Yfir 500 hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á Íslandi

Gríð­ar­legur skortur er á hjúkr­un­ar­fræð­ingum á Íslandi og yfir þús­und mennt­aðir hjúkr­un­ar­fræð­ingar starfa við eitt­hvað annað. Brott­fall nýút­skrif­aðra hjúkr­un­ar­fræð­ina er að með­al­tali 15% á ári.

523 hjúkring­ar­fræð­inga vantar til starfa á íslenskar heil­brigð­is­stofn­anir, í allt að 405 stöðu­gildi, sam­kvæmt mati fram­kvæmda­stjóra hjúkr­unar og hjúkr­un­ar­for­stjóra á öllum heil­brigð­is­stofn­unum á Íslandi, sem hafa hjúkr­un­ar­fræð­inga í vinnu. Jafn­framt vantar 290 hjúkr­un­ar­fræð­inga til starfa til þess að manna fjár­mögnuð stöðu­gildi á þessum heil­brigð­is­stofn­unum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga um vinnu­markað hjúkr­un­ar­fræð­inga. Staðan var könnuð á öllum heil­brigð­is­stofn­unum sem hafa hjúkr­un­ar­fræð­inga í vinnu.

Stöðugur skortur hefur verið á hjúkr­un­ar­fræð­ingum und­an­farna ára­tugi. Samkvæmt grein­ing­unni eru ein­ungis 69% hjúkr­un­ar­fræð­inga félags­menn í félag­inu, og um þús­und hjúkr­un­ar­fræð­inga starfa við annað en hjúkrun. Brott­fall nýút­skrif­aðra hjúkr­un­ar­fræð­inga úr starfi að með­al­tali 15% á und­an­förnum fimm árum. 

Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga leggur til að brugð­ist verði við skorti á hjúkr­un­ar­fræð­ingum með því að veita meira fé til mennt­unar hjúkr­un­ar­fræð­inga og með því að hækka laun þeirra til sam­ræmis við aðra opin­bera starfs­menn. „Þá þarf að leita leiða til að draga úr vinnu­á­lagi og bæta starfs­um­hverfi til þess að sporna gegn skertu starfs­hlut­falli hjúkr­un­ar­fræð­inga, en það er að með­al­tali 71%, og talið mega rekja til starfs­um­hverfis, vinnu­fyr­ir­komu­lags, vinnu­tíma og álags í starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár