Mynd: Heiða Helgadóttir

Hvenær byrjarðu að hugsa sjálfstætt?

Natasha S. er alin upp í Moskvu og menntaður blaða­maður. Hún kom fyrst til Íslands fyrir tíu árum síðan, dvaldi hér á landi um árabil og hélt því næst til Svíþjóðar þar sem hún bjó um skeið. Hún ritstýrði og átti verk í ljóða­safninu Pólifónía af erlendum uppruna, en ljóðin voru eftir fjórtán höfunda af erlendum uppruna, búsetta á Íslandi, og verkið þótti marka tímamót í íslenskum bókmenntum. Þegar stríðið braust út í Úkraínu byrjaði Natasha að skrifa – á íslensku. Og hlaut bókmennta­verðlun Tómasar Guðmunds­sonar fyrir bókina Máltaka á stríðs­tímum.

Hún hefur skrifað pistla um rússneskt samfélag og stríðið fyrir RÚV en hún skrifaði líka ljóðabók sem heitir Máltaka á stríðs­tímum og hlaut nýlega Bókmennta­verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar.

Í síðasta bókablaði Stundarinnar sagði bókmennta­gagn­rýnandinn Páll Baldvin Baldvinsson þessa fyrstu ljóðabók hennar vera afrek; svo þroskað sem verkið væri í orðfæri og hugsun á lærðu máli fjarlægu orðstofni skáldsins. Jafnframt sagði hann hana brjóta blað með þessu byrjenda­verki sínu og færa okkur frábært safn sem auðgi ljóðheim þeirra sem njóta vilji góðs skáld­skapar.

Þess má geta að ljóða­bókin er fagurlega hannaður gripur, eins og umslag utan um bréf. Í rauninni bókverk ekki síður en ljóðabók.

Strax og ég las grein­arnar hennar á RÚV, bein­skeyttar en þrungnar tilfinningu, langaði mig að tala við hana. Og hef færi á því nú. Hún er ljóðskáld og ég með þá afsökun að skálda bókablað.

Ég las bókina tvisvar áður en við hittumst …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár