Ekki lá fyrir hvernig bóluefnisrannsókn yrði háttað fyrir Pfizer-fund

Staða kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi hefur mikið breyst síðan við­ræður við Pfizer hófust. Ekki hefði verið hægt að afla mik­il­vægra gagna fyrir svo­kall­aða fjórða fasa rann­sókn þegar svo lítið er um smit í land­inu.

Orðrómur um bóluefnisrannsókn Pfizer fór á flug í kringum síðustu helgi. Af rannsókninni varð þó ekki.
Orðrómur um bólu­efn­is­rann­sókn Pfizer fór á flug í kringum síð­ustu helgi. Af rann­sókn­inni varð þó ekki. Mynd: EPA

Ekki var búið að leggja drög að því með hvaða hætti bólu­efn­is­rann­sókn Pfizer yrði háttað þegar Kári Stef­áns­son, Már Krist­jáns­son og Þórólfur Guðnason fund­uðu með full­trúum Pfizer í vik­unni. Þetta kom fram í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag en einn gesta þátt­ar­ins var Kjartan Hreinn Njálsson aðstoð­ar­maður land­læknis.

„Það átti eftir að teikna upp þessa rann­sókn, þetta var ekki komið á það stig að þau voru komin með ein­hverjar rann­sókn­ar­spurn­ingar og væru búin að setja upp ein­hvern ramma fyrir vís­inda­rann­sókn, það var ekki komið á það stig,“ sagði Kjartan Hreinn í þætt­inum. Varðandi sið­ferði­lega hluta máls­ins sagði Kjartan að það hefði verið mjög mik­il­vægt að eiga sam­tal um þann hluta máls­ins eftir að búið væri að teikna upp ramma rann­sókn­ar­innar.

Spurður að því hvort Íslend­ingar hefðu getað tekið þátt í slíkri rann­sókn með góðri sam­visku sagði Kjartan svo vera, þó ekki endi­lega við jafn góðar aðstæður og nú eru uppi. Þar að auki hefði rann­sókn á bólu­efni núna, þegar svo lítið er um smit, ekki skilað þeim mik­il­vægu gögnum sem þarf í svo­kall­aðri fjórðu fasa rann­sókn með bólu­efni.

Allt önnur staða þegar viðræður hófust

Viðræður við Pfizer höfðu staðið yfir um nokkra vikna eða jafn­vel mán­að­ar­skeið því eins og kom fram í máli Kjartans þá var staðan hér allt önnur þegar við­ræður hófust. „Þá voru hérna ein­hver 20, 25 smit á dag. Þannig að það hefur mikið breyst síðan þetta fór allt saman af stað. En þetta getur auð­vitað breyst aftur en það er algjör­lega óráðið og á eftir að koma í ljós hvort það verði ein­hverjar frek­ari við­ræður ef slík staða kemur upp, sem ég vona nú að ger­ist ekki.“

Það sem af er þessum mán­uði hafa átta smit greinst inn­an­lands, þar af fjögur í fyrra­dag þau tengd­ust öll komu ein­stak­lings frá útlöndum. Á landa­mær­unum hafa í febr­úar greinst fjórtán virk smit. Í gær greind­ist eitt smit á landa­mær­unum og ekk­ert inn­an­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár