Nýta sér viðkvæma stöðu fólks til að hagnast á stríðinu í Úkraínu

Svikarar og net­glæpa­menn hika ekki við að nýta sér tæki­færið og hagn­ast á stríð­inu í Úkraínu. Þeir svífast einskis og óska eftir fjár­fram­lögum í formi raf­myntar í nafni ann­ars fólks, allt frá læknum til fólks sem starfar í mann­úð­ar­starfi.

Fjöldi fólks hefur stutt við íbúa Úkraínu vegna stríðsins. Svikarar og netglæpamenn hafa séð sér leik á borði og hafa fé að fólki, einkum í formi rafmyntar.
Fjöldi fólks hefur stutt við íbúa Úkraínu vegna stríðs­ins. Svikarar og net­glæpa­menn hafa séð sér leik á borði og hafa fé að fólki, einkum í formi raf­myntar. Mynd: EPA

Tæpir tveir mán­uðir eru síðan inn­rás rúss­neska hers­ins í Úkraínu hófst. Volodomír Zelenskí, for­seti Úkraínu, hét því að vera um kyrrt og berj­ast „Við munum verja okkur, og þegar þið gerið árás munuð þið sjá and­lit okkar. Ekki bök okkar, heldur and­lit,“ sagði Zelenskí í sjón­varps­ávarpi 24. febr­úar, dag­inn sem inn­rásin hófst.

Rík­is­stjórn Zelenskí óskaði eftir fjár­fram­lögum frá heims­byggð­inni til að takast á við verk­efnið sem fram undan var. Almenn­ingur svar­aði kall­inu og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá úkra­ínskum yfir­völdum hafa yfir 70 millj­ónir safn­ast, aðeins í raf­mynt.

Aldrei fleiri svikamyllur skilgreindar af netöryggisfyrirtækjum

Svikarar og net­glæpa­menn sáu sér fljótt leik á borði og nýta sé nú and­lit ann­ars fólks til að hagn­ast á stríð­inu. Net­ör­ygg­is­fyr­ir­tæki hafa fundið slóð tölvu­pósts­sam­skipta þar sem óskað er eftir fjár­fram­lögum til stuðn­ings þeirra sem þjást vegna stríðs­ins í Úkraínu. Alls hafa um 2,8 millj­ónir aðgangar þar sem óskað er eftir stuðn­ingi í formi raf­myntar verið skil­greindir af net­ör­ygg­is­fyr­ir­tækjum sem svika­myllur og hafa aldrei verið fleiri.

„Ein­hverjir eru að hagn­ast á þessu og ég hafði það á til­finn­ing­unni að fólk myndi falla fyrir þessu og fólk er að falla fyrir þessu,“ segir Ax Sharma, starfs­maður hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Sonatype. Hann hefur rann­sakað slóð tölvu­pósta. Hannah Gelbart, rann­sókn­ar­blaða­maður sem sér­hæfir sig í upp­lýs­inga­óreiðu á heims­vísu, hefur fylgt staf­rænni slóð nokk­urra net­glæpa­manna sem hafa það að mark­miði að hagn­ast á stríð­inu í Úkraínu og naut aðstoðar Sharma.

„Það er allt rangt við þetta“

Í einum tölvu­póst­inum eru óskað eftir fjár­fram­lögum í nafni barna­lækna­þjón­ustu í Kharkív, sem átti að hafa eyði­lagst í loft­árásum Rússa á borg­ina. Eftir nán­ari athugun kom í ljós að engin barna­lækna­þjón­usta sem pass­aði við lýs­ing­una í tölvu­póst­inum væri til. Eftir öfuga mynda­leit af lækni sem á að starfa hjá þjón­ust­unni kom upp mynd af mexíkóskum lækni.

„Þessi mann­eskja er að nota mynd­ina af mér og mína per­sónu til að biðja um pen­inga. Það er allt rangt við þetta,“ segir Miguel Ángel Minero Hibert, barna­læknir í Mexík­ó­borg. Hann segir það mikil von­brigði að ein­hverjir geti hugsað sér að fara þessa leið til að afla fjár.

Fólk getur ekki treyst hvert peningarnir fara

Átta þús­und kíló­metrum frá þunga­miðju átak­anna býr Lindsey Novak-Duchaine. Hún á tvo vini í Úkraínu sem þurfa nú að gegna her­skyldu og vildi hún gera eitt­hvað til að leggja sitt af mörkum. Hún útbjó ýmsan varn­ing og setti á sölu og kynnti fram­takið á Twitter.

„Ég komst að því að ein­hver var að nota prófíl­mynd­ina mína og byrj­aði að tísta eins og ég og ósk­uðu eftir fjár­fram­lögum frá nokkrum fylgj­enda minna,“ segir Lindsey. Hún til­kynnti aðgang­inn til Twitter sem eyddi honum. Lindsey seg­ist skilja að fólk haldi aftur af sér þegar kemur að því að styðja við góð mál­efni. Fólk getur ekki treyst hvert pen­ingar þess fer.

„Hættið, þið bara verðið að hætta“

Upp­lýs­ingar um fjár­upp­hæðir sem safn­ast hafa í formi raf­myntar til góða­gerða­mála eru opin­berar. Það var því lítið mál fyrir rann­sókn­ar­blaða­mann­inn Gelbart að kom­ast að því hversu miklu hafði verið safnað í nafni Lindsey. Nið­ur­staðan: Tæpir 600 doll­arar.

Það er kannski ekki há upp­hæð en þegar litið er til þess að aðgangar líkt og þessir telja nærri þremur millj­ónum verður málið öllu alvar­legra. Merki þessi efnis að um svik séu að ræða eru auð­þekkj­an­leg. Mis­mun­andi net­föng eftir því hver send­and­inn er og net­fangið sem kemur þegar hafa á sam­band við góð­gerð­ar­fé­lagið eru til að mynda dæmi um að ekki sé allt með felldu.

Einnig eru dæmi um að svika­síður séu settar upp í nafni stórra alþjóð­legra mann­úð­ar­sam­taka líkt og UNICEF. Aðspurður hvaða skila­boð ætti að senda til svik­ar­anna og net­glæpa­mann­ann segir tals­maður UNICEF þau ein­föld: „Hættið, þið bara verðið að hætta. Fólk þarf á þessum fjár­fram­lögum að halda, taf­ar­laust, til að halda lífi og kom­ast í öruggt skjól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár