Tuttugu glæpa­sagna kvenna­hópur Þær Jónína Leós­dóttir, Sólveig Páls­dóttir, Lila Sig­urð­ar­dóttir og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir segja enga sér­staka sam­keppni ríkja þeirra á milli, enda engin ástæða til – þær til­heyri hver sínum und­ir­flokki glæpa­sög­unnar og það sé nóg pláss fyrir þær allar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það venst, að drepa fólk

Á dimmu og drunga­legu miðvikudags­kvöldi seint í október komu þær Jónína Leós­dóttir, Lilja Sigurðar­dóttir, Sólveig Páls­dóttir og Yrsa Sigurðar­dóttir saman í Breið­holti, til að deila með sér og fullum sal áheyrenda glæp­samlegum atvinnu­leyndar­málum.

Hið mánaðar­lega bókakaffi í Gerðu­bergi var með óvenju­legu sniði þetta október­kvöld, því skáld­konurnar sáu sjálfar um að spyrja hver aðra spjörunum úr og gefa þannig áheyrendum ferska innsýn í hvernig hugur og hjarta glæpa­rithöfunda starfar. Samræðurnar voru hluti af glæpasagna­hátíðinni Iceland Noir sem fer fram í Norræna húsinu 17.–20. nóvember en þar koma saman fimmtíu höfundar, íslenskir og erlendir, og sökkva sér í umræður um glæpa­sögur.

Samanlagt hafa þær Yrsa, Lilja, Sólveig og Jónína sent frá sér um tuttugu glæpa­sögur. Varla þarf að taka fram hver hefur skrifað flestar þeirra. Yrsa er óumdeild glæpa­drottning Íslands en hennar ellefta glæpasaga, Aflausn, er væntanleg fyrir jólin. Lilja sendi nýverið frá sér sína fjórðu glæpasögu, Netið, sem er sjálfstætt framhald Gildrunnar sem kom út haustið 2015. Sólveig hefur skrifað þrjár glæpa­sögur og vinnur nú að þeirri fjórðu. Nýgræðingurinn í glæpa­hópnum, þó hún sé langt frá því að vera að hefja rithöfundar­ferilinn, er svo Jónína Leós­dóttir, sem vinnur að sinni annarri glæpasögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár