Landsbankinn ætlar að afhenda Alþingi samantekt um sölu á hlut í Borgun

Lands­bank­inn ætlar að eigin frum­kvæði að afhenda Alþingi sam­an­tekt um sölu bank­ans á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun í nóv­em­ber 2014. Bankinn segir að hann hafi ekki haft neinar upp­lýs­ingar um að Borgun myndi fá greiðslur vegna yfir­töku Visa Inc. á Visa Europe en að umsvif Borgunar í Visa-við­skiptum hafi marg­fald­ast eftir sölu Lands­bank­ans á hlut sínum vegna vaxtar í færslu­hirð­ing í net­við­skiptum erlendis. Lands­bank­inn taldi áætl­anir um vöxt vera veru­lega áhættu­samar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Lands­bank­inn hefur sent frá sér. Þar segir einni að vegna umræðu um sölu á eign­ar­hlutnum í Borgun hafi bank­inn tekið saman ítar­legar og aðgengi­legar upp­lýs­ingar og birt þær á vef­síðu sínni.

Í til­kynn­ing­unni segir að á vef Lands­bank­ans komi m.a. fram:

„að bank­inn hafði ekki upp­lýs­ingar um að val­réttur vegna hugs­an­legrar yfir­töku Visa Inc. á Visa Europe myndi leiða til greiðslna til Borgunar. Þetta hafði heldur ekki komið fram í tengslum við önnur við­skipti með hluti í Borgun á árunum 2009-2014.

Lands­bank­inn var í við­ræðum um sölu á eign­ar­hlutum sínum í Valitor og Borgun á svip­uðu tíma­bili á árinu 2014, þótt við­skipt­unum með hluti í Borgun hafi lokið fyrr.

Í við­ræðum Lands­bank­ans við meiri­hluta­eig­anda Valitor, Arion banka, lágu fyrir upp­lýs­ingar um rétt­indi Valitor í tengslum við val­rétt­inn, þótt úti­lokað hafi verið að leggja áreið­an­legt mat á verð­mætin á þeim tíma­punkti.

Borgun gerir upp sam­kvæmt alþjóð­legum reikn­ings­skila­stöðlum (IFRS) og ber því að færa slík rétt­indi á gang­virði á hverjum tíma. Það að Borgun hafi ekki metið slík rétt­indi til eignar og/eða gert grein fyrir þeim í sínum árs­reikn­ingum eða í upp­lýs­inga­gjöf til Lands­bank­ans, bendir til þess að Borgun hafi á þeim tíma ekki átt til­kall til rétt­ind­anna, þau hafi ekki verið til staðar eða þau væru það óljós að ekki væri hægt að reikna þau til verð­mætis.

Í við­ræðum við stjórn­endur Borgunar komu heldur ekki fram neinar upp­lýs­ingar um að Borgun hefði rétt á hlut­deild í verð­mætum val­rétt­ar­ins, hvað þá að vegna hans hefðu skap­ast verð­mæti hjá Borgun.

Lands­bank­inn hefur enga ástæðu til að ætla að stjórn­endur Borgunar hafi verið með­vit­aðir um til­vist slíkra rétt­inda.

Lands­bank­anum var kunn­ugt um að Borgun hugð­ist auka veru­lega færslu­hirð­ingu fyrir selj­endur í erlendum net­við­skiptum. Að mati bank­ans fylgdi þeirri starf­semi veru­leg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til tjóns hjá félag­inu og skaðað orð­spor Lands­bank­ans.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Lands­bank­ans marg­föld­uð­ust erlend Visa-umsvif Borgunar á árinu 2015 miðað við það sem áður var. Langstærstur hluti fjár­hæð­ar­innar sem Borgun á von á mun vera vegna við­skipta sem urðu eftir að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í félag­inu.

Íslands­banki keypti undir árs­lok 2011 fjár­mála­fyr­ir­tækið Byr hf. af slita­stjórn Byrs spari­sjóðs. Um 20% hlutur í Borgun fylgdi með í kaup­unum. Selj­endur Byrs voru ann­ars vegar slita­stjórnin með um 88% hlut og hins vegar rík­is­sjóður með um 12% hlut, en rík­is­sjóður hafði lagt til fjár­muni við stofnun BYR. Meðal kröfu­hafa sem áttu mik­illa hags­muna að gæta voru líf­eyr­is­sjóðir. Óháð fjár­mála­fyr­ir­tæki var til ráð­gjafar í sölu­ferl­inu. Lands­bank­inn gerði einnig til­boð í Byr. Engar upp­lýs­ingar komu þá fram um að Borgun gæti átt rétt á greiðslum vegna sam­runa Visa Inc. og Visa Europe.

Fleiri við­skipti áttu sér stað með hluti í Borgun á árunum 2009-2014 en Lands­bank­inn veit ekki til þess að fyr­ir­varar um greiðslur vegna sam­runa Visa Inc. og Visa Europe hafi verið gerðir í þeim við­skiptum, enda lágu ekki fyrir upp­lýs­ingar um þessi verð­mæti.

Við söl­una lá ekki fyrir að hvaða marki áformin um aukin erlend við­skipti yrðu í sam­starfi við Visa, Mastercard eða aðrar korta­sam­stæður."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár