Öld „kellingabókanna“

„Síðasta áratuginn hafa bækur nokkurra kvenna sem fara á tilfinn­inga­legt dýpi sem lítið hefur verið kannað hér áður flotið upp á yfir­borðið,“ skrifar Salvör Gullbrá Þórarins­dóttir og nefnir að í ár eigi það sérstak­lega við um bækur Guðrúnar Evu og Evu Rúnar: Í skugga trjánna og Eldri konur. Hún segir skáld­konurnar tvær fara á dýptina inn í sjálfar sig, algjör­lega óhræddar við að vera gagnrýnar á það sem þær sjá.

Ásta Sigurðardóttir
Ásta Sig­urð­ar­dóttir var skáld­kona sem þorði að kanna til­finn­inga­dýpið á tólf mílna skóm síns tíma. Ljósmynd: Jón Kaldal.

Það sem kraumar undir niðri er að koma upp á yfir­borðið. Síðasta áratuginn hafa bækur nokkurra kvenna sem fara á tilfinningalegt dýpi sem hér hefur lítið verið kannað áður flotið upp á yfir­borðið og haldist þar. Þetta árið eru sérstak­lega tvær bækur, skáld­sagan Eldri konur eftir Evu Rún Snorra­dóttur og skáld­ævisagan Í skugga trjánna eftir Guðrúnu Evu Mínervu­dóttur, sem lesast eins og bækur sem eiga sér enga líka á Íslandi. Það einkennir bækurnar tvær hvernig þær ögra lesanda með innsæi sínu og hvað þær ganga nærri sér í skrifunum. Eins og komið hefur fram í viðtölum við skáld­konurnar eru báðar bækurnar að einhverju leyti eða miklu(í tilfelli Guðrúnar Evu) byggðar á reynslu þeirra sjálfra og segja má að þær leggi sjálfar sig að veði í bókunum.

„Konurnar í bókum Guðrúnar Evu og Evu elska af öllum krafti
Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir

…

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár