„Meira rennsli“ forsenda þess að stækkun Þjórsárvirkjana skili meiri orku

Til að stækk­anir á þremur virkj­unum Lands­virkj­unar á hálend­inu skili auk­inni orku þarf meira vatn að renna í gegnum þær. Þrennt getur upp­fyllt þá þörf: Bráðnun jökla, meiri úrkoma og ný veita.

Fossinn Dynkur er ofarlega í Þjórsá. Rennsli í honum myndi skerðast verulega með tilkomu Kjalölduveitu.
Fossinn Dynkur er ofar­lega í Þjórsá. Rennsli í honum myndi skerð­ast veru­lega með til­komu Kjalöldu­veitu. Mynd: Árni Tryggvason

Lands­virkjun áformar að auka afl­getu þriggja virkj­ana sinna á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu með því að bæta einni túrbínu við þær allar. En til að þessi stækkun skili auk­inni raf­orku­fram­leiðslu þarf meira rennsli að koma til. Þrennt getur stuðlað að því: Aukin bráðnun jökla og/eða aukin úrkoma – tvö atriði sem Lands­virkjun til­tekur í áformum sínum – en einnig stór­tækur flutn­ingur vatns vestar úr vatna­sviði Þjórsár, norðan núver­andi virkj­ana.

Og það er einmitt hug­myndin með hinni umdeildu Kjalöldu­veitu sem Alþingi sam­þykkti fyrir helgi, á síð­asta degi þings­ins, að setja í bið­flokk ramma­á­ætl­unar en ekki í vernd­ar­flokk líkt og verk­efn­is­stjórn áætl­un­ar­innar hafði lagt til og upp­runa­leg þings­á­lykt­un­ar­til­laga gerði ráð fyrir.

Lands­virkjun hefur lengi talað fyrir því að Kjalöldu­veita verði ekki sett í vernd­ar­flokk. Að hún sé ekki önnur útgáfa af Norð­linga­öldu­veitu líkt og verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar komst að á sínum tíma. Hún sé utan friðlands Þjórs­ár­vera þótt þar muni aðeins örfáum kíló­metrum.

Sú ósk fyr­ir­tæk­is­ins hefur nú verið upp­fyllt með afgreiðslu nýrrar ramma­á­ætl­unar.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið telja að með fyr­ir­hug­uðum stækk­unum Vatns­fells-, Sigöldu- og Hraun­eyja­foss­virkj­ana ætli Lands­virkjun „bak­dyra­megin í Kjalöldu­veitu“. Stækk­an­irnar séu „óarð­bærar og gagns­lausar“ nema að fyr­ir­tækið fari einnig í þá virkjun. „Án þess að fá við­bót­ar­vatn úr Þjórsá yrði við­bót­arraforku­fram­leiðsla alltof lítil til að bera sig fjár­hags­lega,“ sögðu sam­tökin í frétta­til­kynn­ingu vegna máls­ins á dög­unum.

Þessu hafnar Lands­virkjun. Gunnar Guðni Tómasson, fram­kvæmda­stjóri vatns­afls hjá fyr­ir­tæk­inu, sagði t.d. í við­tali við Morg­un­blaðið þurfa „fjörugt ímynd­un­ar­afl“ til að tengja stækk­an­irnar og Kjalöldu­veitu saman.

Áhrif áformaðra stækkana virkjana Landsvirkjunar á orkuframleiðslu.
Áhrif áform­aðra stækk­ana virkj­ana Lands­virkj­unar á orku­fram­leiðslu.

En stjórn­endur Lands­virkj­unar neita því þó ekki að Kjalöldu­veita myndi bæta nýt­ingu vatns á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu, „og þar með arð­semi bæði núver­andi virkj­ana og stækk­ana á þeim“. Þetta kom fram í minn­is­blaði Lands­virkj­unar sem sent var umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis í byrjun mán­að­ar­ins. Engu að síður væri Kjalöldu­veita „ekki for­senda slíkra stækk­ana“.

Minn­is­blaðið sendi Kristín Linda Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, er nefndin óskaði eftir skýr­ari svörum um for­sendur þess að ráð­ast þyrfti í stækkun virkj­an­anna. Nefndin var þá bæði með til­lögu að ramma­á­ætlun til með­ferðar og frum­varp um breyt­ingar á lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun (ramma­á­ætlun) sem ein­falda stækkun virkj­ana sem þegar eru í rekstri.

Með breyt­ing­unni, sem líkt og þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar var sam­þykkt á loka­dögum þings­ins, þurfa slíkar stækk­anir ekki lengur að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Þær þurfa ekki að koma til mats fag­hópa hvers áfanga hennar og verk­efn­is­stjórnar. Svo fram­ar­lega sem stækk­unin feli ekki í sér rask á órösk­uðu landi. „Með því að und­an­skilja stækk­anir á virkj­unum sem ein­göngu hafa áhrif á það land­svæði sem þegar er búið að taka ákvörðun um að heim­ila nýt­ingu á verður hægt að hraða fram­kvæmdum til að auka afkasta­getu þeirra virkj­ana sem þegar eru í rekstri,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Umhverfismat vegna stækkunar Sigölduvirkjunar er hafið. Á myndinni sést kerfið sem fóðrar virkjunina af vatni til öflunar rafmagns.
Umhverf­is­mat vegna stækk­unar Sig­öldu­virkj­unar er hafið. Á mynd­inni sést kerfið sem fóðrar virkj­un­ina af vatni til öfl­unar raf­magns.

Stækk­anir á virkj­unum þurfa áfram sem hingað til að fara í gegnum umhverf­is­mat, það er að segja ef þær fela í sér mats­skyldar fram­kvæmdir sam­kvæmt ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar. Það ferli getur vissu­lega tekið nokkra mán­uði en þó ekki mörg ár líkt og reynslan hingað til er af afgreiðslu áfanga ramma­á­ætl­unar.

Samtals hyggst Lands­virkjun auka upp­sett afl virkj­an­anna þriggja um 210 MW en áætlað er að sam­an­lögð orku­vinnslu­geta myndi með þessu aðeins aukast um 25–42 gíga­vatt­stundir (GWst) á ári.

Raf­orku­vinnsla á Íslandi árið 2020 var 19.127 GWst. Verði allar virkj­an­irnar þrjár stækk­aðar myndi það ein­göngu hafa 0,13-0,22 pró­sent vinnslu­aukn­ingu í för með sér miðað við það ár. Við núver­andi aðstæður myndu stækk­an­irnar auka vinnslu í virkj­un­unum þremur um 1-1,5 pró­sent. Það verður að telj­ast mjög lítið.

Athygli höfunda frumvarps vakin

Þetta fór ekki fram­hjá höf­undum laga­frum­varps­ins um stækk­un­ar­heim­ild­irnar.

„Athygli vekur að aukn­ing í orku­vinnslu­getu vatns­afls­virkj­an­anna þriggja er lítil miðað við hve upp­sett afl eykst mikið,“ sagði í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. „Í venju­legu árferði hefur vatns­afls­virkjun með upp­sett afl 210 MW orku­vinnslu­getu upp á um 1300 GWst á ári. En því er ekki að heilsa hvað þessar áform­uðu stækk­anir Lands­virkj­unar áhrærir.“

En hvers vegna vill Lands­virkjun þá að ráð­ast í dýrar og umfangs­miklar fram­kvæmdir í þremur virkj­unum ef ávinn­ing­ur­inn – raf­magns­fram­leiðslan – er ekki meiri?

„Auka­vél­bún­að­inum sem setja á upp í umræddum stækk­unum er ætlað að nýta leys­inga­vatn sem í núver­andi ástandi fer ónýtt fram hjá vélum stöðv­anna þegar mikið rennsli er í ánum og miðl­un­ar­lón full,“ sagði í grein­ar­gerð frum­varps­ins. „Slíkar aðstæður eru fyrir hendi í ein­ungis skamman tíma á hverju ári og því yrðu við­bættu vél­arnar nýttar aðeins í þann stutta tíma.“

Það þarf sem sagt meira vatn. Svo að nýju vél­arnar skili þeim GWst af orku sem þær ráða við að fram­leiða miðað við afl­getu sína.

„Með þess­ari aflaukn­ingu eykst orku­vinnslu­geta stöðv­ar­innar aðeins lít­il­lega nema að til komi meira rennsli, til dæmis með auk­inni bráðnun jökla eða auk­inni úrkomu,“ segir Lands­virkjun í nýfram­lag­aðri mats­á­ætlun vegna stækk­unar Sig­öldu­virkj­unar um allt að 65 MW. Þar með er hafið umhverf­is­mat á stækkun fyrstu virkj­un­ar­innar af þremur.

Á kortinu má var virkjanirnar þrjár sem áformað er að stækka, Vatnsfells, Sigöldu og Hrauneyjafossvirkjanir, er að finna. Þórisvatn er stærsta uppistöðulónið á svæðinu þaðan sem vatni er miðlað til virkjananna.
Á kort­inu má var virkj­an­irnar þrjár sem áformað er að stækka, Vatns­fells, Sigöldu og Hraun­eyja­foss­virkj­anir, er að finna. Þór­is­vatn er stærsta uppi­stöðu­lónið á svæð­inu þaðan sem vatni er miðlað til virkj­an­anna.

Sig­öldu­virkjun, sem gang­sett var í byrjun árs 1978, er 150 MW að afli en yrði 215 MW með því að bæta við fjórðu túrbín­unni. „Hins vegar þá verður orku­vinnslu­geta stöðv­ar­innar sam­bæri­leg og hún er í dag nema að til komi meira rennsli,” segir á öðrum stað í mats­á­ætl­un­inni. Í henni er hvergi minnst á þriðja val­mögu­leik­ann: Að afla meira vatns inn í virkj­ana­kerfið með veitu ofar á vatna­svæð­inu.

Til­gang­ur­inn með fyr­ir­hug­aðri aflaukn­ingu í Sig­öldu­stöð er að sögn Lands­virkj­unar „auka sveigj­an­leika í orku­af­hend­ingu“ og gera fyr­ir­tæk­inu kleift að mæta afltoppum þegar eft­ir­spurn er í hámarki. „Síðustu ár hefur rennsli auk­ist vegna hlýn­unar loft­lags og einnig er rennsli til stöðv­ar­innar meira í dag en það var þegar stöðin var byggð vegna ýmissa fram­kvæmda við veitur og miðl­anir.“

Jöklar bráðna og rennslið eykst

Á næstu árum geri spár ráð fyrir mark­vert hærra með­al­rennsli í ám á Íslandi árin 2021-2050 heldur en var á árunum 1961-1990 þegar Sig­öldu­stöð var byggð.

Það er bláköld stað­reynd að jöklar lands­ins eru að rýrna vegna lofts­lags­breyt­inga og sumir þeirra gætu jafn­vel horfið á næstu 1-2 öldum, gangi spár eftir. Afrennsli af þeim mun því halda áfram að aukast á næstu ára­tugum, líkt og Veð­ur­stofan hefur sett fram í sviðs­myndum sínum.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Nátt­úru­grið telja engu að síður aug­ljóst að stækk­anir virkj­an­anna þriggja gætu „aldrei borgað sig“ sem sjálf­stæðar fram­kvæmdir.

Þjórsárver með Hofsjökli í baksýn. Hofsjökull mun, ef fram heldur sem horfir, halda áfram að rýrna á næstu áratugum. Vatn undan honum rennur í Þjórsá. Mynd: Sigurður Magnússon
Þjórs­ár­ver með Hofsjökli í bak­sýn. Hofs­jök­ull mun, ef fram heldur sem horfir, halda áfram að rýrna á næstu ára­tugum. Vatn undan honum rennur í Þjórsá. Mynd: Sigurður Magn­ús­son

Kostnaðurinn 6-8 sinnum meiri en mögulegar tekjur

Sigurður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Íslands, vann að beiðni sam­tak­anna arð­sem­is­mat fyrir stækk­an­irnar. Hann mat núvirtar fram­tíð­ar­tekjur af þeim á bil­inu 600–2.500 millj­ónir króna miðað við hag­rænan afskrift­ar­tíma upp á 25 ár. Til sam­an­burðar yrði kostn­aður við fram­kvæmd­irnar sam­an­lagt vart undir 15–20 millj­örðum, eða um 5–7 millj­arðar króna á hverja stækkun. Kostn­aður yrði því um 6–8 sinnum meiri en mögu­legar tekjur og væri þar þá ekki tekið til­lit til vaxta­kostn­aðar eða orku­sölu­taps meðan á fram­kvæmdum stæði.

Að mati Nátt­úru­griða er því eng­inn fjár­hags­legur grund­völlur fyrir stækk­un­unum sem sjálf­stæðum virkj­ana­kostum, byggt á þeim upp­lýs­ingum sem Lands­virkjun hefur sent inn til Orku­stofn­unar. „Til þess að stækk­an­irnar gengju upp þyrfti aukið vatn í uppi­stöðu­lón virkj­an­anna þriggja enda væri eina raun­hæfa leiðin að auka vatns­rennslið í gegnum stækk­an­irnar og fram­leiða þannig meiri raf­orku. Eini mögu­leiki Lands­virkj­unar á að auka vatns­magnið væri með Kjalöldu­veitu.“

Með Kjalöldu­veitu yrði Þjórsá stífluð nokkrum kíló­metrum neðar en áætlað var með Norð­linga­öldu­veitu á sínum tíma. Stífla yrði reist þvert yfir far­veg Þjórsár með inn­takslóni, dælum, rennsl­is­göngum og skurðum. Frá inn­takslón­inu yrði vatni dælt til aust­urs yfir í Þór­is­vatn þaðan sem það myndi renna í gegnum allar þrjár virkj­an­irnar sem Lands­virkjun hyggst stækka.

Kjalöldu­veita yrði reist á órösk­uðu landi og hefði til dæmis mikil áhrif á rennsli í fjórum fossum, mis­jafn­lega mikið eftir árs­tíma þó. Fossar njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Ef af Kjalöldu­veitu yrði myndu þeir verða bergvatns­fossar að mestu því jök­ul­vatn­inu yrði veitt fram hjá þeim.

Viðhald og vindorkuver

Lands­virkjun hefur rök­stutt áform­aðar stækk­anir með fleiri þáttum en auknu vatns­rennsli. Þannig hefur komið fram að nýjar vélar kæmu sterkar inn þegar þær eldri þurfa við­hald. Auk þess þurfi meira afl í raf­magns­fram­leiðslu vegna áform­aðra vind­orku­vera. Einn slíkur virkj­ana­kostur, Búr­fellslundur, var einmitt færður úr bið­flokki til­lögu að ramma­á­ætlun í nýt­ing­ar­flokk við afgreiðslu þings­ins í síð­ustu viku. Sá er á Hafinu, svæði austan Þjórsár. Umhverf­is­mati á þeirri áform­uðu fram­kvæmd lauk árið 2016.

Samanburður á 145 metra hárri vindmyllu við Hallgrímskirkju. Á síðustu árum hafa vindmyllur hækkað enn frekar, eru orðnar um 200 metrar jafnvel. Myndin er úr frummatsskýrslu Landsvirkjunar vegna Búrfellslundar frá árinu 2015.
Sam­an­burður á 145 metra hárri vind­myllu við Hall­gríms­kirkju. Á síð­ustu árum hafa vind­myllur hækkað enn frekar, eru orðnar um 200 metrar jafn­vel. Myndin er úr frum­mats­skýrslu Lands­virkj­unar vegna Búr­fellslundar frá árinu 2015.

Með gerð vind­orku­garða aukast sveiflur í eft­ir­spurn eftir raf­magni frá vatns­afls­virkj­unum, bendir Sigurður for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar á í arð­sem­is­mati sínu. „Þegar vindur blæs sem mest má safna vatni í virkj­un­ar­lón, en tappa af þeim þegar lygnt er.“ Með nýjum afl­vélum gef­ist því færi á að laga fram­leiðsl­una betur að eft­ir­spurn.

En ef Lands­virkjun á að hafa veru­legar tekjur af stækk­un­unum verður verð­lagn­ing á raf­magni að breyt­ast, skrifar hann. Erlendis sé raf­magns­verð síbreyti­legt – hæst þegar eft­ir­spurnin er mest. En slíku er ekki að heilsa hér á landi. Verð­lagn­ingin er, að sögn Sigurðar, „frum­stæð­ari“ en í grann­lönd­unum. „Heild­sölu­verð er treg­breyti­legt og varla hægt að segja að það taki mið af fram­boði og eft­ir­spurn. Meg­in­á­stæðan er yfir­burða­staða Lands­virkj­unar, sem í raun er ein­ráð á heild­sölu­mark­aði.“

Lög gera ráð fyrir að Landsnet reki markað með raf­magn. Slíkur mark­aður hefur að sögn Sigurðar nokkrum sinnum verið boð­aður, enn ekk­ert hefur enn orðið úr þeim ráða­gerðum.

Öll verkefni þurfa að skila arðsemi

„Lands­virkjun vill ítreka að kostn­að­ar­verð fyrir allar stækk­anir og aflaukn­ingar í virkj­unum á Þjórs­ár­svæði [...] eru skoð­aðar óháð Kjalöldu­veitu,“ skrif­aði Kristín Linda aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar í minn­is­blaði sínu til þing­nefnd­ar­innar á dög­unum. Öll þau stækk­unar- og aflaukn­inga­verk­efni sem Lands­virkjun ráð­ist í þurfi hverju sinni að skila arð­semi í sam­ræmi við kröfur eig­anda Lands­virkj­unar.

Eig­and­inn er íslenska ríkið.

„Um er að ræða hag­kvæman kost til aflaukn­ingar þar sem að mann­virki, sem nú þegar eru til staðar, yrðu nýtt betur,“ stendur í mats­á­ætlun Lands­virkj­unar vegna áform­aðrar stækk­unar Sig­öldu­virkj­unar. „Með því að nýta betur aukið rennsli er Lands­virkjun að sinna hlut­verki sínu um að hámarka afrakstur af þeim orku­lindum sem fyr­ir­tæk­inu er trúað fyrir með sjálf­bæra nýt­ingu, verð­mæta­sköpun og hag­kvæmni að leið­ar­ljósi.“

Einnig segir fyr­ir­tækið ljóst að þörf sé á auk­inni orku­fram­leiðslu og sveigj­an­leika í afli til að anna orku­skiptum á kom­andi ára­tugum. Hvort reisa þurfi nýjar virkj­anir vegna orku­skipta er þó umdeilt.

Mikill stuðningur við frumvarpið

Flestir ef ekki allir eru áfram um að auka nýt­ingu núver­andi virkj­ana frekar en að ráð­ast í nýjar virkj­anir. Frum­varp­inu um að stækk­anir virkj­ana þurfi ekki lengur að fara í gegnum ramma­á­ætlun var því tekið fagn­andi af mörgum. Auðvitað á að heim­ila stækk­anir sem ekki raska áður órösk­uðu landi.

Um það er vart deilt og það skýrir þá sam­stöðu sem var um þessa laga­breyt­ingu á þingi mið­viku­dag­inn 15. júní. Fimmtíu þing­menn sögðu já. Sex greiddu ekki atkvæði. Enginn sagði fullum fetum nei.

Meðal þeirra sem sagði já var Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún hafði þó gert fyr­ir­vara við álit meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar um málið. Í álit­inu kemur fram það mat meiri­hlut­ans að með hlið­sjón af skýr­ingum sem Land­virkjun gaf, yrðu stækk­unar­á­formin í virkj­un­unum í þremur í Þjórsá arð­bær ein og sér og að „Kjalöldu­veita sé með öllu ótengd fyr­ir­hug­uðum stækk­unar­á­formum“.

Þannig væri mik­il­vægt að hafa í huga að Kjalöldu­veita hefði í för með sér umhverf­is­rask á órösk­uðu landi. Áréttaði meiri­hlut­inn í því sam­bandi að auk­inni afl­þörf sé mætt með stækkun virkj­ana á þegar rösk­uðu land­svæði.

Þórunn skrif­aði undir álitið en með þeim fyr­ir­vara að hún teldi ekki liggja fyrir gögn „sem styðja það mat meiri­hluta nefnd­ar­innar að stækk­unar­á­form Lands­virkj­unar á virkj­unum í Þjórsá séu arð­bær sem sjálf­stæðar fram­kvæmdir“.

Biðleikurinn

Kjalöldu­veita er sem fyrr segir komin í bið­flokk ramma­á­ætl­unar. Í þann flokk áætl­un­ar­innar falla þær virkj­ana­hug­myndir sem afla þarf frek­ari gagna um áður en hægt er að ákveða hvort þær falli að end­ingu í annað hvort nýt­ing­ar­flokk eða vernd­ar­flokk. Það verður hlut­verk verk­efn­is­stjórnar fimmta áfanga áætl­un­ar­innar, sem þegar hefur tekið til starfa, að gera til­lögu þar um. Síðan er það á ábyrgð Alþingis að ákvarða end­an­lega hvar veitan, sem sumir vilja meina að sé Norð­linga­öldu­veita í dul­ar­gervi – virkjun rétt utan friðlands­marka Þjórs­ár­vera sem gæti engu að síður haft áhrif á þá ein­stöku nátt­úru­smíð – endar í næsta áfanga ramma­á­ætl­unar. Hvort virkjað verði eða verndað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár