Foreldrar fjármálaráðherra áttu félag á Tortóla

For­eldrar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra áttu félag á Tortóla frá 2000 til 2010. Þetta kemur fram í Panama­skjöl­unum.

Bene­dikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, stofn­aði fyr­ir­tækið Green­lig­ht Hold­ing Lux­em­bourg S.A. á Tor­tólu í gegn­um lög­fræði­stof­una Mossack Fon­seca árið 2000.

Stundin greinir frá þessu í dag, en upp­lýs­ingar um félagið eru í Panama­skjöl­unum sem Reykja­vík Media hefur aðgang að og vinnur nú úr ásamt Stund­inni, Kjarn­anum og RÚV.

Bene­dikt og eig­in­kona hans og móðir Bjarna, Guðríður Jóns­dóttir, sátu sjálf í stjórn fé­lags­ins og fengu bæði pró­kúru­um­boð yfir félag­inu. Það að þau hafi setið sjálf í stjórn­inni er nokkuð frá­brugðið fyr­ir­komu­lag­inu á flestum fyr­ir­tækj­unum í Panama­skjöl­unum.

Hætt var að greiða gjöld af fé­lag­inu til Mossack Fon­seca árið 2010 og félagið var afskráð í lok þess árs. Ekki liggur fyrir hvers vegna félagið var stofnað, hvaða eignir það átti eða hvaða skatta­legu áhrif félagið hafði, ef nokkur.

Bjarni átti sjálfur 40 millj­óna hlut í félagi sem skráð var á Seychelles-eyj­um, Falson og Co., sem var einnig að finna í Panama­skjöl­unum. Hann hafði áður neitað því að eiga, eða hafa átt, pen­inga í skatta­skjól­um. Bjarni sagði félagið hafa verið stofnað í kring um félag sitt og félaga sinna til að kaupa fast­eign í Dubai, sem varð þó aldrei af. Hann svar­aði fyrir þetta svo að hann hafi haldið að félagið hafi verið skráð í Lux­em­borg, en ekki á skatta­skjóls­eyj­un­um. Félagið var sett í afsk­rán­ing­ar­ferli 2009. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár