­á­ætlun Lands­virkj­unar, að stækk­unin muni ekki skila auk­inni raf­orku­fram­leiðslu nema að aukin miðlun vatns komi til. Hafa þau sagt Lands­virkjun ætla sér að byggja umdeilda virkjun, Kjalöldu­veitu, ofar á vatna­svið­inu, í þessum til­gangi. Kjalöldu­veita er ný útfærsla á Norð­linga­öldu­veitu, hafa sam­tökin m.a. sagt, þótt mann­virkin myndu standa utan friðlands­marka Þjórs­ár­vera myndu þau nýta sama vatna­svið. Með stækkun Sig­öldu­stöðvar væri ætl­unin að fara „bak­dyra­megin“ að bygg­ingu Kjalöldu­veitu. Þessu hafnar Lands­virkjun.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Lands­virkjun veitti Skipu­lags­stofnun kemur fram að sam­hliða stækkun Sig­öldu­stöðvar verði einnig hugað að því að auka virkjað rennsli í Hraun­eyja­foss­stöð og auka rennsli í gegnum Búð­ar­háls­stöð. Skipu­lags­stofnun bendir í áliti sínu á að fjalla þurfi um og meta sam­legð­ar­á­hrif stækk­unar Sig­öldu­stöðvar með öðrum núver­andi og fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum. Meðal þess sem gera þurfi grein fyrir er hvort umræddar stækk­anir leiði til breyt­inga á rennsli neðan virkj­ana sem og breyt­inga á vatns­hæð í lónum á veitu­leið. Að sama skapi bendir stofn­unin á að gera þurfi grein fyrir mögu­legum áhrifum þess að nýta vatns­afls­virkj­anir á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu til að bregð­ast við breyti­legri vinnslu vind­orku. Lands­virkjun áformar að reisa þar vind­orku­ver, Búr­fellslund. Umhverf­is­mati þess er þegar lokið og þingið færði virkj­un­ar­kost­inn í orku­nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar með afgreiðslu sinni í vor.

Gera ráð fyrir meira rennsli vegna hlýnunar

Í mats­á­ætlun Lands­virkj­unar kemur fram að síð­ustu ár hafi rennsli auk­ist vegna hlýn­unar loft­lags og að rennsli til Sig­öldu­stöðv­ar­innar sé meira í dag en það var þegar stöðin var byggð vegna ýmissa fram­kvæmda við veitur og miðl­anir. Þetta hafi gert það að verkum að gengið hafi á sveigj­an­legt afl í raf­orku­kerfi Lands­virkj­unar upp að því marki að erfitt sé orðið að mæta hæstu afltoppum.

Á næstu árum geri spár ráð fyrir mark­vert hærra með­al­rennsli í ám á Íslandi árin 2021-2050 heldur en var á árunum 1961-1990 þegar Sig­öldu­stöð var byggð, þannig megi búast við því að enn frekar verði gengið á laust afl í raf­orku­kerf­inu. Einnig sé ljóst að þörfin hafi auk­ist fyrir aukna orku­fram­leiðslu og sveigj­an­leika í afli til að anna orku­skiptum á kom­andi ára­tugum.

Í umsögn Orku­stofn­unar á mats­á­ætl­un­inni kemur meðal ann­ars fram að ekki sé vikið að áætl­unum um vatns­nýt­ingu í grein­ar­gerð Lands­virkj­unar. Það er að segja ef rennsli yrði aukið í gegnum Sig­öldu­virkjun á álags­tíma sem gæti síðar haft áhrif á nýt­ingu virkj­un­ar­innar og ann­arra rað­tengdra virkj­ana er liði að lokum vatns­árs, m.a. með hugs­an­legri hættu á skerð­ingu líkt og gerð­ist síð­vetrar 2022.

Í athuga­semdum Nátt­úru­griða kemur meðal ann­ars fram að Lands­virkjun þurfi að gera betur grein fyrir því af hverju gengið hefur á sveigj­an­legt afl í raf­orku­kerfi Lands­virkj­unar en það sé ekki ein­ungis vegna auk­ins rennslis og fram­kvæmda við veitur og miðl­anir á Þjórsár-Tungna­ár­svæð­inu eins og hér sé gefið í skyn. „Skipu­lags­stofnun tekur undir með umsagn­ar­að­ilum og bendir á mik­il­vægi þess að greint verði nánar frá áhrifum stækk­unar á rekstur, rað­tengdar virkj­anir og orku­ör­yggi í umhverf­is­mats­skýrslu,“ segir í áliti stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjalölduveita

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár