Friðlýsingaráform Minjastofnunar setja lagningu Sundabrautar í uppnám

Vega­gerðin hefur sent Minja­stofnun Íslands bréf og óskað eftir fundi. Ástæðan er sú að áform hennar um frið­lýs­ingu meðal ann­ars í Álfsnesi geta haft veru­leg áhrif á lagn­ingu Sunda­brautar, þar sem svæðið er á ætl­uðu vegstæði Sunda­brautar.

Tveir valkostir eru nú vegnir og metnir af starfshópi Vegagerðar, Reykjavíkur, SSH og Faxaflóahafna. Annar er jarðgöng, hinn lágbrú.
Tveir val­kostir eru nú vegnir og metnir af starfs­hópi Vega­gerðar, Reykja­víkur, SSH og Faxa­flóa­hafna. Annar er jarð­göng, hinn lág­brú. Mynd: stjórnarráðið

Áform Minja­stofn­unar um að frið­lýs­ingu við Þern­eyj­ar­sund, í Þerney og í Álfsnesi geta „haft veru­leg áhrif á lagn­ingu Sunda­brautar“. Þetta kemur fram í bréfi sem Vega­gerðin sendi til Minja­stofn­unar Íslands 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og Kjarninn hefur undir höndum.

Ástæða bréfa­send­ing­ar­innar eru áform Minja­stofn­unar Íslands um frið­lýs­ingu við Þerney og Álfsnes, en á meðal þess svæðis sem stendur til að frið­lýsa er ætlað vegstæði Sunda­brautar. Gert er ráð fyrir að síð­ari áfangi Sunda­brautar liggi frá Gufunesi, um Geld­ing­ar­nes, yfir Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og Kolla­fjörð.

Með öðrum orðum: Ef af frið­lýs­ing­unni verður þá mun ekki vera hægt að leggja Sunda­braut.

Í bréfi Vega­gerð­ar­innar segir að hún hefði kosið að Minja­stofnun hefði litið á Vega­gerð­ina sem hags­muna­að­ila varð­andi frið­lýs­ing­ar­á­formin og óskað eftir form­legri umsögn áður en ákvörðun yrði tekin. „Vega­gerðin gerir því athuga­semdir við áformin og óskar eftir fundi með full­trúum Minja­stofn­unar áður en lengra er haldið.“

[adspot]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur til að and­mæli Reykja­vík­ur­borgar vegna áforma Minja­stofn­unar verði opin­ber síðar í dag.

Sundabraut verið á dagskrá í áratugi

Áratugir eru síðan að Reykja­vík­ur­borg og íslenska ríkið settu fyrst fram áform um að leggja Sunda­braut. Vegurinn hefur raunar verið hluti af aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar frá árinu 1985 og inni á vega­skrá sem fyr­ir­hug­aður þjóð­vegur frá 1995.

Í sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2020-2034, sem sam­þykkt var á Alþingi í lok júní síð­ast­lið­ins, er lagn­ing Sunda­brautar inni. Samhliða voru sam­þykkt lög sem heimil að Vega­gerðin geti gert samn­ing við einka­að­ila um fjár­mögnun, fram­kvæmd, við­hald og rekstur Sunda­brautar, enda er fram­kvæmdin ekki fjár­mögnuð á sam­göngu­á­ætlun.

Samþykkt ofan­greindra laga og sam­göngu­á­ætl­unar var hluti af stærra sam­komu­lagi um að flýta sam­göngu­fram­kvæmdum, meðal ann­ars á for­sendum svo­kall­aðs sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem fjallar um hvernig kostn­að­ar­skipt­ing við stór­fram­kvæmdir þar verður á milli ríkis og sveit­ar­fé­lag­anna sem mynda svæðið. Í þeim sátt­mála er þó ekki talað ákveðið um Sunda­braut þurfi að verða að veru­leika heldur að við end­an­lega útfærslu fram­kvæmda verði „sér­stak­lega hugað að greiðri teng­ingu aðliggj­andi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“

Ekki hægt að velja verkefni eins og upp úr konfektkassa

Lyk­il­breyta í að fram­kvæma efn­is­þætti þess sátt­mála var sam­þykkt laga sem heim­ila stofnun opin­bers hluta­fé­lags um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem verður í sam­eign rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en slíkt hluta­fé­lag á til dæmis að fjár­magna lagn­ingu Borg­ar­línu.

[links]Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tjáði sig um sam­göngu­úr­bætur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun þessa mán­aðar, þar sem Borg­ar­lína og lagn­ing Sunda­brautar eru í aðal­hlut­verki.

Þar var hann spurður hvort að sam­göngusátt­máli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins myndi falla úr gildi ef Reykja­vík­ur­borg myndi ekki standa við sinn hluta um lagn­ingu Sunda­brautar. Bjarni svar­aði því til að það væri of mikið sagt að slík­ar van­efnd­ir væru þegar fram komn­ar. „En punkt­ur­inn er rétt­ur. Það get­ur ekki verið þannig að menn velji sér ein­stök verk­efni eins og upp úr kon­fekt­kassa en hirði ekki um önnur[...]Þessu fé­lagi verður komið á fót á næstu vik­um og þá fær­ist umræðan inn í þetta fé­lag, þó hún lifi auð­vitað áfram inni í þing­inu. En ef það strand­ar á ein­stök­um verk­efn­um í sátt­mál­an­um, nú þá er hann strand.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár