Þingmenn skora á ráðherra að stöðva flutning hælisleitenda til Ítalíu og Grikklands

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Átta þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa skorað á Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra að stöðva taf­ar­laust allar end­ur­send­ingar á fólki sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd hér á landi til Ítalíu og Grikk­lands.

Þetta kemur fram í áskor­un­inni sem þing­menn­irnir sendu ráð­herr­anum í dag. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Andrés Ingi Jónsson, Gunnar Hrafn Jónsson, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, Logi Ein­ars­son, Guðjón S. Brjáns­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir skrifa undir áskor­un­ina.

Þau skora einnig á ráð­herra að grípa til taf­ar­lausra aðgerða til þess að tryggja að með­ferð íslenskra stjórn­valda á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sé ávallt í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands.

„Nýlegar fréttir af málum Amir Shokrgozar og Abdol­hamid Rahmani, sem vísað var af landi brott og sendir til Ítalíu ann­ars vegar og Grikk­lands hins vegar, vekja sér­stakar áhyggjur und­ir­rit­aðra. Amir, sem er sam­kyn­hneigður flótta­maður frá Íran, á nú á hættu að verða sendur aftur til Íran þar sem hann­sér fram á á dauða­dóm fyrir kyn­hneigð sína. Abdol­hamid, sem er flótta­maður frá Afganistan, var í hung­ur­verk­falli vegna með­ferðar íslenskra stjórn­valda þegar hann var hand­tek­inn og sendur úr landi til Grikk­lands,“ segir í áskor­un­inni. 

Þing­menn­irnir vekja athygli á því að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi ítrekað úrskurðað að end­ur­send­ingar flótta­manna til landa þar sem hætt er á að þeir verði sendir áfram til land­svæðis þar sem grund­vall­ar­rétt­indum þeirra sé hætta búin stand­ist á við Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, og alþjóð­legan flótta­manna­rétt.

„Þá ber að geta þess að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hefur ekki snúið við þeim ákvörð­unum sínum að end­ur­send­ingar aðild­ar­ríkja til Grikk­lands stang­ast á við mann­rétt­inda­sátt­mál­ann, vegna óvið­un­andi aðbún­aðar flótta­manna þar í landi. Sömu­leiðis hefur dóms­stóll­inn gert alvar­legar athuga­semdir við end­ur­send­ingar við­kvæmra og varn­ar­lausra ein­stak­linga til Ítalíu vegna bágra aðstæðna þar. Dóms­mála­ráðu­neytið hætti af þessum sökum end­ur­send­ingum til þess­ara ríkja í des­em­ber 2015. Und­ir­rituð telja þá ákvörðun enn eiga rétt á sér. Enn býr flótta­fólk við óvið­un­andi aðstæður í þessum ríkjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár