Helmingur kjósenda Ólafs setti Guðna í annað sætið

Þrátt fyrir að nýjasta könnun MMR sé að ein­hverju leyti úreld er hún mjög athygl­is­verð. Til dæmis sagð­ist helm­ingur kjós­enda Ólafs Ragnars Gríms­sonar lík­lega kjósa Guðna Th. Jóhann­es­son ef for­set­inn væri ekki í fram­boði.

Það segir ýmis­legt um ástandið í íslenskum stjórn­málum und­an­farnar vikur að nýjasta skoð­ana­könnun á fylgi fram­bjóð­enda til for­seta hafði verið í loft­inu í fimmtán mín­útur þegar hún var orðin úreld. Þá til­kynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann væri hættur við að bjóða sig fram í sjötta sinn. Raunar hafði könn­unin líka úrelst í miðju kafi, þegar nýr fram­bjóð­andi, Davíð Oddsson, bætt­ist í hóp­inn á síð­asta degi hennar.

Þrátt fyrir þetta er könnun MMR, sem birt var í morgun, mjög áhuga­verð. Guðni Th. Jóhann­es­son mæld­ist þar með mikla for­ystu á aðra fram­bjóð­endur, eða 59,2% fylgi. Ólafur Ragnar mæld­ist með 25,3% fylgi og Andri Snær Magnason 8,5 pró­senta fylgi. Davíð Oddsson mæld­ist með 3,1 pró­sent, en hann var aðeins hluti af könn­un­inni síð­asta dag­inn af fjórum, sem þýðir að 27 pró­sent svar­enda fengu hann sem val­mögu­leika. Halla Tóm­as­dóttir mæld­ist með 1,7 pró­senta fylgi í könn­un­inni. Síðasta könnun á undan þess­ari sýndi allt aðra mynd. Þá mæld­ist Ólafur Ragnar með 52,6 pró­sent, Andri Snær með 29,4 pró­sent og Halla Tóm­as­dóttir 8,8 pró­sent. Og nú er ljóst að næsta könnun mun sýna aðra mynd þar sem Ólafur Ragnar er hættur og Davíð kom­inn inn frá byrjun.

Helmingur kjósenda Ólafs myndi kjósa Guðna

MMR spurði svar­endur um það hver yrði lík­leg­ast fyrir val­inu hjá þeim ef fyrsta val þeirra væri ekki í fram­boði. Sú spurn­ing er áhuga­verð í ljósi þeirra tíð­inda að Ólafur Ragnar er hættur við að bjóða sig fram, en gæti auð­vitað breyst með inn­komu Davíðs.

Helm­ingur þeirra sem ætl­uðu að kjósa Ólaf Ragnar sögðu að ef hann væri ekki í fram­boði myndu þeir lík­leg­ast kjósa Guðna Th. Fjórð­ungur þeirra sagð­ist hins vegar kjósa ein­hvern annan fram­bjóð­anda og um 20 pró­sent sögðu að ef Ólafur yrði ekki í fram­boði myndu þeir ýmist ekki kjósa eða skila auðu.

Ríflega þrír af hverjum fjórum kjós­endum Andra Snæs sögðu að ef hann væri ekki í fram­boð kysu þeir Guðna Th. 6,8 pró­sent hefðu viljað Ólaf sem annað val, og 15 pró­sent ein­hvern annan fram­bjóð­anda.

Kjós­endur ann­arra fram­bjóð­enda hefðu flestir viljað kjósa Ólaf Ragnar ef þeirra fyrsta val væri ekki í fram­boði, eða 39,3 pró­sent. 32,2 pró­sent kjós­enda ann­arra fram­bjóð­enda segj­ast munu kjósa Guðna ef þeirra fram­bjóð­andi væri ekki í fram­boði, en 1,7 pró­sent Andra.

Konur og langskólagengnir vildu Guðna

Guðni hafði hlut­falls­lega meira fylgi hjá konum en körlum, ríf­lega 61 pró­sent kvenna vildu Guðna en 53,4 pró­sent karla. Helm­ingur kjós­enda í yngsta ald­urs­hópnum, 18-29 ára, sagð­ist myndu kjósa Guðna. Hann naut um 60 pró­senta stuðn­ings í ald­urs­hóp­unum 30 til 49 ára og 50 til 67 ára, og 56 pró­senta stuðn­ings meðal 68 ára og eldri.

Stuðn­ing­ur­inn við Guðna mæld­ist nokkuð jafn meðal fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og lands­byggð­inni, 58 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rúm­lega 56 pró­sent á lands­byggð­inni.

Guðni Th. var með meira fylgi meðal fólks sem hefur meiri menntun en þeirra sem hafa minni menntun. Meðal háskóla­mennt­aðra mæld­ist stuðn­ingur við hann 69 pró­sent, en meðal þeirra sem hafa grunn­skóla­menntun var stuðn­ing­ur­inn rúm­lega 48 pró­sent.

Þegar stuðn­ing­ur­inn er skoð­aður eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka sést að stuðn­ingur við Guðna mæld­ist um og yfir 60 pró­sent meðal þeirra sem ætla að kjósa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Tæp 30 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins ætl­uðu að kjósa Guðna og rúm 38 pró­sent sjálf­stæð­is­manna.

Karlar, minna menntaðir og landsbyggðarbúar vildu frekar Ólaf

Ólafur Ragnar hafði aftur á móti hlut­falls­lega meira fylgi meðal karla, en 31,2 pró­sent karla vildu hann gegn 24,6 pró­sentum kvenna, og þeirra sem hafa minni menntun. 42,7 pró­sent grunn­skóla­mennt­aðra vildu Ólaf Ragnar en aðeins ríf­lega 15 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf. Hann var einnig með miklu meira fylgi á lands­byggð­inni (36%) en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (23,8%).

Ólafur Ragnar mæld­ist með yfir 61 pró­senta fylgi meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins, og 48 pró­senta stuðn­ing meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 17 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar ætl­uðu að kjósa hann og 15 pró­sent Pírata. Hann hafði tæp­lega 12 pró­senta stuðn­ing meðal kjós­enda VG.

Enginn stuðningur við Andra hjá sjálfstæðis- og framsóknarmönnum

Andri Snær mæld­ist svo með hlut­falls­lega mest fylgi meðal yngstu kjós­end­anna og þeirra sem hafa lengri skóla­göngu að baki. Athygl­is­vert er að Andri Snær er með 0,0 pró­senta fylgi meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann hefur stundum verið orð­aður við tengsl við Vinstri-græn vegna áherslu sinnar á nátt­úru­vernd, en mestan stuðn­ing hefur hann meðal kjós­enda Bjartrar fram­tíðar, 22,5 pró­sent. 19,4 pró­sent Sam­fylk­ing­ar­kjós­enda og 16 pró­sent Pírata studdu Andra Snæ, en 15,5% kjós­enda VG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár