Hrunið kenndi Íslendingum að spara

Sparn­aður heim­ila á Íslandi hefur haldið áfram þrátt fyrir aukna einka­neyslu. Áður fyrr skuld­settu Íslend­ingar sig fyrir þeim hlutum sem þá lang­aði í en nú spara þeir fyrir þeim. Seðla­bank­inn telur að hrunið og kreppan orsaki þessa hegð­un­ar­breyt­ingu.

Flest mótmæli sem fram hafa farið undanfarin ár tengjast með einhverjum hætti efnahagshruninu haustið 2008.
Flest mót­mæli sem fram hafa farið und­an­farin ár tengj­ast með ein­hverjum hætti efna­hags­hrun­inu haustið 2008. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sparn­að­ar­hneigð Íslend­inga hefur breyst í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar. Þrátt fyrir kröft­ugan vöxt einka­neyslu und­an­farið og horfur á áfram­hald­andi miklum vexti hefur sparn­aður heim­ila haldið áfram að aukast, eig­in­fjár­staða og kaup­máttur auk­ist en skuldir heim­ila að lækka. Þetta kemur fram í riti Seðla­banka Íslands, Pen­inga­málum, sem birt var á mið­viku­dag.

Þar segir að auk breyttrar sparn­að­ar­hegð­unar þjóð­ar­innar hafi aðhalds­söm pen­inga­stefna Seðla­bank­ans einnig haft áhrif á „neyslu- og sparn­að­ar­á­kvarð­anir heim­ila.“ Þar er átt við áhrif vaxta­stefnu bank­ans, en vextir á Íslandi hafa hald­ist mjög háir þrátt fyrir lága verð­bólgu. Raunar hefur verð­bólga verið undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans frá því í febr­úar 2014 og mælist nú 1,1 pró­sent. Samt hafa meg­in­vextir bank­ans verið 5,75 pró­sent frá því í nóv­em­ber í fyrra. Þ.e. þangað til í dag þegar til­kynnt var að þeir verði lækk­aðir um 0,5 pró­sentu­stig niður í 5,25 pró­sent. Sú breyt­ing mun hafa áhrif til vaxta­lækk­unar á lánum þeirra sem eru með breyti­lega vexti á þeim, og lækka vexti á þeim lánum sem standa nýjum lán­tak­endum til boða.

Íbúðaverð hækkað um 12,9 prósent

Í Pen­inga­málum er farið vítt og breytt yfir aðstæður í íslensku efna­hags­lífi. Þar er meðal ann­ars greint frá því að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 12,4 pró­sent á milli ára og leigu­verð um 9,1 pró­sent á sama tíma. Til að setja þær tölur i sam­hengi þá hefur íbúð sem kost­aði 30 millj­ónir króna í júlí 2015 hækkað um 3,72 millj­ónir króna í verði á einu ári. Íbúð sem leigð­ist út á 150 þús­und krónur á mán­uði fyrir ári kostar nú tæp­lega 164 þús­und krónur á mán­uði.

Á sama tíma lækk­aði hluta­bréfa­verð, en Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar er nú tæp­lega níu pró­sentum lægri en hún var fyrir útgáfu Pen­inga­mála í maí. Í Pen­inga­málum segir að þessi lækkun end­ur­spegli að ein­hverju leyit llakari afkomu­horfur í kjöl­far mik­illar hækk­unar á inn­lendum kostn­aði og gengi krón­unnar.

Ferðamenn drífa áfram vöxt

Þjóð­ar­út­gjöld halda áfram að vaxa á fyrsta árs­fjórð­ungi og juk­ust um 8,3 pró­sent á milli ára, sem er meiri vöxtur en Seðla­bank­inn hafði gert ráð fyrir. Einka­neysla jókst um sjö pró­sent og fjár­fest­ing um fjórð­ung. Til við­bótar voru utan­rík­is­við­skipti hag­stæð­ari en áætlað var. ALlt þetta leiðir til þess að hag­vaxt­ar­spá bank­ans fyrir fjórð­ungin var gríð­ar­lega langt frá því sem síðar reynd­ist vera. Í maí hafði Seðla­bank­inn spáð því að hag­vöxtur á fyrstu þremur árum árs­ins yrði 1,7 pró­sent en hann reynd­ist vera 4,2 pró­sent. Hag­vöxtur á Íslandi hefur nú verið yfir fjögur pró­sent þrjú ár í röð. Gert er ráð fyrir áfram­hald­andi örum vexti á næsta ári.

Fjár­fest­ing heldur áfram að aukast og Seðla­bank­inn segir horfur á því að vöxtur hennar gæti orðið allt að 18 pró­sent á árinu í heild. Þá eru áfram­hald­andi horfur á því að útflutn­ingur á vöru og þjón­ustu haldi áfram að vaxi, og auk­ist um allt að 8,5 pró­sent á þessu ári. Ástæðan er ein­föld: ferða­menn. Í Pen­inga­málum segir: „Vöxt­ur­inn er að tals­verðu leyti bor­inn uppi af auknum þjón­ustu- útflutn­ingi, en ferða­mönnum hefur fjölgað ört og korta­velta þeirra hér á landi jókst mikið á fyrri hluta árs­ins frá sama tíma í fyrra. Horfur um vöru­út­flutn­ing eru hins vegar svip­aðar og í maí en sam­setn­ing vaxt­ar­ins hefur breyst lít­il­lega.“

Verðbólga áfram í kortunum

Helsta ástæða þess að vextir Seðla­bank­ans voru lækk­aðir í vik­unni eru þær að verð­bólgu­horfur hafa batnað frá síð­ustu spá bank­ans. Í Pen­inga­málum stendur að þar muni „mestu um að gengi krón­unnar hefur hækkað tölu­vert auk þess sem horfur eru á heldur meiri fram­leiðni­vexti í ár en þá var gert ráð fyrir. Eftir sem áður er spáð vax­andi verð­bólgu þegar áhrif geng­is­hækk­un­ar­innar taka að fjara út og að því gefnu að gengi krón­unnar hækki ekki frekar. Að gef­inni þeirri for­sendu er gert ráð fyrir að verð­bólga nái hámarki í um 3¾% á fyrri hluta árs 2018 en taki síðan að þok­ast í mark­mið á ný.“

Gert er ráð fyrir að olíu­verð á heims­mark­aði, sem er ein aðal­á­stæða lágrar verð­bólgu á Íslandi, lækki nokkru minna á þessu ári en áætlað var í maí þar sem verð­lækk­unin í sumar reynd­ist minni en búist hafði verið við. Framvirk verð benda hins vegar til minni hækk­unar á næstu árum en gert hafði verið ráð fyrir í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár